Ætlað samþykki líffæragjafar orðið að lögum

Alþingi sam­þykkti í gær frum­varp til laga um brott­nám líf­færa, nánar til­tekið um svo­kallað ætlað sam­þykki, það er að segja að nema megi brott líf­færi eða líf­ræn efni úr lík­ama lát­ins ein­stak­lings hinn látni ekki lýst sig and­vígan því.

Alþingi sam­þykkti í gær frum­varp til laga um brott­nám líf­færa, nánar til­tekið um svo­kallað ætlað sam­þykki, það er að segja að nema megi brott líf­færi eða líf­ræn efni úr lík­ama lát­ins ein­stak­lings til nota við lækn­is­með­ferð ann­ars ein­stak­lings hafi hinn látni ekki lýst sig and­vígan því og það er ekki af öðrum sökum talið brjóta í bága við vilja hans.

Þetta þýðir að hafi lát­inn ein­stak­lingur ekki lýst sig sér­stak­lega mót­fall­inn því að líf­færi hans séu nýtt til líf­færa­gjafar eftir and­lát þá mega heil­brigð­is­starfs­menn nýta þau til að græða í annan ein­stak­ling sé það hægt. Þó með þeirri tak­mörkun að þetta gildir ekki ef nán­asti vanda­máður hins látna leggst gegn þessu.

Mikil breyting

Í gild­andi rétti fyrir þessa breyt­ingu var miðað við að líf­færi yrðu ekki numin brott nema fyrir liggi sam­þykki við­kom­andi eða nán­asta vanda­manns hans og því í raun gert ráð fyrir ætl­aðri neitun í stað ætl­aðs sam­þykkis, það er að hinn látni hefði ekki veitt sam­þykki fyrir brott­námi líf­færis að sér látnum, nema annað liggi fyrir.

Í grein­ar­gerð með frum­varp­inu segir að því til grund­vallar liggi sú afstaða að eðli­legra sé að gera ráð fyrir því að fólk vilji koma náunga í neyð til hjálpar með því að gefa líf­færi og líf­ræn efni að sér látnum en ekki. Af þessum sökum sé eðli­legra að lög­gjöf end­ur­spegli við­horf um „ætlað sam­þykki“ en „ætl­aða neitun“ vegna líf­færa­gjafar.

„Með frum­varp­inu er stað­inn vörður um sjálfs­á­kvörð­un­ar­rétt fólks um eigin lík­ama með því að gera óheim­ilt að nema brott líf­færi eða líf­ræn efni úr lík­ama lát­inna ein­stak­linga hafi þeir lýst sig and­víga því eða brott­nám sé af öðrum sökum talið brjóta í bága við vilja þeirra.“

Best að koma ákvörðun sinni á framfæri í gagnagrunninn

Hjá Embætti land­læknis er starf­ræktur gagna­grunnur þar sem unnt er að skrá afstöðu til líf­færa­gjafar og segir í frum­varpi að tryggi­leg­ast sé að and­stöðu sé komið á fram­færi með þeim hætti. Einnig beri þó að virða það liggi áreið­an­lega fyrir að hinn látni hafi lýst and­stöðu sinni með öðrum hætti, til dæmis við nán­asta vanda­mann. Þá ætti ekki að nema brott líf­færi eða líf­ræn efni úr lík­ama lát­ins ein­stak­lings væri af öðrum sökum sér­stakt til­efni til að ætla að það hefði verið á móti vilja hans, til dæmis ef fyrir lægi að það væri and­stætt trú­ar­brögðum sem við­kom­andi aðhyllt­ist.

20-30 manns á ári þurfa líffæraígræðslu

Á heima­síðu Land­læknis segir að eft­ir­spurn eftir líf­færa­ígræðslum hafi vaxið jafnt og þétt í gegnum árin og nú þurfi um 25–30 sjúk­lingar hér á landi líf­færa­ígræðslu á ári hverju. „Ekki er unnt að nýta líf­færi nema í litlum hluta dauðs­falla en hver líf­færa­gjafi getur bjargað lífi nokk­urra ein­stak­linga. Mikill skortur er á líf­færum til ígræðslu og því er áríð­andi að sem flestir séu fúsir til að gefa líf­færi.“

Árangur af líf­færa­ígræðslum er yfir­leitt góður að sögn Land­læknis. Ígræðsla líf­færis bjargar ekki ein­ungis lífi heldur geti hún einnig bætt lífs­gæði. Margir lifa eðli­legu lífi með ígrætt líf­færi, geta stundað vinnu og lík­ams­rækt. Konur með ígrætt líf­færi geta stundum eign­ast börn.

Frum­varpið var sam­þykkt á þing­inu í gær með 52 atkvæðum, tveir greiddu ekki atkvæði og níu voru fjar­ver­andi við atkvæða­greiðsl­una. Flutn­ings­menn frum­varps­ins voru þing­menn Fram­sókn­ar­flokks­ins, þau Silja Dögg Gunn­ars­dóttir og Willum Þór Þórsson.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár