„Björk býr á Íslandi og greiðir sína skatta"

Guð­mundur Gunn­ars­son, fyrrum for­maður Raf­iðn­að­ar­sam­bands­ins og faðir Bjarkar Guð­munds­dóttur söng­konu, segir dóttur sína búa á Íslandi og greiða hér sína skatta.

Þetta kemur fram í Facebook stöðu­upp­færslu hans sem birt­ist fyrr í dag vegna ummæla Jóns Gunn­ars­sonar, þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins og for­manns atvinnu­vega­nefndar, um Björk í gær­kvöldi. Jón sagð­ist þar játa að hann skildi ekk­ert í Björk og velti því fyrir sér hvort hún borg­aði skatta á Íslandi.

Guð­mundur spyr á móti hvar skattar stór­iðj­unnar séu og „auð­linda­gjöld þeirra sem kost­uðu Jón á þing?"

Gagnrýni Jóns á Björk kom í kjöl­far þess að hún kall­aði Bjarna Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, og Sigmund Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra, sveitalubba í við­tali við Sky-sjón­varps­stöð­ina. Sagði Jón m.a. að Björk væri „frekar dauf til augn­anna á bak við grímuna“.

Hann hefur verið harð­lega gagn­rýndur fyrir þau ummæli á sam­fé­lags­miðlum í dag. Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri í Reykja­vík sagði m.a. að annað hvort myndi Jón biðj­ast afsök­unar á „þessum fárán­legu ummælum“ um Björk og draga þau til baka eða hann sæti uppi með ævi­var­andi skömm.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár