Skuldsettir eru komnir í viðkvæma stöðu

Jón Daníelsson, prófessor í hagfræði, segir að búast megi við að vextir snarhækki vegna stríðsins í Úkraínu. Sigríður Benedikts­dóttir, sem kennir hagfræði í Yale-háskóla, segir að hækkun vaxta muni leggjast harðast á ungar barna­fjölskyldur. Enginn fari varhluta af hækkun vöruverðs en það verði erfiðast fyrir lágtekju­fólk.

„Umheimurinn magnar Ísland upp. Þegar vel gengur erlendis er mjög gott á Íslandi en þegar illa gengur erlendis þá er mjög slæmt ástand á Íslandi. Það er staðreynd vegna þess að við erum fámenn þjóð og búum við fábreytt efnahagslíf sem leiðir til þess að við mögnum upp allar sveiflur annars staðar frá, bæði upp og niður,“ segir Jón Daníelsson, prófessor í hagfræði við London School of Economics.

Tveir ákaf­lega við­kvæmir hópar Jón Dan­í­els­son pró­fessor í hag­fræði segir að fólk sem sé mikið skuld­sett vegna fast­eigna­lána og lág­launa­fólk sé nú ákaf­lega við­kvæmt fyrir sam­drætti í efna­hags­líf­inu

Stundin ræddi við hann og Sigríði Benedikts­dóttur, kennara í hagfræði við Yale-háskóla í Banda­ríkjunum, um hvaða áhrif stríðið í Úkraínu, heims­faraldur og mikil hækkun húsnæðis­verðs á Íslandi mun hafa á almenning hér.

Jón og Sigríður eru sammála um að fastlega megi búast við að vextir hækki …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jónsson Höskuldur skrifaði
    Það aeti að vara gott fyrir enokunar fyrtaekja í í sjafarútvegsrekstri að fiskvarð haekki á markaðnum (fiskur er nefnilega matavaeli ,eða hvað )og ekki vernsnar afkoma sjafarútvegs ef gengið íslenska fellur ,eða hvað .
    Skrítið að ekkert heirist neitt val í kvótafurstunum .
    Aetli það sé einhver ástaða fyrir þeirri þögn ,eða hvað
    -1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár