Bjarni: Sveiflujöfnunin öflugri hér en í ríkjum þar sem björgunarpakkarnir eru stærri

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra segir að þegar verið sé að bera saman stærð­argráðu efna­hags­við­bragða hér á landi við útlönd þurfi að horfa til þess að Ísland hafi öfl­ugri sveiflu­jafn­ara í félags­legu kerf­unum en mörg önnur ríki.

Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra.
Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

„Á örskots­stundu, í raun og veru, hefur allt okkar ytra umhverfi breyst,“ sagði Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála og efna­hags­ráð­herra, á streym­is­fundi Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Suð­vest­ur­kjör­dæmi á Facebook í dag, þar sem hann ræddi um við­brögð rík­is­stjórn­ar­innar við heims­far­aldr­inum og svar­aði spurn­ingum þeirra sem fylgd­ust með fund­inum.

Bjarni vék sér­stak­lega að því, í ávarpi sínu á fund­inum, að þegar verið væri að bera saman stærð­argráðu efna­hags­við­bragð­anna hér á landi við önnur ríki, þyrfti að horfa til þess að Ísland hefði öfl­ugri sveiflu­jafn­ara í félags­legu kerf­unum en mörg önnur ríki.

Stjórn­ar­and­staðan hefur ítrekað sagt að meira þurfi að koma til í beinum fjár­út­látum úr rík­is­sjóði til þess að mæta afleið­ingum far­ald­urs­ins. Það gerði til dæmis Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir for­maður Við­reisnar í aðsendri grein í Morg­un­blað­inu í dag, þar sem hún sagði efna­hags­lega höggið vera án allra for­dæma og aðgerðir stjórn­valda þyrftu að vera í sam­ræmi við það.

„Því miður gefa fyrstu við­brögð stjórn­valda ekki til kynna að sú verði raun­in. Rík­is­stjórn­in kynnti á dög­un­um aðgerðir upp á 230 millj­arða króna. Þótt rík­is­stjórn­in kysi að kalla þetta um­fangs­mestu efna­hags­að­gerðir sög­unn­ar blas­ir við að þær eru t.d. mun minni að um­fangi en efna­hags­að­gerðir stjórn­valda eft­ir hrun. Íslensk stjórn­völd eru líka aðeins hálf­drætt­ing­ar á við ná­granna­lönd okk­ar þegar kem­ur að fyrstu aðgerðum,“ skrif­aði Þor­gerður Katrín, en hið sama var dregið fram í úttekt sem birt­ist á vef Stund­ar­innar í gær.

Bjarna virt­ist í mun um að svara þess­ari gagn­rýni á raf­rænum fundi sínum með flokks­mönnum og öðrum áhorf­endum, sem hófst kl. 12 á hádegi, og sagði að á Íslandi væru félags­legu kerfin þannig upp­byggð að þau stæðu sterk þrátt fyrir „svona ágjöf“ eins og við upp­lifum nú.

„Með þessu er ég að benda á að þegar menn eru að reyna að leggja mælistiku á umfang aðgerða rík­is­stjórn­ar­innar verður auð­vitað ekki horft fram­hjá því að við leyfum tekju­fall­inu bara að eiga sér stað, við tökum á okkur hall­ann og hann verður veru­legur og það þarf bein­línis að breyta lögum og gera miklar ráð­staf­anir til að það verði eitt­hvað öðru­vísi,“ sagði fjár­mála­ráð­herra.

„Næstu aðgerðir“ þurfi að taka til nýsköpunarfyrirtækja

Fjár­mála­ráð­herra ræddi aðeins um frek­ari aðgerðir sem rík­is­stjórnin væri að velta fyrir sér að grípa til í því skyni að bregð­ast við stöð­unni í efna­hags­málum. Hann sagði stöðu ein­yrkja á borð við hár­greiðslu­fólks vera áhyggju­efni og einnig sagð­ist hann telja að í næstu aðgerðum rík­is­stjórn­ar­innar þyrfti sér­stak­lega að huga að því að hjálpa fyr­ir­tækjum sem fást við rann­sóknir og nýsköpun.

„Slík fyr­ir­tæki eru ekki und­an­skilin því að finna fyrir áhrif­unum af því sem er að ger­ast og ég held að í næstu aðgerðum okkar verðum við að horfa þess vegna sér­stak­lega til þeirra. Ég held að við höfum saman gríð­ar­lega mikla hags­muni af því að það mik­il­væga starf sem fer fram á land­inu í alls konar frum­kvöðla­starf­semi, það haldi áfram og haldi ekki bara áfram heldur jafn­vel fái auk­inn kraft, við þessar aðstæður,“ sagði Bjarni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár