Tobba Marinós hættir hjá DV

Tobba hefur stýrt DV frá því í lok mars á síð­asta ári. Hún ætlar nú að ein­beita sér að fjöl­skyldu­fyr­ir­tæki sem hún á ásamt móður sinni.

Þorbjörg Mar­in­ós­dóttir, einnig þekkt sem Tobba Mar­inós, hefur sagt starfi sínu sem rit­stjóri DV lausu. Frá þessu er greint á vef Frétta­blaðs­ins. Að því er fram kemur í frétt Frétta­blaðs­ins ætlar Tobba að ein­beita sér að fjöl­skyldu­fyr­ir­tæk­inu Nátt­úru­lega gott sem hún á ásamt móður sinni.

Tobba hefur starfað sem rit­stjóri DV í næstum ár en hún tók við stöð­unni í lok mars í fyrra, þá skömmu eftir að Frjáls fjöl­miðlun ehf., sem þá var útgáfu­fé­lag DV, var sam­einað Torgi, eig­anda Frétta­blaðs­ins og Hring­brautar. Líkt og segir í frétt DV sem var birt þegar Tobba tók við starfi rit­stjóra þá er hún fjöl­miðla­fræð­ingur að mennt og með masters­gráðu í verk­efna­stjórnun. Þá hefur hún einnig skrifað fjölda bóka, stýrt sjón­varps­þáttum, starfað í útvarpi og á fjöl­miðlum svo sem Séð og Heyrt, á Skjá­einum og á Morg­un­blað­inu.

DV kemur út einu sinni í viku. Samkvæmt könnun Gallup mælist heild­ar­lestur DV hjá öllum ald­urs­hópum nún um 2,9 pró­sent. Hjá lands­mönnum á aldr­inum 18-49 ára mælist lestur blaðs­ins 2,0 pró­sent en lestur þess hjá þeim ald­urs­hópi hefur dreg­ist saman um rúm­lega 70 pró­sent á tveimur árum.

Vefur DV, dv.is, er hins vegar á meðal þeirra mest lesnu á Íslandi. Hann er sem stendur í þriðja sæti yfir þá vefi sem fá flestar viku­legar heim­sóknir hér­lendis, á eftir visir.is og mbl.is. Notendur DV í tíundu viku árs­ins voru alls 394.404 tals­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár