Lýstu yfir áhyggjum af því að kerfin gætu farið að bresta

Þrír tals­menn almanna­varna og heil­brigð­is­yf­ir­valda voru ómyrk í máli á upp­lýs­inga­fundi dags­ins, er þau voru spurð í það hver staðan gæti orðið á næstu vikum ef fjöldi kór­ónu­veirusmita og þeirra sem veikj­ast vegna þeirra héldi áfram að vaxa inn­an­lands.

Víðir, Kamilla og Páll á upplýsingafundinum í dag.
Víðir, Kamilla og Páll á upp­lýs­inga­fund­inum í dag. Mynd: Almannavarnir

Það var ansi þungt hljóð í tals­mönnum almanna­varna og heil­brigð­is­yf­ir­valda sem sátu fyrir svörum á upp­lýs­inga­fundi dags­ins, vegna stöðu mála í kór­ónu­veiru­far­aldr­inum. „Við færumst nær þol­mörkum ýmissa kerfa,“ sagði Víðir Reyn­is­son yfir­lög­reglu­þjónn og Kamilla S. Jós­efs­dóttir stað­geng­ill sótt­varna­læknis var nokkuð afdrátt­ar­laus er hún var spurð að því hver staðan gæti orðið ef smitum á Íslandi myndi halda áfram að fjölga veru­lega næstu vik­urnar og ekki yrði gripið í taumana með enn harð­ari sótt­varna­ráð­stöf­unum.

Hún sagði lík­legt að þá yrði smitrakn­ing ómögu­leg, með þeim leiðum sem hefðu verið not­aðar, en smitrakn­ingin er eitt helsta tólið til þess að hefta útbreiðslu smita í sam­fé­lag­inu.

„Ef rakn­ing er ómögu­leg mun smitum fjölga áfram því þá verður fólk ekki lengur sett í sótt­kví sem þarf að vera í sótt­kví, þá verða fleiri sem enda í ein­angrun, fleiri sem veikj­ast alvar­lega og fleiri sem þurfa á Land­spít­al­ann. Það eru tak­mörk fyrir því hvað Land­spít­al­inn getur tekið við [...] Á ein­hverjum tíma­punkti gætum við mögu­lega lent í því sem aðrir hafa lent í, í þessum heims­far­aldri, að spít­al­arnir taki ekki við og fólk fái ekki gjör­gæslu­inn­lögn, þó að það þurfi hana. Og það er ekki ástand sem við viljum að verði,“ sagði Kamilla.

Um helmingur innlagna í þessari bylgju hjá óbólusettum

Auk þeirra Víðis og Kamillu var Páll Matth­í­as­son for­stjóri Land­spít­ala til svara á upp­lýs­inga­fund­inum og ræddi hann stöðu spít­al­ans nú þegar 18 manns eru inniliggj­andi með COVID-19. Fram kom í máli hans að af þeim rúm­lega 30 ein­stak­lingum sem hefðu þurft inn­lögn á spít­al­ann vegna veik­inda sinna í þess­ari nýju bylgju far­ald­urs­ins hefði um helm­ingur verið bólu­settur.

Vegna per­sónu­vernd­ar­sjón­ar­miða hafa litlar upp­lýs­ingar verið veittar um þann hóp sem liggur inni, með til­liti til ald­urs, und­ir­liggj­andi sjúk­dóma eða bólu­setn­ing­ar­stöðu.

Í umræðu und­an­far­inna vikna og daga hafa ýmsir velt því upp hvernig það geti verið jafn mik­ill vandi fyrir Land­spít­ala og raunin virð­ist, að taka á móti þeim sjúk­lingum með COVID-19 sem nú þurfa á inn­lögn að halda. Páll lýsti því þannig að spít­al­inn væri við það að fær­ast á neyð­ar­stig, eftir að hafa verið á hættu­stigi frá því að fyrstu sjúk­ling­arnir fóru að legga­jst inn.

[adspot]

Hann sagði þó að það mætti alveg velta því fyrir sér hvers vegna það gæti verið vandi fyrir spít­ala með 600 rúm þegar 20 manns leggj­ast inn. For­stjór­inn sagði að „hinn eig­in­legi bráða­spít­ali“ hefði um 400 rúm og það væri í raun­inni það sem skipti máli í þessu sam­hengi. Almennt séð væri Land­spít­ali með 95-105 pró­sent nýt­ingu leg­u­rýma á þessum bráða­deildum þegar alþjóð­leg við­mið gerðu ráð fyrir 85 pró­sent nýt­ingu. Því væri það vandi að fá þessa tutt­ugu ein­stak­linga inn með COVID-19.

Staðan væri líka sú núna, öfugt við fyrri bylgjur far­ald­urs­ins, að sam­fé­lagið væri á fullu og spít­al­inn hefði því „tölu­vert af veiku fólki og slös­uðu“ sem þyrfti að sinna og síðan væri frá­flæð­is­vandi á spít­al­anum enn til staðar, en á bil­inu 30-40 manns eru núna inniliggj­andi að bíða þess að geta útskrif­ast yfir á hjúkr­un­ar­rými, að sögn for­stjór­ans.

Ofan á þetta sagði Páll stöð­una erf­iða vegna sum­ar­fría, sem spít­al­inn hefði hvatt starfs­fólk til þess að taka sér. „Það skiptir máli líka, því þá höfum við færri upp á að hlaupa,“ sagði hann, en spít­al­inn er byrj­aður að biðla til fólks um að koma fyrr til baka úr fríi en það hafði áætlað.

Hann setti fram sitt mat á stöðu mála og sagði ljóst að sam­fé­lagið þyrfti að huga að því að reyna að toga niður smit­kúrv­una, ef Land­spít­al­inn ætti að ráða við ástandið. „Það þarf að ná valdi á þess­ari bylgju,“ sagði Páll og bætti því við að áfram þyrfti að vinna að því að efla sótt­varna­við­bragð og burð­ar­þol heil­brigð­is­kerf­is­ins og Land­spít­al­ans.

Þurfi að taka ákvörðun um nánustu framtíð

Víðir Reyn­is­son lýsti yfir áhrifum af lang­tíma­á­hrifum þess á sam­fé­lagið ef að kerfin í sam­fé­lag­inu færu að bresta, þá með þeim hætti að Land­spít­al­inn gæti ekki sinnt öllum sem þyrftu á bráða­hjálp að halda.

„Kerfin hafa ekki brostið eða brugð­ist og traust fólks á þeim því enn til staðar. Ef að kerfin okkar fara að bresta og við getum veitt þá þjón­ustu sem við viljum gera, getum ekki haldið uppi því örygg­is­stigi sem við viljum í sam­fé­lagi eins og okkar, þá geta lang­tíma­á­hrifin verið af ein­hverjum allt öðrum toga en við höfum áður séð í þessu. Það er ansi þekkt í krísum í sam­fé­lögum þar sem upp koma atvik þar sem menn telja að kerfin hafi brugð­ist, það hefur gríð­ar­leg áhrif á sam­fé­lagið sem slíkt í langan tíma á eftir. Þetta er eitt af því sem stjórn­völd eru að horfa til þessu öllu saman,“ sagði Víðir.

Hann sagði að beðið væri eftir því að afrakstur vinnu við lang­tíma­stefnu um hvernig takast ætti á við veiru­far­ald­ur­inn í bólu­settu sam­fé­lagi færi að koma fram og sagði mik­il­vægt að hugsa bæði til fram­tíðar, en einnig að taka þyrfti ákvarð­anir um hvernig skyldi bregð­ast við því sem væri að ger­ast þessa dag­ana.

„Það er ekki í boði í krísum að taka ekki ákvörðun,“ sagði Víðir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár