Árni Páll: Átökin á síðasta landsfundi dýrkeypt og finnur fyrir þrýstingi innan flokks

Árni Páll Árnason, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, segir að átökin á síð­asta land­fundi flokks­ins hafi verið honum dýr­keypt. Skýr­ingar á miklu fylgis­tapi Sam­fylk­ing­ar­innar und­an­farin miss­eri sé þó aðal­lega að finna í upp­gangi Pírata. Hann segir þrýst­ing innan flokks­ins um að blása til nýs lands­fundar, en sá síð­ast fór fram í mars á þessu ári, og seg­ist til­bú­inn að leggja störf sín í dóm flokks­systk­ina. Þetta kom fram í við­tali Hall­gríms Thor­steins­sonar við Árna Pál í Helg­ar­út­gáf­unni á Rás 1 í morgun.

Síðasti lands­fundur Sam­fylk­ing­ar­innar fór fram í mars síð­ast­liðnum. Þar bauð Sigríður Ingi­björg Inga­dóttir sig fram til for­manns gegn sitj­andi for­manni, Árna Páli Árnasyni. Þar sem fram­boðið barst skömmu fyrir lands­fund gátu ein­ungis lands­full­trúar kosið í for­manns­kosn­ing­unum í stað þess að alls­herj­ar­at­kvæða­greiðsla færi fram sem allir flokks­menn gætu tekið þátt í. Nið­ur­staðan varð sú að Árni Páll sigr­aði með einu atkvæði, hlaut 241 atkvæði en Sigríður Ingi­björg 240.

Árni Páll tók við af Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur sem for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar árið 2013. Hann var kjör­inn í alls­herj­ar­kosn­ingu og hlaut afger­andi kosn­ingu í bar­átt­unni um for­manns­stól­inn við Guðbjart Hann­es­son. Sam­fylk­ingin beið hins vegar afhroð í síð­ustu Alþing­is­kosn­ingum, undir stjórn Árna Páls, þegar flokk­ur­inn hlaut 12,9 pró­sent atkvæða og tap­aði ell­efu þing­mönnum. Aldrei nokkru sinni í sögu íslenskra stjórn­mála hefur einn flokkur tapað jafn miklu fylgi á milli kosn­inga og Sam­fylk­ingin gerði á milli áranna 2009 og 2013.

Fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar mælist nú 11,4 pró­sent, eða minna en í síð­ustu kosn­ingum. Og það hefur mælst stöðugt mjög lágt í öllum könn­unum sem gerðar hafa verið und­an­farna mán­uði.

Í Helg­ar­út­gáf­unni sagði Árni Páll að í fyrra­haust hafi flokk­ur­inn verið að mæl­ast með um 20 pró­sent fylgi. Frá þeim tíma hafi orðið gríð­ar­leg fylg­is­sveifla til Píratar. "Hún hittir okkur nú sein­ast fyrir af öllum flokk­unum, en hittir okkur á end­anum. Síðan er ekk­ert hægt að líta fram­hjá því að lands­fund­ur­inn var ekki til þess að styrkja stuðn­ing okkar meðal þjóð­ar­innar. Við súnkuðum í fylgi í könn­unum eftir hann. Við­fangs­efni okkar hlýtur að vera að draga lær­dóm af þess­ari stöðu."

Hann sagð­ist verða var við þrýst­ing innan Sam­fylk­ing­ar­innar um að halda nýjan lands­fund og að hann væri algjör­lega til­bú­inn til þess að leggja sín störf í dóm flokks­manna. "Þetta snýst ekki um annað en það að á meðan ég tel mig hafa hug­myndir og sýn um það hvert eigi að fara með flokk­inn, sem flokks­menn deila, þá sit ég sem for­maður og ef flokks­menn hætta að styðja mína sýn og vilja ein­hverja aðra, þá vænt­an­lega verð ég ekki lengur for­maður. Það er nú eðli lýð­ræð­is­ins.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár