Þingmenn Samfylkingar leggja fram frumvarp um afnám verðtryggingar

Tveir þing­menn Sam­fylk­ing­ar­innar vilja banna verð­trygg­ingu á nýjum hús­næð­is­lánum. Þeir segja rík­is­stjórn­ina hafa sett for­dæmi með leið­rétt­ing­unni. Íslend­ingar taka frekar verð­tryggð lán en óverð­tryggð.

Tveir þing­menn Sam­fylk­ing­ar­innar, Sigríður Ingi­björg Inga­dóttir og Helgi Hjörvar, hafa lagt fram frum­varp um bann við verð­trygg­ingu á nýjum neyt­enda­lánum, þar á meðal hús­næð­is­lánum. Bannið á ekki að vera aft­ur­virkt og því ekki að ná til þeirra verð­tryggðu lána­samn­inga sem þegar hafa verið gerðir.

Í grein­ar­gerð með frum­varp­inu segir marg­vís­leg efna­hags­leg rök og þörf á auk­inni neyt­enda­vernd kalli á afnám almennrar verð­trygg­ingar neyt­enda­lána. Þá hafi rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar for­sæt­is­ráð­herra sett „ákveðið for­dæmi fyrir því hvernig skuli bregð­ast við efna­hag­sveiflum í fram­tíð­inni“ með leið­rétt­ingu verð­tryggra hús­næð­is­lána vegna verð­bólgu­skots upp á 80 millj­arða króna.

Framsókn hefur lofað afnámi verðtryggingar

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn ræddi mikið um afnám verð­trygg­ing­ar­innar í aðdrag­anda síð­ustu kosn­inga. Í pistli fyrir kosn­ing­arnar, sem nefnd­ist Fram­sókn­ar­stjórn eða verð­trygg­ing­ar­stjórn, sagði Sig­mundur Davíð meðal ann­ars að staðan væri ekki flókin og ljóst væri að annað hvort yrði rík­is­stjórn mynduð um skulda­leið­rétt­ingu, afnám verð­trygg­ingar og heil­brigð­ara fjár­mála­kerfi, eða rík­is­stjórn þeirra sem væru gegn þessum málum.

Í stefnu­skrá Fram­sókn­ar­flokks­ins fyrir síð­ustu kosn­ingar var þessi stefna einnig tíunduð. Þar sagði að flokk­ur­inn ætl­aði sér að afnema verð­trygg­ingu á neyt­enda­lánum. Undir þeim lið sem fjall­aði um þá aðgerð sagði m.a.: „Fyrsta skrefið verði að setja þak á hækkun verð­trygg­ingar neyt­enda­lána". Slíkt þak hefur ekki verið sett það sem af er kjör­tíma­bil­inu.

Eftir kosn­ingar var skip­aður starfs­hópur til að und­ir­búa afnám verð­trygg­ingar. Hann komst að þeirri nið­ur­stöðu árið 2014 að það ætti ekki að afnema verð­trygg­ingu.

Um síð­ustu helgi sagð­ist Sig­mundur Davíð, í sam­tali við Eyjuna á Stöð 2, að hann sjái fyrir sér að hægt yrði að setja afnám verð­trygg­ingu í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu. Ljóst er að sam­starfs­flokkur Fram­sókn­ar­flokks­ins í rík­is­stjórn, Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, hefur engan hug á því að afnema verð­trygg­ingu. Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, hefur sagt slikt opin­ber­lega.

Íslendingar taka frekar verðtryggð lán

Í grein­ar­gerð Sigríðar Ingi­bjargar og Helga Hjörvars er fjallað sér­stak­lega um þessi lof­orð Fram­sókn­ar­flokks­ins. Þar segir: „Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn lof­aði afdrátt­ar­laust fyrir síð­ustu kosn­ingar að verð­trygg­ing yrði afnumin með öllu. Það er því ljóst að staða verð­trygg­ingar á lána­mark­aði er í upp­námi og mik­il­vægt að bregð­ast við af festu. Þrátt fyrir þessa stöðu er óvíst með öllu hvenær rík­is­stjórnin hyggst leggja fram laga­frum­varp um málið. Þess vegna er mik­il­vægt að lög­gjaf­inn dragi úr óvissu með því að banna verð­tryggð neyt­enda­lán með skýrum hætti.“

Auk þess er það notað sem rök­stuðn­ingur fyrir frum­varp­inu að flest bendi til þess að afnám verð­trygg­ingar neyt­enda­lána njóti víð­tæks stuðn­ings. Könnun frá árinu 2009 sýni 80 pró­sent stuðn­ing við afnám verð­trygg­ingar og 37 þús­und manns hafi skrifað undir und­ir­skrifta­söfnun Hags­muna­sam­taka heim­il­anna á árinu 2011 um að afnema hana. Síðar segir: „ Litlar líkur eru á að krafan minnki í bráð og almenn­ingur sætti sig við verð­trygg­ing­una. Þetta þurfa stjórn­völd að taka alvar­lega. Í lýð­ræð­is­þjóð­fé­lagi fær kerfi á borð við verð­trygg­ingu ekki stað­ist til lengdar ef andúð almenn­ings er jafn­sterk og almenn og raun ber vitni.“

Þorri íslenskra hús­næð­is­lána eru verð­tryggð og Íslend­ingar taka enn frekar verð­tryggð lán en óverð­tryggð. Á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2015 juk­ust hús­næð­is­lán til að mynda um 87 millj­arða króna. Meiri­hluti þeirra voru verð­tryggð lán.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár