Mynd: Úr safni

Mikil verðmæti í fangi almennings

Eftir hrun fjár­mála­kerf­is­ins hefur átt sér stað mikil umbreyt­ing á íslenska hag­kerf­inu. Eitt af því sem gerst hefur, er að eignir íslenska rík­is­ins – þar með talið eign­ar­hlutir í fyr­ir­tækjum – hafa marg­fald­ast.

Óhætt er að segja að miklar breyt­ingar hafi orðið á íslenska hag­kerf­inu frá því það stóð á bjarg­brún­inni haustið 2008, þegar því var bjargað með neyð­ar­laga­setn­ingu á síð­ustu stundu. Fjár­magns­höft voru svo sett á í nóv­em­ber 2008 og við tók end­ur­reisn.

Eftir að hafa tekið út mikla dýfu í efna­hags­líf­inu árið 2009 og fram á árið 2010, þá hefur verið við­stöðu­laust hag­vaxt­ar­skeið. Eitt af því sem hrunið, aðgerðir í kjöl­farið og hag­felld efna­hags­þróun und­an­farin ár, hafa leitt af sér, er að íslenska ríkið hefur jafnt og þétt verið að eign­ast mikil verð­mæti í formi hluta­bréfa í fyr­ir­tækjum.

Þar munar mikið um bank­anna tvo, Íslands­banka og Lands­bank­ann, en ríkið á Íslands­banka að öllu leyti og Lands­bank­ann sömu­leiðis, eða um 99 pró­sent hluta­fjár, þegar tekið er með í reikn­ing­inn hlutur bank­ans í eigin bréfum.

Ný og kaldari staða

Á fyrr­nefndu hag­vaxt­ar­skeiði hefur mikil kúvend­ing orðið á íslenska hag­kerf­inu. Skuldir heim­ila hafa minnkað veru­lega, skuldir hins opin­bera – ríkis og sveit­ar­fé­laga – sömu­leiðis, og almennt hefur hagur fyr­ir­tækja vænkast. Atvinnu­leysi hefur verið lítið sem ekk­ert, lengst af á bil­inu 2 til 3 pró­sent, og mikil vöntun verið á starfs­fólki í mörgum atvinnu­greinum.

Íslenskur vinnu­mark­aður telur nú um 203 þús­und ein­stak­linga og hefur hann stækkað ört, ekki síst vegna upp­gangs í ferða­þjón­ustu og bygg­ing­ar­iðn­aði.

Eftir fall WOW air – og um 20 pró­sent geng­is­fall krón­unnar gagn­vart Banda­ríkja­dal og evru á und­an­förnu ári – er komin upp ný staða. Grein­endur eru farnir að spá kólnun í hag­kerf­inu. Í einni sviðs­mynd­inni, hjá grein­ing­ar­deild Arion banka, er því spáð að sam­dráttur verið í lands­fram­leiðslu á þessu ári, allt að 2 pró­sent.

Eftir fall WOW air – og um 20 prósent gengisfall krónunnar gagnvart Bandaríkjadal og evru á undanförnu ári – er komin upp ný staða.
Eftir fall WOW air – og um 20 pró­sent geng­is­fall krón­unnar gagn­vart Banda­ríkja­dal og evru á und­an­förnu ári – er komin upp ný staða.

Það á eftir að koma í ljós hvernig mál þró­ast, en ef svo væri að það yrði sam­dráttur í lands­fram­leiðslu, þá yrði það mikið áfall. Seðla­banki Íslands spáir ekki í sam­drætti á þessu ári, og hefur komið fram í grein­ingum hans - bæði í Fjár­mála­stöð­uð­ug­leika og Pen­inga­málum - að hag­kerfið hafi nú þegar gengið í gegnum ákveðna aðlögun, sem hefur komið fram í veik­ingu á gengi krón­unnar og fækkun ferða­manna. Þetta eigi ekki að leiða til mik­illa erf­ið­leika.

Hag­töl­urnar segja ekki alla sög­una og lík­lega er það krefj­andi fyrir mörg fyr­ir­tæki - ekki síst þau minni í ferða­þjón­ustu - að halda uppi öfl­ugu sölu- og mark­aðs­starfi, sem síðan skilar sér í auknum umsvifum með ráðn­ingum starfs­fólks.

Þegar það kreppir að í atvinnu­grein eins og ferða­þjón­ustu þá koma höggin hratt, með afbók­unum. Það mun því vafa­lítið reyna á mörg félög, að halda uppi góðri þjón­ustu fyrir rétt verð. Jafnvel þó hag­vaxt­ar­töl­urnar falli ekki svo mikið, þá verður það krefj­andi að halda uppi góðri þjón­ustu í harðri sam­keppni.

Samkvæmt því sem fram kemur í Fjár­mála­stöð­ug­leika þá gæti sæta­fram­boð í flugi til Íslands dreg­ist saman um 28 pró­sent á þessu ári, sam­an­borið við síð­asta ár. Samt er nokkuð erfitt að segja til um þró­un­ina þar sem erlend flug­fé­lög munu ráða því hversu vel mun ganga að fylla upp í skarðið sem fall WOW air skildi eftir. Nú þegar hafa erlend flug­fé­lög brugð­ist við með fjölgun ferða, en fleiri þættir koma til.

Mikill ávinningur af eignum

Eigið fé fyr­ir­tækja í eigu rík­is­ins hefur vaxið mikið á und­an­förnum árum. Ekkert fyr­ir­tæki í rík­i­s­eigu er með meira eigið fé en Lands­virkjun en það nam rúm­lega 2,1 millj­arði Banda­ríkja­dala í lok árs, eða sem nemur um 245 millj­örðum króna.

Þar á eftir kemur Lands­bank­inn en eigið fé þess bank­ans var 239,6 millj­arðar króna í árs­lok. Íslands­banki var með 176,4 millj­arða króna í eigið fé í lok árs í fyrra og hjá Isavia, sem rekur flug­velli í land­inu, þá var eigið féð 35,2 millj­arðar króna. Sam­an­lagt eigið fé þess­ara fyr­ir­tækja, sem öll eru í rík­i­s­eigu, nam 696,2 millj­örðum króna í árs­lok.

Það er þó aðeins bók­fært virði, en lík­legt má telja að virði t.d. Lands­virkj­unar sé mun hærra en sem nemur bók­færðu eigið fé. Fyr­ir­sjá­an­legt er að fyr­ir­tækið muni í fram­tíð­inni skila 10 til 20 millj­arða arð­greiðslum til ríks­ins - eða í Þjóð­ar­sjóð, eftir því hvernig ákveðið verður að ráð­stafa fénu - á hverju ári. Og halda áfram að borga niður skuldir.

Sé miðað við tvö­f­ald til þrefalt eigið fé fyr­ir­tæk­is­ins, sem verð­miða, þá er virði þess allt að 735 millj­arðar króna. Sé mið tekið af því þá er virði eigna rík­is­ins, í þessum fjórum fyr­ir­tækjum, 1.186,2 millj­arðar króna. Það er örlítið hærri upp­hæð, en sem nemur mark­aðsvirði allra skráðu félag­anna á aðal­mark­aði Nasdaq kaup­hallar Íslands. Það er einnig svipuð upp­hæð og sem nemur virði allra afla­heim­ilda í íslenskri lög­sögu, sé litið til algengs virðis í við­skiptum með kvóta.

Þetta eru því mikil verð­mæti sem íslenskur almenn­ingur á í þessum fyr­ir­tækjum. Frá því árið 2013 hafa þau skilað rík­is­sjóði meira en 170 millj­örðum í arð­greiðslur, og þar af hafa komið 142 millj­arðar frá Lands­bank­anum.

Miklar eignir lífeyrissjóða

Íslenskur almenn­ingur á um helm­ing allra skráðra bréfa á hluta­bréfa­mark­aðnum, í gegnum eign­ar­að­ild líf­eyr­is­sjóð­anna. Eignir líf­eyr­is­sjóð­anna hafa aldrei verið meira og hafa þær vaxið mikið á und­an­förnum árum. Eignir líf­eyr­is­sjóða námu 4.451 millj­örðum króna í lok febr­úar og hækk­uðu um 63 millj­arða eða 1,4 pró­sent frá mán­uð­inum á undan. Þar af voru eignir sam­trygg­inga­deilda 4.002 millj­arðar og sér­eigna­deilda 448 millj­arðar.

Í lok febr­úar námu inn­lendar eignir líf­eyr­is­sjóða 3.226 millj­arðar króna. Þar af voru inn­lán í inn­lendum inn­láns­stofn­unum 159 millj­arðar og inn­lend útlán og mark­aðs­verð­bréf 2.951 millj­arðar. Erlendar eignir líf­eyr­is­sjóða voru 1.225 millj­arðar í lok febr­úar.

Er stefnan að losa um þessar eignir?

Sé horft til stefnu stjórn­mála­flokk­anna, þá er ekki mik­ill áhugi hjá þeim á því að selja eignir í þessum fyrr­nefndu rík­is­fyr­ir­tækja, þá þá helst hjá Sjálf­stæð­is­flokknum og Viðreisn. Aðrir flokkar hafa ekki haft það að stefnu að selja eign­ar­hluti í þessum fyrr­nefndu fyr­ir­tækjum, hvorki bönk­unum né öðrum.

Hins vegar er það engu að síður á stefnu­skrá rík­is­stjórn­ar­innar, sam­kvæmt stjórn­ar­sátt­mála, að minnka eign­ar­hluti rík­is­sjóðs í bönk­unum.

Horft hefur verið til þess að selja Íslands­banka að öllu leyti og að ríkið geti haldið eftir 30 til 40 pró­sent eign­ar­hlut í Lands­bank­anum, en sölu­ferli er ekki komið af stað og ólík­legt að það ger­ist á þessu kjör­tíma­bili úr þessu.

Þó geta hlut­irnir hreyfst hratt ef það finnst ein­hver áhuga­samur kaup­andi, eins og t.d. einn stóru bank­anna á Norð­ur­lönd­unum.

Í Evrópu hafa bankar ekki mikið verið að kaupa aðra banka og stækka þannig, þessi miss­erin, og hingað til hefur ekki verið auð­velt að fá erlenda fjár­festa að íslenska banka­kerf­inu.

Þrátt fyrir að tví­hliða skrán­ing Arion banka, á Íslandi og í Svíþjóð, hafi heppn­ast að mörgu leyti vel, þá er samt ljóst af þeirri reynslu að und­ir­búa þarf vel sölu á bönk­unum ef það á að gera það í gegnum skrán­ingu á markað, og það er ekki heldur auð­velt að selja of mikið í einu með þeim hætti, þar sem hætta er á því að það bitni á verð­inu. Mark­aðsvirði Arion banka hefur frá skrán­ingu verið tölu­vert fyrir neðan eigið fé, svo dæmi sé tekið, en það er nú um 150 millj­arðar en eigið féð var í árs­lok 200,9 millj­arðar króna.

Póltískt er því ekki mik­ill áhugi á því að losa um eign­ar­hluti rík­is­ins í þessum fyrr­nefndu fyr­ir­tækjum, jafn­vel þó áhugi sé á því innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Við­reisna, en áhug­inn er þó helst bund­inn við bank­anna.

Til þess að það geti orðið að veru­leika þarf sam­þykki ann­arra flokka til, og eins og mál standa nú er sala á eignum ekki á for­gangs­lista Mið­flokks­ins, Fram­sókn­ar­flokks­ins, Pírata, Sam­fylk­ing­ar­innar og Vinstri grænna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár