Varnarsamningurinn 70 ára – Hvernig hefur tekist til?

Ísland hefur að mestu leyti farið vel út úr varn­ar­sam­starfi við Banda­ríkin en að ein­hverju leyti getað haldið betur á málum. Nú þegar aðstæður eru að breyt­ast með auk­inni nær­veru Banda­ríkja­manna er mik­il­vægt að læra af mis­tökum for­tíðar.

Það var snemma morg­uns mánu­dag­inn 7. maí 1951 að fimmtán Douglas C-54 Skymaster-flug­vélar lentu á Kefla­vík­ur­flug­velli með fyrsta hluta varn­ar­liðs­ins, sem þar átti eftir að hafa aðsetur næstu 55 árin. Tveimur dögum áður hafði verið und­ir­rit­aður varn­ar­samn­ingur á milli Banda­ríkj­anna og Íslands. Í inn­gangs­orðum samn­ings­ins er nefnt að Íslend­ingar geti ekki sjálfir varið land sitt sem stefni öryggi þess og nágrönnum í voða. Því hafi Atl­ants­hafs­banda­lagið farið þess á leit við Ísland og Banda­ríkin að þau geri ráð­staf­anir til að látin verði í té aðstaða á Íslandi – til varnar land­inu – og þar með einnig til varnar svæð­inu sem Atl­ants­hafs­sátt­mál­inn til­tekur.

[adspot]

Íslend­ingar voru og eru her­laus þjóð og vildu standa utan hvers­konar hern­aðar og stríðs­á­taka. Stjórn­völd töldu land­inu þó best borgið í vest­rænu varn­ar­sam­starfi svo Ísland hafði verið stofn­að­ili að NATO tveimur árum áður. Hið unga lýð­veldi var undir hand­ar­jaðri vold­ugs vinar í vestri sem hafði stutt dyggi­lega við og verið í for­ystu um að við­ur­kenna Ísland sem sjálf­stætt ríki árið 1944. Ástæða þessa stuðn­ings var ekki ein­göngu góð­vild Banda­ríkja­manna heldur vildu þeir tryggja yfir­ráð sín á Norður-Atl­ants­hafi.

Ísland verði herlaust á friðartímum – sem erfitt var að standa við

Eftir seinni heims­styrj­öld hafði ríkt sam­staða meðal allra flokka um að hér væri ekki erlendur her á frið­ar­tímum og Íslend­ingar hefðu úrslita­vald um hvort þörf væri á her­liði. Hlut­leys­is­stefnan var enn við lýði, eins og sjá mátti þegar Ísland hafn­aði því að verða eitt af stofn­ríkjum Sam­ein­uðu þjóð­anna 1945. Varð ekki ekki aðili þar fyrr en í nóv­em­ber 1946, en ári áður varð Ísland eitt af aðild­ar­ríkjum bæði Alþjóða­bank­ans og Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins. Þróun alþjóða­mála og þörf á erlendri fjár­hags­að­stoð hafði sín áhrif og Ísland varð síðan stofn­að­ili Atl­ants­hafs­banda­lags­ins 1949, þrátt fyrir her­leysið. Þegar Kóreu­stríðið braust út árið 1950 hafði jarð­veg­ur­inn fyrir stað­setn­ingu her­liðs hér verið und­ir­bú­inn og farið var að ræða varn­ar­þarfir Íslands á vett­vangi Atl­ants­hafs­banda­lags­ins.

Varn­ar­samn­ing­ur­inn er gerður þegar kalda stríðið er að skella á af fullum þunga. Áhyggjur margra Íslend­inga beindust að því að með varn­ar­sam­starf­inu væru Íslend­ingar að verða háðir her­veld­inu Banda­ríkj­unum og setja nýfengið sjálf­stæði í hættu. Þessar áhyggjur voru ekki alveg úr lausu lofti gripnar því Banda­ríkin beittu marg­hátt­uðum aðgerðum til að rétta vin­veittum ríkjum hjálp­ar­hönd. M.a. með Marshall-áætl­un­inni, sem Ísland naut góðs af, þótt íslenskur efna­hagur væri langt í frá í rústum eins og víða í Evrópu. Ísland hafði hagn­ast á stríð­inu en glímdi við gjald­eyr­is­þurrð, mikla fábreytni í efna­hags­lífi og skort á innviðum og iðn­væð­ingu.

Íslend­ingum, sama hvar í flokki þeir stóðu, virð­ist hafa verið umhugað um að sem minnst færi fyrir banda­ríska varn­ar­lið­inu. Í samn­ingnum segir það vera háð sam­þykki íslensku rík­is­stjórn­ar­innar hversu margir menn hafi setu á Íslandi og af hvaða þjóð­erni þeir séu. Það orða­lag bendir til að í upp­hafi hafi jafn­vel verið litið til þess að liðs­menn ann­arra banda­lags­ríkja væru hluti varn­ar­liðs­ins. Jafn­framt hefur löngum verið talið að þessi fyr­ir­vari hafi í eðli sínu byggt á kyn­þátta­for­dómum og verið til þess að tryggja að ekki kæmu hingað varn­ar­liðs­menn sem væru dökkir á hör­und. Má nærri geta að fyr­ir­staðan hafi því ekki ein­göngu verið vegna hern­að­ar­brölts heldur vegna ótta við erlend áhrif á hina litlu ber­skjöld­uðu þjóð.

Vilji íslenskra stjórn­valda stóð til þess að Íslend­ingar tækju að sér varn­irnar, en frekar fljótt varð ljóst að varn­ar­þarf­irnar voru umfangs­meiri en svo að Íslend­ingar einir gætu leyst það verk­efni. Eftir að vinstri stjórn tók við völdum árið 1956 fóru fram við­ræður um end­ur­skoðum varn­ar­samn­ings­ins á þá lund að banda­rískt her­lið hyrfi frá land­inu. Þeim var hins vegar fljót­lega hætt, að sögn stjórn­valda, vegna ótryggs ástands í heim­inum. Þar komu til, auk átaka í Asíu, inn­rás Sov­ét­manna í Ung­verja­land og Súez-deilan. Því fékk banda­rískt varn­ar­lið fasta við­veru næstu ára­tugi og þegar mest var dvöldu hér meira en 7000 manns, varn­ar­liðs­menn og fjöl­skyldur þeirra.

Þrískipt afstaða Íslendinga

Íslensk þjóð hefur frá upp­hafi verið býsna klofin í afstöðu sinni gagn­vart veru banda­rísks her­liðs á Íslandi og varn­ar­sam­starf­inu við Banda­ríkin. Til að skýra póli­tískar línur í meg­in­at­riðum þá hafa Sjálf­stæðis- Fram­sóknar- og Alþýðu­flokkur ein­dregið stutt sam­starfið og Sam­fylk­ingin sömu­leiðis eftir að hún kom til. Vinstri­flokkar eins og Sós­í­alista­flokkur, Alþýðu­banda­lag og Vinstri græn hafa jafnan verið á móti. En þarna eru líka ýmis grá svæði. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn leiddi þannig í tvígang rík­is­stjórn sem hafði að mark­miði upp­sögn varn­ar­samn­ings­ins og Alþýðu­banda­lagið sat í rík­is­stjórnum í þrí­gang sem gerðu ekki ráð fyrir að hrófla við varn­ar­samn­ingnum. Andstöðu gætti því að ein­hverju marki í öllum flokkum, en minnst í Sjálf­stæð­is­flokki og Alþýðu­flokki.

Til að skil­greina almenna afstöðu Íslend­inga til þess­ara mála má skipta henni í þrennt og fellur hún að ein­hverju leyti að þessum póli­tísku línum – þó málið sé ögn flókn­ara.

[adspot]

Í fyrsta hópnum má telja þá sem studdu vest­ræna varn­ar­sam­vinnu en töldu að Íslend­ingar gerðu sitt með því að leggja til land undir varn­ar­starf­sem­ina. Í þessum hópi gætti þess að litið væri á Banda­ríkja­menn sem eins­konar mála­liða sem höfðu tekið að sér varnir lands­ins og að þeir ættu að sinna þeim og láta sem minnst fyrir sér fara að öðru leyti. Í öðrum hópnum má telja þá sem studdu sam­starfið en vildu sjá Íslend­inga leggja meira af mörkum svo þeir væru ekki ein­göngu þiggj­endur. Ísland ætti þannig t.d. að leggja sjálf­stætt mat á varn­ar­þörf og rök­ræða við­bún­að­ar­stig og umfang varn­ar­við­bún­að­ar­ins á efn­is­legum for­sendum. Í þeim þriðja voru svo þeir sem voru á móti varn­ar­sam­starfi, hvaða nafni sem það nefnd­ist, hvort sem það var tví­hliða við Banda­ríkin eða á vett­vangi NATO.

Meðal slíkra her­stöðv­ar­and­stæð­inga var mjög algengt við­horf að líta almennt niður á umræður um öryggis- og varn­ar­mál, hæð­ast að til­raunum íslenskra stjórn­valda til að taka af alvöru þátt í slíku og afgreiða sem byssu- eða stríðs­leiki. Fyrir vikið áttu fyrsti hóp­ur­inn og sá þriðji það sam­eig­in­legt að hafa engan áhuga á upp­bygg­ingu á þekk­ingu og getu inn­an­lands til að greina ógnir og mögu­leg við­brögð.

Efnahagslegur ábati yfirskyggði varnarmálin

Í upp­hafi, í orði kveðnu í það minnsta, var varn­ar­samn­ingur með við­veru banda­rísks her­liðs rétt­lættur vegna þess ótrygga ástands sem ríkti í heim­inum á sjötta ára­tugnum. Þegar fram í sótti varð hins vegar efna­hags­legt mik­il­vægi varn­ar­stöðv­ar­innar sífellt fyr­ir­ferð­ar­meira. Í fábrotnu efna­hags­lífi varð her­stöðin og þau umsvif sem henni fylgdu fljótt mik­il­væg stoð á lands­vísu, en sér­stak­lega á Suð­ur­nesjum þar sem þús­undir byggðu afkomu sína á varn­ar­stöð­inni. Varn­ar­stöðin var í reynd eitt stærsta sveit­ar­fé­lag Suð­ur­nesja og umsvif varn­ar­liðs­ins áttu ríkan þátt í upp­bygg­ingu almanna­þjón­ustu eins og veitu­þjón­ustu, á heitu og köldu vatni og frá­rennsli – og sorp­hirðu. Sorp­brennslan á Suð­ur­nesjum er lík­lega ein síð­asta slík fram­kvæmd sem Banda­ríkin tóku veru­legan þátt í hvað varðar kostnað.

Strax í upp­hafi skiptu Sjálf­stæð­is­flokkur og Fram­sókn­ar­flokkur með sér einka­rétti á verk­töku og annarri þjón­ustu við varn­ar­liðið. Einka­rétt­ar­fyr­ir­tækin gátu sett upp það verð sem þeim þókn­að­ist án nokk­urrar sam­keppni og varn­ar­liðið var skuld­bundið til að greiða. Ótrúlegt má telja að þetta fyr­ir­komu­lag hafi haldið velli allt fram til árs­ins 2001. Þegar á leið má segja að margir hafi í raun misst sjónar á raun­veru­legum til­gangi varn­ar­sam­starfs­ins og farið að líta á það sem mjólk­urkú í ann­ars ein­hæfu efna­hags­lífi.

Þetta ástand lit­aði mjög afstöðu íslenskra stjórn­mála­manna og þ.a.l. aðkomu stjórn­valda að varn­ar­sam­starf­inu. Umræða um öryggis- og varn­ar­mál færð­ist enn frekar ofan í skot­graf­irnar og hindr­aði nauð­syn­lega póli­tíska umfjöllun og stefnu­mörkun þar sem byggt væri á mati á ógnum við öryggi – í stað hins efna­hags­lega ábata.

Brottför varnarliðsins frá Keflavík

Stra­tegískt mik­il­vægi varn­ar­stöðv­ar­innar var mest í upp­hafi. Varn­ar­skuld­bind­ingar Banda­ríkj­anna gagn­vart ríkjum Evrópu voru á þeim tíma orðin tóm ef ekki var hægt að flytja lið og vopn yfir Atl­ants­hafið með skjótum hætti og milli­lend­ingar í Keflavík voru mik­il­vægar. Um miðjan sjötta ára­tug­inn var t.d. rætt í alvöru um gerð vara­flug­vallar á Rang­ár­völlum. En með til­komu lang­drægra eld­flauga um 1960 dró strax úr þessu mik­il­vægi.

Þegar Banda­ríkja­menn vildu draga úr umsvifum hér strax árið 1961 og kalla sveit orr­ustuflug­véla til ann­arra verk­efna lögð­ust Íslend­ingar gegn því. Banda­ríkja­menn héldu þó áfram að knýja á um brott­flutn­ing sveit­ar­innar fram eftir sjö­unda ára­tugnum en hættu því eftir að íslensk stjórn­völd hót­uðu að segja upp varn­ar­samn­ingnum.

Þegar kalda stríðið harðn­aði á ný á níunda ára­tugnum kom enn að auk­inni fjár­fest­ingu og upp­bygg­ingu varn­ar­við­bún­aðar. Þá voru t.d. rat­sjár­stöðvar reistar á öllum lands­hornum og tengdar með ljós­leið­ara (sem vel að merkja hefur nýst íslensku sam­fé­lagi gríð­ar­lega vel til teng­ingar).

Eftir lok kalda stríðs­ins var það mat Banda­ríkj­anna að ekki væri þörf fyrir sam­bæri­legan varn­ar­við­búnað hér á landi og verið hafði fram að því. Ára­tuga­gam­alt fyr­ir­komu­lag úthlut­unar allrar þjón­ustu til póli­tískt val­inna fyr­ir­tækja var þeim líka þyrnir í augum, enda var þeim ókleift að bjóða út nokk­urt verk eða þjón­ustu á frjálsum mark­aði. Þeir sóttu því líka fast að Ísland tæki þátt í þeim mikla kostn­aði sem fólst í rekstri þess­arar stóru her­stöðvar.

Og vissu­lega kall­aði varn­ar­þörf ekki lengur á mik­inn við­búnað í Keflavík. Þá hófst loka­þátt­ur­inn í þess­ari löngu sögu, þegar Ísland reyndi með öllum ráðum að halda í starf­semi varn­ar­stöðv­ar­innar og forða of miklum sam­drætti, á sama tíma og Banda­ríkin reyndu að draga saman og spara. Orr­ustu­þot­urnar 16 urðu fljótt tákn­mynd tog­streitu ríkj­anna.

Sterk­ustu rök Íslands fyrir því að ekki væri hægt að hætta við­veru flug­sveit­ar­innar voru þau að þörf væri á að verja loft­rými allra aðild­ar­ríkja Atl­ants­hafs­banda­lags­ins. Að baki lá á hinn bóg­inn sú stað­reynd að færu þot­urnar færi þyrlu­björg­un­ar­sveitin með fjórum þyrlum einnig. Íslend­ingar höfðu um ára­tugi notið gríð­ar­legs öryggis af þjón­ustu björg­un­ar­þyrlu­sveit­ar­innar og lengst af ekki átt neinar þyrlur með sam­bæri­lega getu. Þá myndi brott­för þot­anna og þyrl­anna jafn­framt þýða að umsvif á Kefla­vík­ur­flug­velli drægjust enn frekar saman, enda yrðu þá ekki for­sendur fyrir margs­konar stoð­þjón­ustu sem þá var til staðar. Banda­ríkja­menn töldu hins vegar – með gildum rökum – engin her­fræði­leg rök fyrir að halda hér úti sveit af orr­ustu­þotum fyrir um 200 millj­ónir doll­ara á ári.

Varn­ar­sigur náð­ist frá íslenskum sjón­ar­hóli árið 1994 þegar kveðið var á um að á Íslandi yrðu á hverjum tíma að lág­marki fjórar orr­ustu­þotur. Talsverð óvissa ríkti samt áfram um fram­tíð flug­sveit­ar­innar, enda sam­komu­lagið frá 1994 tíma­bundið.

Eftir árás­irnar á tví­bura­t­urn­ana 2001 breytt­ist hættu­mat Banda­ríkj­anna mjög og varð ljóst að Banda­ríkin sjálf voru í meiri þörf fyrir loft­varnir en Ísland. Afstaða Íslands var hins vegar óbreytt, en rök fyrir henni urðu sífellt vand­fundn­ari eftir því sem tím­inn leið. Banda­ríkja­menn til­kynntu brott­för flug­hers­ins ein­hliða árið 2003 en íslensk stjórn­völd lögðu mikla áherslu á að hér yrðu áfram sýni­legar varnir, þ.e. orr­ustu­þotur.

[adspot]

Árið 2004, tveimur árum áður en varn­ar­stöð­inni var lokað, fund­aði Davíð Oddsson þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra með bæði George Bush Banda­ríkja­for­seta og Colin Powell utan­rík­is­ráð­herra. Eftir þá fundi kvaðst Davíð bjart­sýnn á að varn­ar­liðið yrði áfram hér á landi. Virtust íslensk stjórn­völd meta það svo að orð Bush for­seta dygðu ein og sér. Þau dugðu um stund, en íslensk stjórn­völd van­mátu þá miklu hags­muni og sterku rök sem voru fyrir því að draga saman í rekstr­inum í Keflavík. Flotinn fór með yfir­stjórn í Keflavík og var jákvæð­ari gagn­vart Íslend­ingum en flug­her­inn, sem taldi meiri þörf fyrir þot­urnar ann­ars staðar en á Íslandi. Með áþekkum hætti var banda­ríska utan­rík­is­ráðu­neytið jákvæð­ara gagn­vart Íslend­ingum en varn­ar­mála­ráðu­neytið, sem horfði á málin út frá hreinum varn­ar­þörfum.

Í samn­inga­við­ræð­unum sem í hönd fóru ofmátu íslensk stjórn­völd því samn­ings­stöðu sína og lýstu sig ekki til við­ræðu um að mæta kröfum Banda­ríkja­manna. Innan banda­ríska stjórn­kerf­is­ins mynd­að­ist þá sam­staða um að eina leiðin væri sú að loka alfarið á Íslandi. Það kom mjög flatt upp á íslenska ráða­menn þegar Banda­ríkja­menn til­kynntu ein­hliða um brott­för varn­ar­liðs­ins árið 2006. Slík var þá óvissan hjá íslenskum stjórn­völdum og sam­bands­leysið við Banda­ríkin að þau voru lengi í óvissu um hvort varn­ar­liðið yrði allt kallað heim. Varð ekki full­ljóst fyrr en í lok sum­ars 2006 að Banda­ríkja­menn myndu draga allt liðið frá Íslandi í lok sept­em­ber sama ár.

Leynisamningar – brot á landslögum og stjórnarskrá?

Meðferð stjórn­valda í öllum lýð­ræð­is­ríkjum á öryggis- og varn­ar­málum er eðli máls sam­kvæmt oft sveipuð ákveð­inni leynd. Meg­in­stefnan er opin­ber, en margt er leyni­legt og slíkt átti við um við­bún­að­inn hér á Íslandi – varn­ar­samn­ing­inn og varn­ar­sam­starfið. Ein ástæðan var áreið­an­lega ágrein­ing­ur­inn um sam­starfið og sú til­finn­ing stuðn­ings­flokka þess að öðrum væri ekki treystandi fyrir upp­lýs­ingum. Þetta er t.d. talin ein skýr­ing þess að utan­rík­is­ráð­herra, sem er í reynd varn­ar­mála­ráð­herra Íslands, hefur aldrei verið úr and­stöðu­flokki eins og VG eða for­vera þess Alþýðu­banda­lag­inu.

Þegar varn­ar­samn­ing­ur­inn var kynntur árið 1951 var gengið óform­lega úr skugga um að form­legur þing­meiri­hluti væri fyrir sam­þykki á Alþingi. Samn­ing­ur­inn var und­ir­rit­aður með leynd og þjóð­inni til­kynnt um það sama dag og fyrstu varn­ar­liðs­menn­irnir lentu á Kefla­vík­ur­flug­velli tveimur dögum síðar. Síðar kom í ljós að á bak við hinn frekar ein­falda og skýra samn­ing, þar sem fullt jafn­ræði var með ríkj­unum, voru gerðir leyni­samn­ingar sem færðu Banda­ríkja­mönnum rík­ari heim­ildir en þær sem til­teknar voru í samn­ingnum.

Því hefur verið haldið fram að við­auk­arnir hafi gengið gegn 21. grein stjórn­ar­skrár­innar og íslenskum lögum. Einnig má rök­styðja að þeir hafi rýrt samn­ings­stöðu Íslend­inga þegar end­ur­semja þurfti vegna brott­farar Varn­ar­liðs­ins árið 2006. Með leyni­við­auk­unum sömdu íslensk stjórn­völd til dæmis um heim­ildir Banda­ríkja­manna til að taka yfir stjórn almennrar flug­starf­semi, um að Íslend­ingar myndu ekki nýta sér for­rétt til lög­sögu nema í sér­stökum til­vikum og að Banda­ríkja­mönnum væri ekki skylt að skilja við varn­ar­svæðin í sama ástandi og þeir tóku við þeim.

Það er athygl­is­vert að sam­komu­lag um við­auka við varn­ar­samn­ing­inn sem gert var við Banda­ríkja­menn árið 2006 vekur líka spurn­ingar um sam­rým­an­leika við íslensk lög og stjórn­ar­skrá. Má þar nefna ákvæði um tak­mörkun á refsi­lög­sögu íslenska rík­is­ins auk þess sem Banda­ríkja­mönnum er veitt vald til að taka yfir stjórn borg­ara­legrar flug­starf­semi þegar hern­að­ar­legar aðstæður krefj­ast þess. Er mat á því hvenær slíkt sé fyrir hendi alfarið Banda­ríkja­manna, þrátt fyrir að um samn­ing milli tveggja full­valda ríkja sé að ræða.

Óljós markmið Íslendinga hafa skaðað varnarsamstarfið

Sú stefnu­lausa og óskýra afstaða Íslend­inga til varn­ar­sam­starfs­ins við Banda­ríkin, sem fyrr var vikið að, hefur verið óheppi­leg. Ekki vegna þess að Íslend­ingar geti ekki komið sér saman um að hafa hér her­lið og taka þátt í varn­ar­banda­lagi byggt á her­vörnum – þar eru ólík sjón­ar­mið full­kom­lega eðli­leg. Vanda­málið er að þær for­sendur sem afstaðan byggir á eru oftar enn ekki eitt­hvað annað en hug­mynda­fræði­leg sjón­ar­mið eða fag­legur örygg­is­fræði­legur grunnur. Vegna þessa ástands töldu t.d. ein­dregnir stuðn­ings­menn varn­ar­sam­starfs­ins sig í raun hafa einka­rétt á umfjöllun og með­höndlun mála­flokks­ins – „óábyrgir“ vinstri­menn væru í raun ekki hæfir til þess. Hinir „óábyrgu“ vinstri­menn skil­uðu svo lengst af auðu í efn­is­legri umræðu um varn­ar­þarfir og örygg­is­mál og hlógu umræður um slíkt út af borð­inu.

Banda­ríkja­menn hafa jafnan litið á Íslend­inga sem tryggan banda­mann en Íslend­ingar komu á stundum fram sem for­dekrað ung­menni sem hefur búið of lengi í góðu yfir­læti í for­eldra­húsum. Fjölda­mörg dæmi eru um að íslensk stjórn­völd hafi spennt bog­ann til hins ítrasta í samn­ingum við Banda­ríkin og lengst af gekk það upp því hags­munir Banda­ríkj­anna af til­vist varn­ar­stöðv­ar­innar voru það miklir. Lengi var því gengið út frá því sem vísu að Banda­ríkja­menn myndu taka ákvarð­anir til hags­bóta fyrir Íslend­inga á grunni ein­hvers­konar sér­staks sam­bands, sem reynd­ist á end­anum ímyndun. Öll ríki taka ákvarð­anir á grund­velli hags­muna og þar eru Banda­ríkin sann­ar­lega engin und­an­tekn­ing.

Allt þetta hefur valdið því að umræða og fag­legt mat á örygg­is­fræði­legum for­sendum sat lengi á hak­anum. Það kom í veg fyrir að hér byggð­ist upp grunnur þekk­ingar fyrir póli­tíska stefnu­mótun í öryggis- og varn­ar­málum Íslend­inga. Með breyttri stöðu í kjöl­far brott­farar varn­ar­liðs­ins 2006 var Íslandi þó nauð­ugur sá kostur að taka til hend­inni í inn­lendri stefnu­mörkun varn­ar­mála og gagn­vart Atl­ants­hafs­banda­lag­inu.

Strax árið 2007 var á vett­vangi NATO samið um reglu­bundna loft­rým­is­gæslu. Við Banda­ríkin var samið um yfir­töku rekst­urs Rat­sjár­stofn­unar, sam­þykkt sér­stök Varn­ar­mála­lög og með þeim sett á lagg­irnar sér­stök Varn­ar­mála­stofnun. Hug­myndin að baki stofnun hennar var einmitt að gera umsýslu öryggis- og varn­ar­mála fag­legri og forða þeim frá því að verða póli­tískt bit­bein. Stofn­unin varð þó skamm­líf og var lögð niður í póli­tískum hrossa­kaupum vinstri stjórn­ar­innar eftir banka­hrunið að kröfu Vinstri grænna. Þar birt­ist enn sú afstaða íslenskra her­stöðvaand­stæð­inga að líta niður á efn­is­lega umræðu og fag­lega stefnu­mörkun á sviði öryggis- og varn­ar­mála. Varn­ar­mála­stofnun var því í reynd fórnað fyrir stuðn­ing VG við aðild­ar­um­sókn að ESB.

[adspot]

Hér er rétt að taka fram að sam­þykkt fyrstu þjóðar­ör­ygg­is­stefn­unnar fyrir Ísland á Alþingi 2016 hefur haft veru­leg áhrif til bóta í hinu póli­tíska lands­lagi og veitt rými til mun fag­legri nálg­unar á öryggis- og varn­ar­mál. Hvort það rými hefur verið nægi­lega vel nýtt er annað mál. Þjóðar­ör­ygg­is­stefnan hefur að auki gefið flokki eins og Vinstri grænum ákveðna flótta­leið frá yfir­lýstri stefnu um „Ísland úr NATO“. Án þjóðar­ör­ygg­is­stefn­unnar er vand­séð hvernig VG hefði getað rétt­lætt að leiða rík­is­stjórn sem styður í orði og á borði aðild­ina að NATO, aukin umsvif þess – og Banda­ríkj­anna sér­stak­lega – á Kefla­vík­ur­flug­velli.

Þarf að endurskoða varnarsamninginn?

Síðan varn­ar­samn­ing­ur­inn var und­ir­rit­aður fyrir 70 árum hafa orðið miklar breyt­ingar í heim­inum sem kallað hafa á nýja nálgun í öryggis- og varn­ar­málum. Nú steðja að ógnir þar sem hefð­bundnar her­varnir koma að tak­mörk­uðu gagni, fjöl­þátta- og sam­fé­lags­legar ógnir sem varða umhverfi, efna­hag, inter­net ofl. Að sama skapi er Ísland nú efnað nútíma­legt ríki sem er gjör­ó­líkt því unga og van­þró­aða sem gekk til samn­inga við Banda­ríkin á sínum tíma. Því kunna margir að spyrja hvort ekki sé kom­inn tími til að fram fari heild­ar­end­ur­skoðun á varn­ar­samn­ingnum til að mæta þessum nýja raun­veru­leika.

Þarna þarf að hafa í huga að sam­hliða varn­ar­samn­ingnum er Ísland í NATO og þar hefur mikil þróun átt sér stað í sam­ræmi við áður­nefndar breyt­ingar á örygg­is­málum. NATO er vissu­lega undir for­ystu Banda­ríkja­manna, en hefur skýran stofn­ana­legan ramma – nokkuð sem ætíð er smá­ríkjum eins og Íslandi í hag. Þar er því rými og eft­ir­spurn eftir rödd hins her­lausa Íslands sem kemur nú að NATO sam­starf­inu með mun virk­ari hætti en áður þegar nán­ast alfarið var haldið í hönd­ina á Banda­ríkj­unum. Auk þess sem ný skref hafa verið tekin í átt til nán­ara örygg­is­mála­sam­starfs Norð­ur­land­anna og nú nýverið með þátt­töku í sam­starfi með Bretum.

Þegar Banda­ríkja­menn lögðu niður starf­semi á Kefla­vík­ur­flug­velli árið 2006 var gert sam­komu­lag í átta tölu­settum liðum til að treysta sam­eig­in­legar skuld­bind­ingar land­anna tveggja varð­andi fram­kvæmd varn­ar­samn­ings­ins frá 1951. Sam­komu­lagið lýtur einnig að fyr­ir­komu­lagi vegna varn­ar­mann­virkja Atl­ants­hafs­banda­lags­ins á Íslandi og atriðum sem rúm­ast innan ramma varn­ar­mála­sam­starfs ríkj­anna. Samkvæmt svörum frá utan­rík­is­ráðu­neyt­inu má almennt segja að útfærsla flestra þess­ara atriða hafi orðið eins að var stefnt. Þetta sam­komu­lag var síðan upp­fært árið 2016 í ljósi þeirra breyt­inga sem hafa átt sér stað og nefndar hafa verið.

Þó finna megi ann­marka á hinum sjö­tíu ára gamla samn­ingi, við til­urð hans og leyni­við­bætur sem kunna að orka tví­mælis, verður að hafa eitt í huga: Banda­ríkja­menn gerðu varn­ar­samn­ing­inn í krafti laga um stríðs­yf­ir­lýs­ingu við Þýska­land sem gaf Banda­ríkja­for­seta mjög rúmar heim­ildir þings­ins til þess sem þurfa þótti – þar á meðal til þess konar samn­ings við Ísland sem ólík­lega feng­ist frá Banda­ríkja­þingi í dag. Í hinum gamla samn­ingi, með nauð­syn­legum upp­færslum og við­bótum, kann því að fel­ast ávinn­ingur fyrir Ísland til lengri tíma litið.

Aukin viðvera Bandaríkjamanna – hvað getum við lært?

Vegna auk­inna umsvifa Rússa á haf­svæðum norður og austur af Íslandi, m.a. auk­innar umferðar kaf­báta, hafa Banda­ríkja­menn talið ástæðu til að efla starf­semi á Kefla­vík­ur­flug­velli. Þeir tóku nýverið í notkun nýja gerð kaf­báta­leit­ar­véla og hefur aðstaða á örygg­is­svæð­inu sem þar var haldið eftir verið upp­færð til að þær geti athafnað sig. Und­an­d­an­farið hefur starf­semi Banda­ríkja­manna á Kefla­vík­ur­flug­velli því auk­ist umtals­vert og má segja að þeir hafi þar í reynd nán­ast orðið fasta við­veru.

Hvort þar verði aukn­ing á er ekki hægt að segja með vissu. Hins vegar er mik­il­vægt að Íslend­ingar læri af þeim mis­tökum sem gerð voru í sam­skiptum við Banda­ríkja­menn eins og rakið hefur verið hér að framan. Ef þar hefði verið byggt á raun­sæju inn­lendu áhættu­mati og ein­blínt á það sem máli skipti hefðu Íslend­ingar tryggt örygg­is­hags­muni sína mun betur. Með óraun­hæfum kröfum mál­uðu Íslend­ingar sig út í horn og gáfu Banda­ríkja­mönnum, sem höfðu litlar áhyggjur af öryggi á N-Atl­ants­hafi þá stund­ina, í raun kost á að láta sig hverfa á eigin for­sendum án til­lits til lang­tíma­hags­muna Íslands.

Sá lær­dómur sem draga má af sög­unni er hversu mik­il­vægt er að treysta og efla hinn fag­lega grunn undir stefnu­mörkun í öryggis- og varn­ar­málum og koma fram í tví­hliða sam­starfi af heil­indum og setja fram afstöðu á efn­is­legum og fag­legum for­sendum. Hvað sem öðru líður er áfram­hald­andi verk­efni stjórn­valda að vinna að upp­bygg­ingu fag­legrar þekk­ingar og umsýslu öryggis- og varn­ar­mála innan íslenskrar stjórn­sýslu. Þrátt fyrir að breyt­ingar á fram­kvæmd þeirra í kjöl­far hruns­ins hafi byggt, eins og áður segir, á póli­tískum hrossa­kaupum hefur hún virst nokkuð stöðug og far­sæl með póli­tíska ábyrgð í utan­rík­is­ráðu­neyt­inu og fram­kvæmd­ina fyrst og fremst hjá Land­helg­is­gæsl­unni.

[adspot]

Það fyr­ir­komu­lag er þó ekki óum­deilt, eða endi­lega heppi­legt, eins og Ingi­björg Sólrún Gísla­dóttir, þáver­andi utan­rík­is­ráð­herra, komst að orði í ræðu sinni 17. jan­úar 2008 er hún mælti fyrir nýjum varn­ar­mála­lögum á Alþingi:

„Af virð­ingu fyrir réttar­ör­yggi borg­ar­anna ber ekki að blanda saman borg­ara­legum verk­efnum og störfum að land­vörnum og er það sjón­ar­mið við­ur­kennt hvar­vetna í okkar heims­hluta og þeim stjórn­völdum sem fara með lög­gæslu og inn­an­rík­is­mál­efni eru ekki falin verk­efni er lúta að gæslu ytra öryggis ríkja. Með skýrum aðskiln­aði er lýð­ræð­is­legt eft­ir­lit með þess­ari starf­semi auð­veldað og nauð­syn­legt gagn­sæi tryggt í fram­kvæmd varn­ar­tengdra verk­efna.“

Með þetta í huga má halda upp á 70 ára afmæli varn­ar­samn­ings­ins og að mestu far­sælt varn­ar­sam­starf Íslands og Banda­ríkj­anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár