Árni Páll ósammála frumvarpi flokksfélaga sinna um afnám verðtryggingar

Árni Páll Árnason, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, seg­ist ekki vera sam­mála frum­varpi sem sam­flokks­menn hans, þau Sigríður Ingi­björg Inga­dóttir og Helgi Hjörvar, hafa lagt fram á Alþingi um afnám verð­trygg­ingar. Árni Páll seg­ist ekki telja rétt að banna verð­tryggð neyt­enda­lán. „Ég tel rétt að fólk fái aukið val­frelsi og að við reynum að þróa lána­mark­að­inn þannig að hlut­fall óverð­tryggðra lána hækki." Þetta sagði Árni Páll í Morg­un­út­varpi Rásar 2 í morgun.

Sigríður Ingi­björg Inga­dóttir og Helgi Hjörvar hafa lagt fram frum­varp um bann við verð­trygg­ingu á nýjum neyt­enda­lánum, þar á meðal hús­næð­is­lánum. Bannið á ekki að vera aft­ur­virkt og því ekki að ná til þeirra verð­tryggðu lána­samn­inga sem þegar hafa verið gerðir.

Í grein­ar­gerð með frum­varp­inu segir marg­vís­leg efna­hags­leg rök og þörf á auk­inni neyt­enda­vernd kalli á afnám almennrar verð­trygg­ingar neyt­enda­lána. Þá hafi rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar for­sæt­is­ráð­herra sett „ákveðið for­dæmi fyrir því hvernig skuli bregð­ast við efna­hag­sveiflum í fram­tíð­inni“ með leið­rétt­ingu verð­tryggra hús­næð­is­lána vegna verð­bólgu­skots upp á 80 millj­arða króna.

Á síð­asta lands­fundi Sam­fylk­ing­ar­innar, sem fram fór í mars 2015, bauð Sigríður Ingi­björg sig fram til for­manns gegn sitj­andi for­manni, Árna Páli. Þar sem fram­boðið barst skömmu fyrir lands­fund gátu ein­ungis lands­full­trúar kosið í for­manns­kosn­ing­unum í stað þess að alls­herj­ar­at­kvæða­greiðsla færi fram sem allir flokks­menn gætu tekið þátt í. Nið­ur­staðan varð sú að Árni Páll sigr­aði með einu atkvæði, hlaut 241 atkvæði en Sigríður Ingi­björg 240.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár