„Við höfum séð það svartara, við munum sjá það bjartara“

Guðni Th. Jóhann­es­son for­seti Íslands ávarp­aði þjóð­ina í kvöld og ræddi veiru­far­ald­ur­inn sem sett hefur dag­legt líf úr skorðum. Hann sagði að áfram myndi reyna á sam­stöðu og seiglu þjóð­ar­innar, vand­inn yrði viða­meiri áður en sigri yrði fagnað.

Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands ávarpaði landsmenn í kvöld.
Guðni Th. Jóhann­es­son for­seti Íslands ávarp­aði lands­menn í kvöld. Mynd: Skjáskot

„Öll þurfum við nú að þola mæðu­samar stundir, þurfum að þola dæma­lausa daga,“ sagði Guðni Th. Jóhann­es­son for­seti Íslands í sér­stöku páska­dags­ávarpi sem flutt var á RÚV í kvöld. Ávarpið hefur verið birt á vef for­seta­emb­ætt­is­ins á íslensku, ensku og pólsku.

For­set­inn færði þeim sem hafa misst aðstand­endur vegna kór­ónu­veirunnar hjart­ans sam­úð­ar­kveðjur og bað lands­menn um að hugsa hlýtt til allra þeirra sem hafa veikst af veirunni sem og þeirra fjöl­mörgu sem hafa setið í ein­angrun eða sótt­kví. Þá flutti hann fólki í áhættu­hópum vegna veirusmits, bar­áttu- og stuðn­ings­kveðjur.

Guðni beindi orðum sínum sér­stak­lega að eldri borg­urum lands­ins. „Ykkar kyn­slóð byggði upp það sam­fé­lag vel­ferðar á Íslandi sem við eigum öll að geta notið saman. Varnir við vágest­inum þýða að þið hafið lítt eða ekki notið sam­vista við ykkar nán­ustu að und­an­förnu, en þið takið þessu hlut­skipti af því æðru­leysi sem löng lífs­reynsla kennir. Öll megum við mikið læra af þeim sterka hug,“ sagði Guðni.

Hrósaði almenningi fyrir viðbrögð sín

For­set­inn hrós­aði við­brögðum almenn­ings við veiru­far­aldr­inum og hvatti fólk til þess að halda áfram á sömu braut. Hann sagði að stundum væri sagt að Íslend­ingar væru þras­gjarnir og síst af öllu hús­bónda­hollir.

[adspot]

„Við fyrstu sýn mætti ætla að slík þjóð­ar­ein­kenni kæmu okkur í koll þegar far­sóttin skall á land­inu af fullum þunga. En öðru nær. Upp til hópa hefur fólk hlýtt til­mælum og leið­bein­ingum og hlýt ég að brýna landa mína að halda því striki. Á sama tíma höfum við samt skipst á skoð­unum um það hvernig bregð­ast beri við. Ólík sjón­ar­mið hafa heldur betur heyrst. Á Alþingi hafa stjórn­ar­and­stæð­ingar veitt aðhald en sýnt sann­girni. Rík­is­stjórn lands­ins hefur axlað ábyrgð en treyst for­ystu og ráð­gjöf sér­fræð­inga,“ sagði Guðni og ræddi því næst um þá sér­fræð­inga sem vísað hafa veig­inn í við­brögðum við heims­far­aldr­inum.

„Íslend­ingar hafa löngum haft lítið dálæti á þeirri mann­teg­und,“ sagði Guðni er hann ræddi um sér­fræð­ing­ana og bætti við að víst væri að sér­fróðum gæti skjátl­ast eins og öðrum.

„Við erum hins vegar vel sett með ein­vala­lið okkar í almanna- og veiru­vörnum. Þau eru löngu orðin heim­il­is­vinir, Alma land­læknir, Þórólfur sótt­varna­læknir og Víðir sem allir hlýði, yfir­lög­reglu­þjónn með meiru. Þau setja sig ekki á háan hest, þau við­ur­kenna að eiga ekki svör við öllum spurn­ingum og þau eru opin­ská um þann vanda sem við er að etja,“ sagði for­set­inn.

Hann ræddi einnig efna­hags­lega tjónið sem heims­far­ald­ur­inn er að valda og sagði ferða­þjón­ust­una, þá mik­il­vægu atvinnu­grein, og hag­kerfið allt, hafa beðið hnekki.

„Líf okkar er gengið úr skorðum og verður svo enn um sinn. Dást má að því hvernig lands­menn hafa lagað sig að nýjum háttum, unnið heima og sinnt heils­unni þótt nú vanti laug­ina og rækt­ina. En auð­vitað getur kvíði sótt að. Margir hafa misst vinnu sína, aðrir þola illa alla röskun. Íbúar lands­ins með erlendar rætur skilja ekki allt sem fram kemur um stöðu mála og ótt­ast um vini og ætt­ingja utan Íslands. Spenna ríkir á sumum heim­ilum og jafn­vel hætt­ara við en áður að fólk eigi þar ekki skjól heldur sæti þvert á móti ofbeldi, eins og sorg­leg dæmi sanna. Við skulum vera á varð­bergi, við skulum hjálpa þeim sem eru hjálpar þurfi,“ sagði Guðni.

„En sigri munum við fagna“

For­set­inn sagði að enn myndi reyna á sam­stöðu lands­manna og seiglu. Vandinn yrði eflaust viða­meiri áður en sigri yrði fagnað. „En sigri munum við fagna. Hér eru þær traust­ari en víða, und­ir­stöður sam­fé­lags og þjóð­ar­bú­skapar. Hér býr dug­leg og menntuð þjóð í fögru landi, sjálf­stæð þjóð með eigin auð­lindir til sjávar, sveita og heiða, að ekki sé minnst á auð­magn huga og handa,“ sagði Guðni, sem minnti að lokum á að senn kemur vorið, „sunnan yfir sæinn breiða.“

„Já, hvíslum glöð út í myrkrið og minn­umst þess jafn­framt að alltaf birtir til. Við höfum séð það svart­ara, við munum sjá það bjart­ara,“ sagði for­seti Íslands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár