Segir að Jón Gunnarsson verði að biðjast afsökunar á fáránlegum ummælum um Björk

Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri í Reykja­vík, segir að annað hvort biðj­ist Jón Gunn­ars­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks og for­maður atvinnu­vega­nefndar, afsök­unar á „þessum fárán­legu ummælum“ um Björk Guð­munds­dóttur og dragi þau til baka eða hann situr uppi með ævi­var­andi skömm. Jón sagði í stöðu­upp­færslu á Facebook í gær að Björk væri „frekar dauf til augn­anna á bak við grímuna“ og gagn­rýndi hana fyrir að hafa kallað Bjarna Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, og Sigmund Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra, sveitalubba í við­tali við Sky-sjón­varps­stöð­ina.

Jón sagð­ist játa það fús­lega að hann skilji ekk­ert í Björk og velti því fyrir sér hvort hún borgi skatta á Íslandi. „Þingið væri örugg­lega ekki verra ef þar væru fleiri með hugs­un­ar­hátt sveita­manns­ins. Nið­ur­staða loft­lags­ráð­stefn­unnar hvetur okkur til að nýta með skyn­sömum hætti end­ur­nýj­an­legar orku­auð­lindir lands­ins til auk­innar verð­mæta­sköp­unar. Nýting þeirra mun skapa traustan grunn að íslensku sam­fé­lagi, tæki­færi til að gera svo mikið betur á mörgum sviðum. Ég reikna ekki með að Björk leggi sín lóð á þær vog­ar­skálar, eða borgar hún skatta og gjöld á Íslandi. Spyr sá sem ekki veit. Hún er frekar dauf til augn­anna á bak­við grímuna,“ sagði Jón.

Dagur spyr í stöðu­upp­færslu í morgun hvað sé hægt að segja við svona lág­kúru. „Björk er ekki aðeins sá íslenski lista­maður sem hefur náð lengst á alþjóða­vett­vangi og sá Íslend­ingur sem vakið hefur mesta og jákvæð­asta athygli á land og þjóð. Hún er líka skýr og afdrátt­ar­laus málsvari íslenskrar nátt­úru og umhverf­is­mála. Að hún þurfi að fá yfir sig skít og skot vegna þessa - og það af hinu "háa Alþingi" segir mikið um hvernig fyrir lög­gjafa­sam­komu okkar er komið. Er til­gang­ur­inn að reyna að hræða fólk frá því að taka mál­stað umhverf­is­ins? Annað hvort biðst Jón Gunn­ars­son alþing­is­maður afsök­unar á þessum fárán­legu ummælum og dregur þau til baka eða situr uppi með ævar­andi skömm. Svona gerir maður ekki.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár