Að fitusmána sjálfan sig

Sig­hvatur Björg­vins­son skrifar um fitu­smánun og hverjir það séu sem hann telur að beri ábyrgð á lík­am­legu atgervi.

Nýjar upp­lýs­ingar Kveiks um vax­andi ofþyngd barna og afleið­ingar hennar á heilsu­far þeirra og heilsu­horfur hafa vakið mikla athygli og ekki síður miklar umræður. Við­brögðin hafa hins vegar verið umhugs­un­ar­verð. Meðal ann­ars er talað um, að orsak­irnar kunni að hafa verið að börnin hafi verið beitt ofbeldi á æsku­árum. Hugs­an­legt ofbeldi eins gagn­vart öðrum virð­ist vera orðið altæk skýr­ing á öllu því, sem aflaga hefur farið um þroska og sál­ar­líf hvers ein­stak­lings. Eitt slíkt ofbeldi eins gegn öðrum er sagt vera fitu­smánun.

Setjum sem svo, að ég segi við vin minn: „Þú ert orð­inn allt of þungur. Það veldur öllum, sem þér þykir vænt um, sál­arkvölum – kon­unni þinni, börn­unum þínum, vin­unum þínum - og sjálfum þér miklu heilsutjóni“, þá telst ég vera að fitu­smána vin minn alger­lega að ósekju og sjálfum mér til mik­ils ámælis. Sá vinur minn, sem orð­inn er 140 til 150 kg. á þyngd, hefur alger­lega séð um það sjálfur að fitu­smána sig. Á við engan annan en sjálfan sig að sakast og getur til einskis ann­ars leitað en fyrst og fremst til sjálfs sín að takast á við það vanda­mál sitt með árangri og með ann­ari hjálp, sem hinn fitu­smáði verður þó sjálfur og einn að bera sig eftir.

Nonni feiti

Nýjustu upp­lýs­ing­arnar um vax­andi offitu barna eru meira en athygli verðar. Sjálfur var ég barn vestur á Ísafirði, en offita barna er nú sögð vera einna verst á Vest­fjörðum. Með mér í jafn­aldra­bekkjum í barna­skóla á Ísafirði voru um 70 önnur börn. Í öllum þessum hópi var aðeins einn drengur, sem sagður var vera feitur. Ég vil ekki hér og nú upp­lýsa hver sá drengur var, en segjum svo að hann hafi heitið Jón.

[adspot]Alla sína skóla­tíð og eftir það var hann þekktur undir heit­inu Nonni feiti. Hvernig stóð á því, að Nonni feiti var sá eini í hópnum? Var það vegna þess, að heilsu­gæslan á Ísafirði væri svona mann­mörg og skipti sér svona mikið af fæðu­upp­eldi barn­anna? Var það út af því, að gos­drykkir væru ekki til – nú né ofgnótt af sæl­gæti? Var það vegna þess, að börnin kunnu ekki að hreyfa sig nema með leið­bein­ingum? Kynnu enga leiki nema sem væri stýrt af full­orðnu fólki; ef ekki íþrótta­þjálf­urum þá a.m.k. heil­brigð­is­starfs­mönnum?

Nei, það var ein­fald­lega vegna þess, að upp­eldi barna var í höndum for­eldra. For­eldr­arnir vissu hvaða matur væri heilsu­sam­legur. For­eldr­arnir réðu hverjir vasa­pen­ingar barn­anna voru og studdu það síður en svo, að þeir pen­ingar, sem for­eldr­arnir veittu okkur börn­unum, væru not­aðir til þess að kaupa ein­tómt slikk­eri og gos­drykki - hvað þá heldur hættu­lega orku­drykki eða koff­ín­drykki eins og nú tíðkast en þá voru ekki til. Heilsu­gæslu­stöð var þá ekki til vestur á Ísafirði, en hann Ragnar, heim­il­is­lækn­ir­inn okkar, þurfti mér vit­an­lega aldrei að ráð­leggja for­eldrum mínum eitt né neitt til þess að halda mér burtu frá offitu. Það gerð­ist ein­fald­lega af sjálfu sér – eins og það virð­ist ger­ast af sjálfu sér að börnin á þessum slóðum séu nú orðin í meiri ofþyngd en nokk­urs staðar ann­ars staðar á land­inu. Og í Kveik virt­ist vera að það væri sök heilsu­gæslu­stöðv­ar­innar. Þar þyrfti fleiri starfs­menn: Lík­ams­þjálfa, fæðuspecialista, fjöl­skyldu­ráð­gjafa, mennt­aða fag­menn og fag­konur. Aldeilis hreint ekki neina fitu­smán­ara.

Sjálfsskoðun

Fyrst ég hefi dregið sjálfan mig inn í þessa umræðu er sjálf­sagt að upp­lýsa, að við hjónin eigum fjögur börn. Ekkert þeirra hefur fitu­smánað sig. Og enga aðstoð þurft frá heil­brigð­is­yf­ir­völdum til þess að tryggja að svo sé ekki. Ekkert þeirra og ekk­ert okkar barna­barna hefur þurft að glíma við vanda­mál offitu. Sú hefur hvorki verið okkar reynsla sem for­eldris né þeirra sem barna og barna­barna. Mér þykir það ein­fald­lega vera sjálf­sagt og eðli­legt. Eðlileg afleið­ing af upp­eldi barna. Hvað svo sem nýj­ustu upp­lýs­ingar um mikla fjölgun offeitra barn segja. Segja þær nokkuð annað en nákvæm­lega það?

Ég vil líka fús­lega upp­lýsa, að síðar á ævinni varð ég of þungur. Þegar mið­aldra var orð­inn. All­nokkuð yfir kjör­þyngd. Vinir mínir vöktu m.a. athygli mína á því. Auk auð­vitað fjöl­skyld­unnar. Ofþyngd­inni fylgdu veik­indi, sem mér hefur tek­ist að yfir­stíga. Ofþyngdin hefur líka dalað. Verulega. Hvers vegna? Vegna þess, að ég bar sjálfur ábyrgð á því hvernig komið var. Og ég bar sjálfur og ber ábyrgð á því að hafa tek­ist á við vanda­málið – og náð árangri. Það hefur eng­inn gert fyrir mig. Engin heilsu­gæslu­stöð. Enginn fjöl­skyldu­ráð­gjafi, Enginn nær­ing­ar­fræð­ingur. Enginn opin­ber starfs­maður. For­eldr­arnir öxl­uðu ábyrgð­ina á mér á meðan ég var barn. Sjálfur hef ég þurft að axla ábyrgð­ina síðan. Ég - eins og við öll – veit hver ber ábyrgð­ina. Ég – eins og við öll – veit hvernig á að takast á við vanda­málið. Ég – eins og við öll – veit að orðið „fitu­smánun“ á við þann, sem þannig hefur sjálfur smánað sig en ekki hinn, sem bendir á hvað hefur gerst og hvetur þann, sem ábyrgð­ina ber, til þess að takast á við sitt eigið vanda­mál.

Því það er bara EINN sem ber meg­in­á­byrgð­ina eftir barn­æsk­una. Bara EINN, sem getur tek­ist á við eigið vanda­mál. Vissu­lega getur sá, sem vill, beðið um hjálp. En til þess þarf eigin vilja. Vilja til þess að ná árangri. Sem sá einn getur náð, sem fitu­smán­aði sig sjálfur.

Höfundur er fyrr­ver­andi heil­brigð­is­ráð­herra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár