Ánægja með áramótaskaupið ekki mælst minni síðan 2014

Kjós­endum Sjálf­stæð­is­flokks, Mið­flokks og Sós­í­alista­flokks fannst skaupið minnst fyndið en kjós­endur Vinstri grænna, Sam­fylk­ingar og Pírata hlógu mest. Ánægja með skaupið hrundi milli ára úr 85 í 45 pró­sent.

Alls sögð­ust 45 pró­sent lands­manna vera ánægðir með ára­mótaskaup Rík­is­út­varps­ins vegna árs­ins 2021 sem sýnt var að venju á gamlárs­kvöld, sam­kvæmt könnun Maskínu.

Það er mik­ill sam­dráttur á ánægju með skaupið frá fyrra ári en ára­mótaskaupið 2020 mæld­ist það besta í ára­tug og sögð­ust 85 pró­sent aðspurðra þá að þeim hefði fund­ist það gott. Ánægja með ára­mótaskaupið hefur ekki mælst minni frá árinu 2014 og ein­ungis tvisvar síðan árið 2011. Á árunum 2015 til 2020 sögð­ust á bil­inu 62 til 85 pró­sent hafa verið ánægð með skaupið.

Munur á afstöðu eftir stjórnmálaskoðunum

Mark­tækur munur er á afstöðu fólks til skaups­ins eftir stjórn­mála­skoð­unum. Kjós­endum Sós­í­alista­flokks­ins, Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Mið­flokks­ins voru lík­leg­astir til að finn­ast það ekki gott og kjós­endur Fram­sókn­ar­flokks­ins voru ekki langt undan. Kjós­endur Við­reisnar og Flokks fólks­ins voru við með­a­tal þegar kom að afstöðu til gæða skaups­ins.

[adspot]Það virð­ist hins vegar hafa ríkt almennt meiri ánægja með skaupið frá miðju til vinstri í íslenskum stjórn­málum þar sem kjós­endur Vinstri grænna hlógu allra mest af upp­gjöri árs­ins 2021. Alls sögð­ust yfir 60 pró­sent þeirra hafa verið ánægðir með ára­mótaskaupið. Kjós­endur Sam­fylk­ingar og Pírata voru ekki langt undan þegar kom að því að finn­ast skaupið gott.

Konur hlógu meira en karlar

Þá virð­ist skaupið hafa náð betur til þeirra sem eru með hæstu launin en þeirra sem þiggja þau lægstu. Hjá efsta tekju­hópnum, þeim sem eru með 1,2 millj­ónir krónur á mán­uði í heim­il­is­tekjur eða meira, sagð­ist um helm­ingur að þeim hafi þótt ára­mótaskaupið gott en hjá lægstu tekju­hóp­unum, þeim sem eru með minna en 400 þús­und krónur eða á milli 400 og 549 þús­und krónur í mán­að­ar­tekjur, mæld­ist ánægjan um og rétt yfir 40 pró­sent.

Þá jókst ánægjan með skaupið sam­hliða auk­inni menntun aðspurðra. Hjá þeim sem lokið hafa fram­halds­námi í háskóla mæld­ist ánægjan með ára­mótaskaupið tæp 58 pró­sent en hjá þeim sem hafa lokið mest grunn­skóla­prófi mæld­ist hún 40 pró­sent. Þá fannst konum skaupið mark­tækt fyndn­ara en körlum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár