Slíta samningaviðræðum sjómannafélaga

Sjó­manna­fé­lag Eyja­fjarðar og Sjó­manna­fé­lagið Jötunn hafa ákveðið að draga sig út úr samn­inga­við­ræðum. Sjó­manna­fé­lag Íslands harmar ásak­anir Heið­veigar Maríu Ein­ars­dóttur í sinn garð en hún svarar þeim fullum hálsi.

Sjó­manna­fé­lag Eyja­fjarðar og Sjó­manna­fé­lagið Jötunn í Vest­manna­eyjum hafa ákveðið að draga sig út úr samn­inga­við­ræðum um sam­ein­ingu við þrjú önnur félög sjó­manna, Sjó­manna­fé­lagi Íslands, Sjómanna- og vél­stjóra­fé­lagi Grinda­víkur og Sjó­manna­fé­lagi Hafn­ar­fjarðar. Ástæðan er ásak­anir sem fram hafa komið á stjórn­endur Sjó­manna­fé­lags Íslands. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu í dag.

Stjórn Sjó­manna­fé­lags Eyja­fjarðar kom saman til fundar í gær til að fara yfir stöð­una í við­ræðum þess­ara fimm sjó­manna­fé­laga sem verið hafa í gangi um nokk­urt skeið. Á stjórn­ar­fund­inum var sam­þykkt eft­ir­far­andi yfir­lýs­ing sem und­ir­rituð er af for­manni SE og for­manni Jötuns um að ekki verði lengra farið í mál­inu og dragi því þessi félög sig út úr þessum við­ræðum. Yfir­lýs­ingin var birt á heima­síðu félag­anna tveggja:

„Í fréttum und­an­farna daga hafa komið fram mjög alvar­legar ásak­anir á hendur stjórn­endum Sjó­manna­fé­lags Íslands um óheið­ar­lega fram­komu og fals­anir á fund­ar­gerð­ar­bók sjó­manna­fé­lags­ins. Ásakanir þessar hafa komið fram í tengslum við fyr­ir­hugað mót­fram­boð til stjórnar félags­ins í tengslum við aðal­fund þess sem fram fer á milli jóla og nýárs. Þessar ásak­anir telja stjórn­endur ofan­greindra félaga svo alvar­legar að við því verði að bregð­ast. Þar sem ofan­greind félög hafa verið í sam­ein­ing­ar­við­ræðum við Sjó­manna­fé­lag Íslands, Sjómanna- og vél­stjóra­fé­lag Grinda­víkur og Sjó­manna­fé­lag Hafn­ar­fjarðar er það mat stjórn­enda þess­ara félaga að ekki verði lengra farið og draga sig því út úr þessum sam­ein­ing­ar­við­ræðum félag­anna."

Harmar ásakanirnar

Sjó­manna­fé­lag Íslands sendi einnig frá sér yfir­lýs­ingu í gær þar sem segir að laga­breyt­ingar sem bornar hafi verið upp á aðal­fundi 28. des­em­ber í fyrra hafi verið sam­þykktar með öllum greiddum atkvæðum, þar á meðal um að kjör­gengir væru þeir félagar sem greitt hefðu í félagið sl. þrjú ár. Í yfir­lýs­ing­unni segir að félagið hafi legið undir ámæli frá Heið­veigu Maríu Ein­ars­dóttur sjó­manni sem hefur lýst áhuga á því að bjóða sig fram til for­manns. Hún hafi sakað for­ystu Sjó­manna­fé­lags­ins um að falsa laga­breyt­ingu um kjör­gengi til stjórnar til þess að koma í veg fyrir fram­boð sitt. Stjórn Sjó­manna­fé­lags Íslands harmar þessar ásak­anir í garð félags­ins og segir að með ásökum sínum vegi Heiðveig María að æru félags­ins og allra þeirra sem koma að stjórn og rekstri félags­ins.

[links]

Heiðveig María Ein­ars­dóttir, sjó­maður og við­skipta­lög­fræð­ingur, lýsti því yfir á Facebook-síðu sinni fyrir rúmum tveimur vikum að hún hafi ákveðið að bjóða sig fram til for­manns Sjó­manna­fé­lags Íslands. Hún er fyrst kvenna til að bjóða sig fram til for­manns Sjó­manna­fé­lags Íslands. Áður hafði Heiðveig María gagn­rýnt for­ystu sjó­manna í fjöl­miðlum, sem og nýtt frum­varp um breyt­ingar á veiði­gjöldum.

Heiðveig María svarar Sjómannafélagi Íslands

Í kjöl­far ofan­greindar yfir­lýs­ing­ar­innar sem Sjó­manna­fé­lag Íslands sendi frá sér í gær þá birti fram­boðs Facebook-síða Heið­veigu Maríu stöðu­upp­færslu um málið þar sem hún svarar yfir­lýs­ingu sjó­manna­fé­lag Íslands:

„Í yfir­lýs­ingu sem stjórn Sjó­manna­fé­lags Íslands hefur sent frá sér til fjöl­miðla koma þeir ekki með nokkrar skýr­ingar á því sem ég hef bent á heldur kýs stjórnin að láta sem ég sé að skaða félagið, bendir á að ég sé ekki sam­kvæm sjálfri mér í mál­flutn­ingi mínum og sakar mig um órök­studdar ásak­anir á hendur stjórn­inni. Ekkert af þessu er rétt. Stjórnin ræðir ekki efn­is­lega það sem ég hef haldið fram þrátt fyrir að gögn um laga­breyt­ing­arnar á síðu félags­ins og ekki voru sam­þykkt á aðal­fundi hafi fylgt pistlum mínum. Ég hefði talið eðli­legt á þessu stigi máls­ins að stjórnin hefði sent frá sér gögn sem hrekja mál­flutn­ing minn ef hann væri rangur. Þar sem stjórnin áréttar að breyt­ingar á 16. grein lag­anna hafi verið lög­lega sam­þykktar af aðal­fundi á sein­asta ári þá bendi ég á að ég hef ekki sagt að hér sé um fölsun að ræða heldur að það væri und­ar­legt að sú grein sem um ræðir sé með öðru letri í fund­ar­gerð­ar­bók­inni og að ég hafi ekki sjálf fengið að sjá fund­ar­gerð­ar­bók­ina heldur bara fengið sendar ljós­myndir af henni. Þá er það jafn­framt stór­und­ar­legt að starfs­menn og for­maður félags­ins hafi ekki séð til­efni til þess að kynna svo veiga­mikla laga­breyt­ingu fyrir félags­mönnum með því að birta upp­færð lög á heima­síðu félags­ins strax eftir meinta laga­breyt­ingu.“ 

Heiðveig María birti síðan á sinni eigin Facebook-síðu í gær­kvöldi stöðu­færslu þar sem hún fagnar ákvörðun Sjó­manna­fé­lag Eyja­fjarðar og Sjó­manna­fé­lagið Jötunn um að draga sig úr við­ræðum; .„Það að for­menn þess­ara félaga stígi til baka og slíti við­ræðum í núver­andi mynd á meðan stjórn Sjó­manna­fé­lags Íslands getur ekki svarað fyrir þær ásak­anir og þau gögn sem lögð hafa verið fram veitir ákveðna von um að ein­hvers­staðar séu hlut­irnir í lagi“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sjávarútvegsmál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár