Forseti Íslands: „Sigurður Einarsson, vinur minn"

Í rann­sókn­ar­skýrslu Alþingis er fjallað nokkuð ítar­lega um sam­skipti Ólafs Ragnars Gríms­sonar, for­seta Íslands, og ýmissa útrás­ar­fyr­ir­tækja. Eitt fyr­ir­tæki er fyr­ir­ferð­ar­meira þar en önnur, þáver­andi stærsti banki lands­ins, Kaupþing.

Skýrslu­höf­undar rýna meðal ann­ars í bréfa­skriftir for­set­ans við fyr­ir­menni í Sam­ein­uðu arab­ísku fursta­dæm­unum og Katar þar sem hann talar máli Kaup­þings­manna og kallar Sigurð Ein­ars­son, fyrrum stjórn­ar­for­mann Kaup­þings, vin sinn. Í skýrsl­unni er einnig til­vitnun úr bók­inni Saga af for­seta eftir Guðjón Frið­riks­son sagn­fræð­ing sem kom út árið 2008, en hún fjallar um störf Ólafs Ragnars sem for­seta Íslands, sér­stak­lega á útrás­ar­tíma­bil­inu. Í til­vitn­un­inni segir: „Frá árinu 2000 hefur Ólafur Ragnar unnið með Sigurði Ein­ars­syni að mörgum málum, bæði í þágu bank­ans og ann­arra mál­efna. Má telja Sigurð meðal helstu sam­starfs­manna for­set­ans á síð­ari árum“. For­set­inn sæmdi Sigurð auk þess ridd­ara­krossi hinnar íslensku fálka­orðu á nýárs­dag 2007 fyrir for­ystu í útrás íslenskrar fjár­mála­starf­semi.

[caption id="attachment_20356" align="alignnone" width="1000"] Sigurður Ein­ars­son (fjórði frá hægri) hlaut ridd­ara­kross hinnar íslensku fálka­orðu á nýárs­dag 2007.[/caption]

Þessi afskipti for­set­ans hafa verið rifjuð upp að und­an­förnu í kjöl­far þess að Sigurður var dæmdur í fjög­urra ára fang­elsi í Al Thani mál­inu svo­kall­aða í Hæsta­rétti síð­ast­lið­inn fimmtu­dag. Í mál­inu var Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrrum for­stjóri Kaup­þings, dæmdur í fimm og hálfs árs fang­elsi og þeir Magnús Guð­munds­son, fyrrum for­stjóri Kaup­þings í Lúx­em­borg, og Ólafur Ólafsson, sem átti um tíu pró­sent hlut í bank­anum, dæmdir í fjög­urra og hálfs árs fang­elsi. Í dómi Hæsta­réttar segir m.a.: „Háttsemi ákærðu sam­kvæmt þessum köflum ákæru fól í sér alvar­legt trún­að­ar­brot gagn­vart stóru almenn­ings­hluta­fé­lagi og leiddi til stór­fellds fjár­tjóns. Brotin sam­kvæmt III. og IV. kafla ákæru beindust í senn að öllum almenn­ingi og fjár­mála­mark­að­inum hér á landi í heild og verður tjónið, sem leiddi af þeim beint og óbeint, ekki metið til fjár. Þessi brot voru stórum alvar­legri en nokkur dæmi verða fundin um í íslenskri dóma­fram­kvæmd varð­andi efna­hags­brot.“

Kjarninn sendi fyr­ir­spurn á for­seta­emb­ættið með ósk um að Ólafur Ragnar tjái sig um sam­band sitt við Sigurð Ein­ars­son í ljósi sak­fell­ingar hans í Al Thani mál­inu. Þeirri fyr­ir­spurn hefur ekki verið svarað.

Hér að neðan eru nokkur brot úr skýrslu rann­sókn­ar­nefndar Alþingis þar sem fjallað er um sam­skipti for­seta Íslands við Kaupþing og sér­stak­lega Sigurð Ein­ars­son.

Sigurður á meðal helstu samstarfsmanna forsetans


„Eins og áður segir hófst sam­starf for­set­ans við banka­menn­ina um síð­ustu alda­mót, einkum þó Sigurð Ein­ars­son stjórn­ar­for­mann í Kaup­þingi: „Frá árinu 2000 hefur Ólafur Ragnar unnið með Sigurði Ein­ars­syni að mörgum málum, bæði í þágu bank­ans og ann­arra mál­efna. Má telja Sigurð meðal helstu sam­starfs­manna for­set­ans á síð­ari árum““.

Hélt fundi á Bessastöðum til að sannfæra menn um ágæti Kaupþings


„Árið 2004 fóru bank­arnir mik­inn í kaupum á bönkum víða um heim. Mikið lá við og bað Sigurður Ein­ars­son for­set­ann um aðstoð. For­set­inn brást vel við og bauð tveimur stjórn­endum Singer & Fried­lander sem voru að kanna trú­verð­ug­leika Kaup­þings í hádeg­is­verð á Bessa­stöðum til að sann­færa þá um ágæti bank­ans“.

Sigurður ver forsetann


„Árið 2005 var samn­ingur Eimskips við aðila í Kína und­ir­rit­aður á Bessa­stöðum og vakti það nokkrar umræður. Ögmundur Jónasson alþing­is­maður gagn­rýndi þetta og sagði athöfn­ina ekki við hæfi emb­ætt­is­ins og að sem betur fer væri for­seta­emb­ættið ekki orðið ehf. Sigurður Ein­ars­son stjórn­ar­for­maður Kaup­þings brást til varnar fyrir for­set­ann“.

Allra augu á Persaflóa


„Undir lok útrás­ar­skeiðs­ins fóru fjár­mála­menn að beina sjónum til olíu­ríkj­anna við Persafló­ann, bæði til að opna útibú og til að leita að fjár­festum, raun­veru­legum eða óraun­veru­legum. For­set­inn lét ekki sitt eftir liggja til að greiða þeim för. Hann skrif­aði kurt­eis­is­bréf til emírs­ins af Katar 4. febr­úar 2008“.

Sigurður Einarsson "vinur minn"


23. apríl 2008 skrif­aði for­set­inn bréf til krón­prins­ins í Sam­ein­uðu arab- ísku fursta­dæm­unum, Sheiks Mohammed Bin Zayed Al Nahyan.

Þar segir: „In this respect I was very ple­a­sed to learn from my fri­end Mr. Sigurdur Ein­ars­son, the Chairman of Kaupt­hing Bank, the largest Icelandic bank, that it had been selected by Masdar and Mubadala as one of the candidate banks for the role of Strategic Financial Advisor to the Masdar City develop­ment.[...] I have closely followed the develop­ment of Kaupt­hing Bank during the last ten years ever since I opened one of their ear­liest European operations in the second year of my Presidency. Both I and the people of Iceland are very proud of the bank‘s achievements. Kaupt­hing has become the flags­hip company of the Icelandic national economy. I give the Kaupt­hing Bank my strongest per­sonal recommendation. The pro­fessiona­l­ism of its leaders­hip and their staff has made Kaupt­hing into one of the most successful European banks with strong expert­ise both in clean energy and real estate.“

Bréf til emírsins Al Thani


„Enn skrif­aði for­set­inn í þágu Sigurðar Ein­ars­sonar, sem hann vís­aði til sem vinar síns í síð­ast­nefndu bréfi, nú til manns sem síðar kom við sögu Kaup­þings. 22. maí 2008 skrif­aði for­set­inn til emírs­ins Hamads Bin Khalifa Al Thani í Katar og sagði: „As I emphasized in our discussion on Tuesday, there are now three main pill­ars in the evolution of our growing cooperation: 1. Banking and finance where the negotiations with Kaupt­hing Bank have a pri­ority role.“ Forseti Íslands átti sam­kvæmt bréf­inu fund eða sam­tal við Al Thani sem keypti hluta­bréf í Kaup­þingi með pen­ingum frá Kaup­þingi en það er önnur saga.“

[caption id="attachment_20360" align="alignnone" width="649"] Ólafur Ragnar Grímsson og Amir Sheikh Hamad Bin Khalifa Al Thani, emír­inn af Katar, þegar for­set­inn og fylgd­ar­lið heim­sótti ríkið í maí 2008.[/caption]

Vinnusiðferði og orðstír einstaklinga mikilvægt í útrásinni


„Listi for­set­ans yfir þá þætti sem gerðu útrás­ina og Íslend­inga svo magn­aða. Fyrst nefndi hann vinnu­sið­ferði, þá árang­urs­sækni, áhættu­sækni, litla skrif­finnsku, per­sónu­legt traust, litla hópa þátt­tak­enda sem ynnu þétt og hratt saman og tækju skjótar ákvarð­anir, frum­kvöðla­anda, arf land­könn­unar og upp­götv­ana, orðstír ein­stak­linga, þjálfun sem menn fengju á íslenskum mark­aði, Íslend­ingar hefðu engin dulin mark­mið, náin tengsl milli fólks á Íslandi og loks var það sköp­un­ar­kraft­ur­inn“.

Forsetinn um virðingu og sanngirni


„Svarið er líka fólgið í því að vel sé hugað að und­ir­stöðum, að hin metn­að­ar­fulla útrás­ar­sveit haldi ávallt áttum, glati ekki jarð­sam­bandi þótt vel gangi, meti áfram að verð­leikum sam­fé­lagið sem þau hefur fóstrað og komi fram af virð­ingu og sann­girni ekki aðeins við íslenska þjóð heldur einnig við íbúa ann­arra landa, gleymi ekki að útrásin byggir í grunn­inn á sögu, menn­ingu og sið­viti Íslend­inga“.

Niðurstaða nefndarinnar


„For­set­inn beitti sér af krafti við að draga upp fegraða, dramb­sama og þjóð­ern­is­kennda mynd af yfir­burðum Íslend­inga sem byggð­ust á fornum arfi. Það er athygl­is­vert að nokkrir þeirra eig­in­leika sem for­set­inn taldi útrás­ar­mönnum til tekna eru einmitt þeir þættir sem urðu þeim og þjóð­inni að falli“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár