Sagnfræðingur, stjórnmálamaður, rekstrarhagfræðingur og rithöfundur

Að öllum lík­indum munu fjórir fram­bjóð­endur berj­ast um Bessa­staði. Stjórn­mála­mað­ur­inn Ólafur Ragnar, sagn­fræð­ing­ur­inn Guðni Th., rit­höf­und­ur­inn Andri Snær og rekstr­ar­hag­fræð­ing­ur­inn Halla mæl­ast með mest fylgi. Guðni til­kynnir fram­boð sitt í dag.

Andri Snær Magnason, Guðni Th. Jóhannesson, Halla Tómasdóttir og Ólafur Ragnar Grímsson hafa mælst með mest fylgi í könnunum undanfarið.
Andri Snær Magnason, Guðni Th. Jóhann­es­son, Halla Tóm­as­dóttir og Ólafur Ragnar Grímsson hafa mælst með mest fylgi í könn­unum und­an­farið.

Guðni Th. Jóhann­es­son sagn­fræð­ingur ætlar að bjóða sig fram til for­seta Íslands. Hann til­kynnir fram­boð sitt í Salnum í Kópavogi í dag, upp­stign­ing­ar­dag. Guðni ætlar að etja kappi við sitj­andi for­seta, þó að hann hafi áður sagt að „sitj­andi for­seti vinni alltaf”. En það var áður en honum datt í hug að hann sjálfur ætti mögu­leika á að fella hann.

Nú eru þrettán manns í fram­boði til for­seta Íslands, að sitj­andi for­seta, Ólafi Ragnari Gríms­syni, með­töldum. Samkvæmt nýj­ustu skoð­ana­könn­unum eru fjórir með mest fylgi: Ólafur, Guðni, Halla Tóm­as­dóttir og Andri Snær Magnason. Aðrir fram­bjóð­endur mæl­ast með afar lítið eða nán­ast ekk­ert fylgi.

En hverjir eru þessir fjórir fram­bjóð­endur sem virð­ast ætla að berj­ast um Bessa­staði? Og hvað voru þeir að gera áður?

Umhverfisverndarsinnað skáld

Andri Snær Magnason er einn af vin­sæl­ustu rit­höf­undum lands­ins. Hann hefur skrifað fjölda verka. Andri er ötull tals­maður umhverf­is­mála og hefur látið sterkt að sér kveða á þeim vett­vangi, bæði inn­an­lands og utan. Nú síð­ast hefur hann í sam­starfi við Björk Guð­munds­dóttur tón­list­ar­konu vakið athygli á stofnun hálend­is­þjóð­garðs á Íslandi. Hann er í þjóð­kirkj­unni.

Andri fædd­ist í Reykja­vík þann 14. júlí 1973 og verður 43 ára í sumar.

Fjölskylduhagir

For­eldrar Andra eru Kristín Björns­dóttir hjúkr­un­ar­fræð­ingur og Magni Jónsson læknir. Andri kvænt­ist eig­in­konu sinni, Margréti Sjöfn Torp, árið 1999 og eiga þau fjögur börn: Huldu Filippíu, Elínu Freyju, Kristínu Lovísu og Hlyn Snæ.

Fjöl­skyldan býr við Karfavog í Reykja­vík. Andri er í þjóð­kirkj­unni.

Menntun og störf

Stúd­ents­próf úr MS árið 1993. BA próf í íslensku frá Háskóla Íslands árið 1997. Andri hefur skrifað fjölda bóka; skáld­sögur, barna­bækur, leik­rit, ljóð og fræði­rit. Bækur hans hafa komið út í 35 löndum og hlotið alþjóð­leg verð­laun. Leikrit hans hafa verið sett upp víða um heim. Andri hefur haldið fjölda fyr­ir­lestra víða um heim varð­andi nýsköpun, efna­hags­mál, menn­ing­ar­mál, frið­ar­mál og umhverf­is­mál. Hann hefur haldið erindi í Columbia Uni­versity, Tokyo Tec, MIT, Humboldt og víðar. Þá hefur hann tekið þátt í sam­keppnum með arki­tektum og arki­tekta­stofum og verið gesta­kenn­ari hjá Lista­há­skóla Íslands.

Andri Snær er einn af stofn­endum Topp­stöðv­ar­innar, sem rekur aðstöðu fyrir sprota­fyr­ir­tæki í Elliða­ár­dal, og bóka­fé­lags­ins Nykurs. Hann er einn af stofn­fé­lögum Fram­tíð­ar­lands­ins og setið í stjórn Land­verndar.

Sagnfræðingur með forsetaembættisblæti

Guðni Thorlacius Jóhann­es­son sagn­fræð­ingur hefur verið einn helsti álits­gjafi fjöl­miðla þegar kemur að umfjöll­unum um störf for­seta Íslands og emb­ættið sem slíkt. Hann hefur náð að halda sig utan flokks­bund­innar póli­tíkur allan sinn feril og virð­ist sækja fylgi bæði til vinstri og hægri. Guðni stendur utan trú­fé­laga, en hann sagði sig úr kaþ­ólsku kirkj­unni í kjöl­far fregna af kyn­ferð­is­brotum innan hennar.

Guðni fædd­ist í Reykja­vík þann 26. júní 1968 og verður því 48 ára dag­inn eftir for­seta­kosn­ing­arnar í sumar.

Fjölskylduhagir

For­eldrar Guðna eru Margrét Thorlacius, kenn­ari og blaða­maður, og Jóhannes Sæmunds­son, íþrótta­kenn­ari og íþrótta­full­trúi.

Guðni kvænt­ist fyrri eig­in­konu sinni, Elínu Har­alds­dóttur, árið 1995 og eiga þau eina dóttur, Rut. Guðni og núver­andi eig­in­kona hans, Eliza Reid, sem er frá Kanada, giftu sig 2004 og eiga þau saman börnin Duncan Tind, Donald Gunnar, Sæþór Peter og Eddu Margréti. Fjöl­skyldan býr við Tjarn­ar­stíg á Sel­tjarn­ar­nesi.

Menntun og störf

Stúd­ents­próf úr MR árið 1987. Sagn­fræði­próf frá Warwick háskóla í Englandi. Meistara­gráða í sagn­fræði frá Háskóla Íslands 1997, MSt gráða í sögu frá Oxford 1999 og doktor í sagn­fræði 2003 frá Uni­versity of London. Guðni hefur verið kenn­ari við Há­skóla Íslands, Há­skól­ann í Reykja­vík, Há­skól­ann á Bif­röst og Uni­versity of London. Í dag starfar Guðni sem dós­ent í sagn­fræði við Há­skóla Íslands. Hann hefur skrifað fjölda fræði­rita og greina, meðal ann­ars með sér­staka áherslu á þorska­stríðin og emb­ætti for­seta Íslands. Þá hefur hann einnig skrifað ævi­sögu Gunn­ars Thorodd­sens, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, og fræði­bók um for­seta­tíð Krist­jáns Eld­járns.

Reynslubolti úr viðskiptalífinu

Halla Tóm­as­dóttir er rekstr­ar­hag­fræð­ingur og hefur fjöl­breyttan starfs­feril að baki á sviði við­skipta. Hún starfar í dag sem fyr­ir­les­ari og ráð­gjafi á alþjóða­vett­vangi. Hún hefur aldrei verið virk á sviði stjórn­mála og er ekki flokks­bundin. Halla er eina konan í for­seta­fram­boði sem hefur mælst með yfir tveimur pró­sentum í skoð­ana­könn­unum. Hún er í þjóð­kirkj­unni.

Halla fædd­ist í Reykja­vík þann 11. októ­ber 1968 og verður 48 ára í haust.

Fjölskylduhagir

Halla er dóttir Krist­jönu Sig­urð­ar­dóttur þroska­þjálfa og Tómasar Björns Þór­halls­sonar pípu­lagn­inga­meist­ara. Halla er gift Birni Skúla­syni og saman eiga þau tvö börn. Þau búa á Kárs­nes­inu í Kópavogi.

Menntun og störf

Versl­un­ar­próf frá Versl­un­ar­skóla Íslands 1986 og stúd­ents­próf við Fjöl­braut við Ármúla 1989. BSc í við­skipta­fræði frá Auburn Uni­versity í Alabama 1993 og útskrif­að­ist sem rekstr­ar­hag­fræð­ingur með áherslu á alþjóð­leg við­skipti, sam­skipti og tungu­mál frá Thund­er­bird í Arizona 1995. Dokt­ors­nám og rann­sóknir við Cranfield School of Mana­gement í Bret­landi á árunum 2004-2005.

Halla setti á fót stjórn­enda­skóla og símennt­un­ar­deild Háskól­ans í Reykja­vík og kenndi einnig við skól­ann. Hún var starfs­manna­stjóri hjá Pepsi Cola North America og hjá Íslenska útvarps­fé­lag­inu og var fram­kvæmda­stjóri Við­skipta­ráðs Íslands. Halla leiddi verk­efnið Auður í krafti kvenna og var síðar annar stofn­enda Auðar Capital og var einn stofn­enda Maura­þúf­unnar kom Þjóð­fund­inum af stað árið 2009.

Stórtækur stjórnmálamaður

Ólaf Ragnar Grímsson hefur verið í eld­línu stjórn­mál­anna und­an­farna fjóra til fimm ára­tugi, verið for­maður stjórn­mála­flokks, setið á þingi og síð­ast á Bessa­stöðum síð­ustu 20 ár. Ólafur er í þjóð­kirkj­unni.

Ólafur fædd­ist á Ísafirði þann 14. maí 1943 og verður 73 ára eftir rúma viku.

Fjölskylduhagir

Faðir Ólafs var Grímur Krist­geirs­son hár­skeri og móðir hans Svan­hildur Ólafs­dóttir Hjartar hús­móðir. Ólafur kvænt­ist Guðrúnu Katrínu Þor­bergs­dóttur árið 1974 og eign­að­ist með henni dæt­urnar Guðrúnu Tinnu og Svan­hildi Döllu. Guðrún lést úr hvít­blæði árið 1998, tveimur árum eftir að Ólafur var fyrst kjör­inn for­seti. Ólafur kvænt­ist Dorrit Moussaieff árið 2003. Ólafur býr á Bessa­stöðum en Dorrit er skráð í Bret­landi, þó utan lög­heim­ilis og er með heim­il­is­festi í Ísrael, heima­landi sínu.

Menntun og störf

Stúd­ents­próf úr MR árið 1962. Stjórn­mála- og hag­fræði­próf úr háskól­anum í Manchester 1965. Dokt­ors­gráða í stjórn­mála­fræði úr sama skóla árið 1970. Lektor í stjórn­mála­fræði við Háskóla Íslands 1970 og skip­aður fyrsti pró­fessor í fag­inu við skól­ann árið 1973. Kenndi við skól­ann á árunum 1970 til 1988. Ólafur var einnig rit­stjóri Þjóð­vilj­ans og stjórn­aði sjón­varps- og útvarps­þáttum.

Stjórnmálaferill

  • 1967 - 1974 - Sæti í mið­stjórn Fram­sókn­ar­flokks­ins og fram­kvæmda­stjórn flokks­ins.
  • 1974 - 1975 - Vara­þing­maður fyrir Samtök frjáls­lyndra og vinstri manna og for­maður fram­kvæmda­stjórnar.
  • 1980 - 1987 - Formaður þing­flokks Alþýðu­banda­lags­ins.
  • 1978 - 1995 - Þing­maður og vara­þing­maður fyrir Alþýðu­banda­lagið og for­maður flokks­ins frá árinu 1987. Fjár­mála­ráð­herra árin 1988 til 1991.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forseti2016

Fréttirforseti2016

Hvert atkvæði Davíðs kost­aði rúm­lega 1.100 krónur

Davíð Oddsson, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, greiddi 1.103 krónur fyrir hvert atkvæði sem hann fékk í for­seta­kosn­ing­unum í sumar. Hann fékk rúm­lega 25 þús­und atkvæði og hafn­aði í fjórða sæti í kosn­ing­unum, með 13,7 pró­sent atkvæða. Andri Snær Magnason greiddi næst mest þeirra sem skip­uðu efstu sætin í kjör­inu. Hann greiddi 576 krónur fyrir hvert greitt atkvæði, en Andri Snær hlaut 14,6...
Fréttirforseti2016

Guðni Th. myndi rétt merja Höllu í ann­ari umferð for­seta­kosn­inga

Guðni Th. Jóhann­es­son, nýkjör­inn for­seti Íslands, myndi fá 52 pró­sent atkvæða ef haldin yrði önnur umferð í for­seta­kosn­ing­unum þar sem valið stæði á milli tveggja efstu fram­bjóð­end­anna. Halla Tóm­as­dóttir, sem fékk næst flest atkvæði, myndi fá 48 pró­sent atkvæða í slíkri kosn­ingu. Þetta kemur fram í könnun sem MMR hefur gert um málið. Eldra fólk studdi frekar Guðna Th. en...
Fréttirforseti2016

Skiptir engu máli að for­seti sé ekki í þjóð­kirkj­unni

Það er ekk­ert atriði að for­seti Íslands sé ekki í þjóð­kirkj­unni, segir verð­andi for­seti Íslands, Guðni Th. Jóhann­es­son. Það sé trú­frelsi á Íslandi sem sé varið í stjórn­ar­skrá. „Forseti á að geta staðið utan trú­fé­laga kjósi hann það. Hann á að geta verið í hvaða trú­fé­lagi sem er. Ég mun rækja mínar skyldur gagn­vart kirkj­unni eins og vera ber þrátt...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár