„Svívirðilegir glæpir“ í heimalandinu en eru samt send heim

Þrátt fyrir að á síð­ustu árum hafi yfir­völd í Venes­ú­ela og vopna­hópar þeirra framið „sví­virði­lega glæpi“, kerf­is­bundnar pynd­ingar og aftökur, hefur kæru­nefnd útlend­inga­mála stað­fest úrskurði Útlend­inga­stofn­unar um að neita fólki þaðan um vernd.

Frá Venesúela
Frá Venes­ú­ela Þessir menn frá Venes­ú­ela eru á meðal þeirra sem bíða nú eftir nið­ur­stöðu í málum sínum hér á landi. Myndin hefur dekkst hjá þeim, miðað við nýj­ustu úrskurði kæru­nefnd­ar­innar. Mynd: Ingi Freyr Vilhjálmsson

Kæru­nefnd útlend­inga­mála hefur kveðið upp sinn dóm í málum fólks frá Venes­ú­ela sem vill hér fá að vera: Ástandið í heima­landi ykkar er ekki nógu slæmt lengur til þess að þið getið talist flótta­fólk á þeim grunni.

Þessari nið­ur­stöðu komst kæru­nefndin að jafn­vel þó að í nýrri skýrslu Mann­rétt­inda­vakt­ar­innar (e. Human Rights Watch) segi að Venes­ú­ela standi frammi fyrir alvar­legri mann­úð­ar­krísu. Millj­ónir hafa ekki aðgang að full­nægj­andi heil­brigð­is­þjón­ustu og nær­ingu. Í skýrslum ann­arra mann­úð­ar­sam­taka og stofn­ana á síð­ustu árum hafa ítrekað komið fram frá­sagnir af alvar­legum glæpum stjórn­valda og vopna­hópa þeirra gegn borg­urum sínum, meðal ann­ars pynd­ingum og aftökum. 

Þrátt fyrir að Flótta­manna­stofnun Sam­ein­uðu þjóð­anna hafi ekki dregið til baka mat sitt á aðstæð­unum sem hún telur mjög alvar­legar telur kæru­nefnd útlend­inga­mála, þessi íslenska, að ástandið hafi á síð­ustu mán­uðum breyst til batn­aðar. 

Forsagan: ÚTL reyndi ítrekað að segja bless en kærunefndin greip inn í þar til hún hætti því

Frá árinu 2018 til árs­ins 2020 veitti Útlend­inga­stofnun þeim venes­ú­elsku rík­is­borg­urum sem sóttu um vernd hér svo­kall­aða við­bót­ar­vernd vegna ástands­ins í land­inu. Árið 2021 fór Útlend­inga­stofnun svo að synja fólki frá land­inu en kæru­nefnd útlend­inga­mála komst að þeirri nið­ur­stöðu að veita ætti fólk­inu við­bót­ar­vernd, sem það fékk. Aftur reyndi Útlend­inga­stofnun að synja umsóknum fólks frá land­inu í fyrra en kæru­nefndin stóð við sitt. Fólki frá Venes­ú­ela skyldi veitt við­bót­ar­vernd, ástandið í land­inu væri ein­fald­lega það slæmt. 

Í lok síð­asta árs ákvað Útlend­inga­stofnun að bíða með umsóknir frá Venes­ú­ela. Þegar hún fór aftur að taka umsóknir fólks þaðan fyrr á þessu ári var þó nokkrum hafnað. 

Stór hópur venes­ú­el­skra rík­is­borg­ara, á fjórða hund­rað manns, sem höfðu fengið neitun frá Útlend­inga­stofnun kærðu ákvörðun hennar til kæru­nefndar útlend­inga­mála í sumar. 

Og nú hafa úrskurðir í málum fjög­urra Venes­ú­ela­búa verið birtir. Nið­ur­stöður Útlend­inga­stofn­unar eru stað­festar. Þrír Venes­ú­ela­bú­anna skulu fara úr landi, hvernig er enn óvitað, en einn þeirra fær dval­ar­leyfi á grund­velli mann­úð­ar­sjón­ar­miða. Slíkt dval­ar­leyfi er tals­vert verra en við­bót­ar­vernd. Dval­ar­leyfið gildir í eitt ár á meðan alþjóð­leg vernd gildir í fimm ár og við­bót­ar­vernd í fjögur.

Þar sem kæru­nefndin hefur nú tekið ákvörðun um að Venes­ú­ela­búum sé ekki veitt við­bót­ar­vernd á lín­una bíður hennar ærið verk­efni: Ríflega 300 kærur frá Venes­ú­ela­búum sem Útlend­inga­stofnun hefur synjað um vernd.

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Stefán Agnar Finnsson skrifaði
    Otrúleg grimmd. Fólki er gefin von en svo er hún tekin.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flóttafólk frá Venesúela

Greining

Ágrein­ing­ur­inn um útlend­inga­málin

„Ég tel ekki að slík frum­vörp eigi erindi inn í þingið,“ sagði Svandís Svav­ars­dóttir. „Þar erum við inn­við­a­ráð­herra held ég ósam­mála,“ svar­aði Guðrún Haf­steins­dóttir. Þetta var gam­alt stef og nýtt, að flokk­arnir væru ósam­mála í útlend­inga­málum, en það hafði þó varla verið jafn skýrt fyrr en rétt áður en stjórnin féll, skömmu áður en Guðrún ætl­aði sér að leggja fram frum­varp um lokað búsetu­úr­ræði.
GreiningFlóttafólk frá Venesúela

Sleppti mál­tíðum til þess að kom­ast frá Ásbrú

„Stans­laust von­leysi vaknar um leið og þú mætir,“ segir ungur venes­ú­elskur hæl­is­leit­andi um Ásbrú. Þar hafi verið ómögu­legt fyrir hann, eða nokkurn mann, að aðlag­ast íslensku sam­fé­lagi – sem er atriði sem stjórn­mála­menn þvert á flokka hafa sagt mik­il­vægt. Félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra hefur sagst vilja fleiri búsetu­úr­ræði á borð við Ásbrú.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár