Rök sóttvarnayfirvalda fyrir örvunarskammti

Vörn eftir skammt af Janssen er svipuð og eftir einn skammt af öðrum bólu­efnum sem hér hafa verið gefin, segir í rök­stuðn­ingi sótt­varna­yf­ir­valda fyrir því að gefa Jans­sen­þegum auka­skammt af öðru efni. Þessar upp­lýs­ingar lágu fyrir í mars.

Kamilla Jósefsdóttir er staðgengill sóttvarnalæknis.
Kamilla Jós­efs­dóttir er stað­geng­ill sótt­varna­læknis. Mynd: Skjáskot: RÚV

Framboð bólu­efnis sam­kvæmt afhend­ing­ar­á­ætl­unum miðað við samn­inga sem gerðir hafa verið fyrir hönd þjóð­ar­innar „leyfir að hugað sé að því að efla svörun ákveð­inna hópa með örv­un­ar­bólu­setn­ingu,“ segir í minn­is­blaði Kamillu Jós­efs­dóttur stað­geng­ils sótt­varna­læknis til heil­brigð­is­ráð­herra þar sem hvatt er til að gefa fólki bólu­settu með Janssen-bólu­efn­inu skammt af öðru bólu­efni, annað hvort frá Pfizer eða Moderna. Yfir 95 þús­und skammtar af bólu­efni eru til í land­inu og von er á 129 þús­und til við­bótar á næstu vikum.

[adspot]

Ísland er í hópi þeirra landa sem ákveðið hafa að gefa full­bólu­settum örv­un­ar­skammta. Hin löndin sem þetta hafa ákveðið eru m.a. Ísrael, Sam­ein­uðu arab­ísku fursta­dæmin og Þýska­land. Hvorki sótt­varna­stofnun Banda­ríkj­anna eða Evrópu mæla með örv­un­ar­skömmtum, að minnsta kosti ekki að svo komnu máli.

For­stjóri Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­un­ar­innar biðl­aði enn og aftur til auð­ugri ríkja í gær að bíða með að gefa örv­un­ar­skammta – að minnsta kosti til loka sept­em­ber. Ástæðan er sú að sú djúpa gjá sem mynd­ast hefur milli ríkra og fátækra þjóða þegar kemur að bólu­setn­ingum er enn að dýpka. „Ég skil áhyggjur allra rík­is­stjórna að verja sitt fólk gegn delta-afbrigð­inu,“ sagði for­stjór­inn, Tedros Adhanom Ghebr­eyesus, í ávarpi sínu í gær. „En við getum ekki sætt okkur við að lönd sem þegar hafa notað stærstan hluta af öllu bólu­efni sem fram­leitt hefur verið í heim­inum til að nota enn meira af því.“

[links]Elin Hoffmann Dahl, smit­sjúk­dóma­sér­fræð­ingur mann­úð­ar­sam­tak­anna Læknar án landamæra sagði við Reuters-frétta­stof­una í kjöl­far ákalls for­stjóra WHO að „sú stað­reynd að við erum að bólu­setja heil­brigða full­orðna með örv­un­ar­skömmtum af COVID-19 bólu­efnum er skamm­sýni“ því ef við höldum áfram að skilja meiri­hluta heims­byggð­ar­innar eftir óbólu­settan munum við „án vafa“ þurfa ný og ný bólu­efni í fram­tíð­inni.

Engar vísindarannsóknir

Kamilla sagði í skrif­legu svari til Kjarnans í síð­ustu viku að það hafi enn „engar vís­inda­rann­sóknir“ verið birtar um örvun Janssen-bólu­setn­ingar en að rök fyrir ákvörð­un­inni um að gera það engu að síður kæmu fram í minn­is­blaði sem sent hefur verið ráð­herra.

Minn­is­blaðið hefur ekki verið birt á vef heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins þótt ákvörð­unin hafi verið tekin og örv­un­ar­her­ferðin þegar hafin.

Kjarninn fékk minn­is­blaðið afhent í gær. Þar kemur m.a. fram að mark­mið um bólu­setn­ingu sextán ára og eldri sem lagt var upp með hafi verið náð og að nærri 90 pró­sent ein­stak­linga á þessum aldri verið bólu­sett.

„Fyrsti hóp­ur­inn sem sótt­varna­læknir mælir með að verði boðin örv­un­ar­bólu­setn­ing eru ein­stak­lingar án sögu um COVID-19/mótefni sem bólu­settir voru með Janssen bólu­efni,“ segir þar enn­fremur og að mælt sé með að hópnum veðri boð­inn einn skammtur af bólu­efni frá Pfizer/BioNTech a.m.k. 8 vikum eftir Janssen bólu­setn­ingu.

Í minn­is­blað­inu er svo farið yfir rök sótt­varna­yf­ir­valda fyrir þessum með­mælum og í fyrsta lagi kemur fram að vörn eftir einn skammt af Janssen-bólu­efni sé svipuð og vörn eftir einn skammt af öðrum COVID-19 bólu­efnum sem notuð hafa verið hér, um 66 pró­sent á móti 74-80 pró­sent vörn gegn smiti af upp­runa­lega afbrigði veirunnar. „En Janssen er með mark­aðs­leyfi sem eins skammts bólu­efni og var því notað þannig.“

Þessar upp­lýs­ingar lágu fyrir þegar Janssen-bólu­efnið kom á markað í mars.

Í frek­ari rök­stuðn­ingi stað­geng­ils sótt­varna­læknis kemur fram að fram­leið­andi Janssen hafi prófað tveggja skammta áætlun í fasa 1-2 rann­sóknum og hafi átta vikur verið látnar líða á milli skammta. Nið­ur­staðan hafi verið sú að annar skammtur örv­aði mótefna­svar en að rann­sóknir á áhrifum hvað smit­líkur varðar vanti.

Rannsóknir á örvun annarra mRNA-efna lofi góðu

Rann­sóknir á lengra milli­bili við grunn­bólu­setn­ingu með tveggja skammta bólu­efnum (bólu­efnum Pfizer og Astra Zeneca) hafa sýnt að svar er ekki síðra þótt lengra líði frá fyrsta skammti að seinni skammti en upp­haf­legar rann­sóknir gerðu ráð fyrir, skrifar Kamilla. Hún bendir enn­fremur á í minn­is­blað­inu að rann­sóknir á örvun bólu­efnis AstraZeneca með mRNA-bólu­efnum (Pfizer/BioNTech) hafi sýnt „mjög góða örvun þegar horft er til mótefna­mynd­unar“.

Kamilla bendir svo á að „mjög litlar upp­lýs­ingar“ liggi fyrir um virkni Janssen-bólu­efnis gegn delta-afbrigði veirunnar sem nú hefur náð yfir­hönd­inni hér eins og víðar. Hins vegar liggi fyrir upp­lýs­ingar „um ágæta virkni bólu­efnis Pfizer/BioNTech gegn þessu afbrigði“.

40 prósent bólusettra meðal smitaðra fengu Janssen

Minn­is­blaðið skrifar Kamilla 27. júlí, fyrir rúmri viku. Þá höfðu um 40 pró­sent bólu­settra sem greinst höfðu með veiruna verið bólu­settir með Janssen. „Það ber þó að túlka með varúð,“ skrifar Kamilla. „Ald­urs­hópur sá sem nú er mest áber­andi hvað smit varðar, 18-49 ára, var að miklu leyti bólu­settur með Janssen, um 36%, en 21% af öllum bólu­settum fengu Janssen.“

Rúmlega 53 þús­und manns fengu bólu­efni Janssen í vor og byrjun sum­ars. Margir leik- og grunn­skóla­kenn­arar voru í þeim hópi. „Þar sem delta­af­brigðið virð­ist hafa náð mik­illi sam­fé­lags­legri útbreiðslu er brýnt að efla varnir þessa[rra] starfs­stétta áður en skóla­hald hefst, sér­stak­lega í ljósi þess að börn í leik- og grunn­skólum hafa ekki verið bólu­sett í almennum bólu­setn­ingum ennþá,“ skrifar Kamilla en end­ur­bólu­setn­ing kenn­ara og ann­arra starfs­manna er þegar hafin hér á landi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár