RÚV gerir alvarlegar athugasemdir við könnun sem fjölmiðlanefnd lét gera

RÚV segir að rang­færslur í taln­ingu og sú grunn­for­senda að snið­ganga eig­in­lega kosn­inga­um­fjöllun RÚV í úttekt sem birt var í dag rýri gildi hennar veru­lega.

Rík­is­út­varpið (RÚV) gerir alvar­legar athuga­semdir við könnun sem fjöl­miðla­nefnd lét gera á við­horfi almenn­ings til hlut­lægni í frétta­flutn­ingi Rík­is­út­varps­ins á öllum miðlum þess og grein­ingu á kosn­inga­um­fjöllun frétta­stof­unnar fyrir alþing­is­kosn­ingar 2016.

[links]Í frétt á vef RÚV segir að rang­færslur í taln­ingu og sú grunn­for­senda úttekt­ar­innar að snið­ganga hina eig­in­legu kosn­inga­um­fjöllun RÚV rýri gildið veru­lega. „Fjöl­miðla­nefnd hefur birt könnun um við­horf almenn­ings til hlut­lægni í frétta­flutn­ingi vorið 2016 og grein­ingu á kosn­inga­um­fjöllun RÚV í aðdrag­anda Alþing­is­kosn­inga 2016. Rík­is­út­varpið fékk kann­an­irnar til umsagnar og gerði alvar­legar athuga­semdir við þær báðar. Þrátt fyrir það hefur fjöl­miðla­nefnd nú ákveðið að birta þær. Rík­is­út­varpið birtir því athuga­semdir sínar“.

Athugasemdir RÚV eru hér að neðan:

Handahófskennd og ómarkviss talning - kosningaumfjöllun ekki talin með

„Rík­is­út­varpið fékk til yfir­lestrar skýrslu sem heitir Greining Creditinfo á kosn­inga­um­fjöllun RÚV 2013 og 2016 og er ómark­tæk að því leyti að hún tekur ekki til kosn­inga­um­fjöll­unar RÚV árið 2016. Það hefur nú verið stað­fest af Fjöl­miðla­nefnd sjálfri og Creditinfo sem hafa breytt titli skýrsl­unnar í Greining á fréttaum­fjöllun RÚV í aðdrag­anda Alþing­is­kosn­inga 2013 og 2016. Formleg kosn­inga­um­fjöllun fór fram í sér­stökum þáttum, leið­togaum­ræðum, For­ystu­sæt­inu, mál­efna­þáttum og kjör­dæma­þáttum, sam­tals hátt í 50 dag­skrár­liðum á fimm vikna tíma­bili. Þetta var fjöl­miðla­nefnd full­kunn­ugt um enda voru reglur um kosn­inga­um­fjöllun RÚV birtar opin­ber­lega fyrir kosn­ingar. Þrátt fyrir það var eng­inn þess­ara þátta skoð­aður í skýrslu Creditinfo. Þess í stað voru skoð­aðar fréttir í völdum frétta­tímum og við­töl í nokkrum reglu­legum þáttum í dag­skrá RÚV á tveimur vikum af þeim fimm sem kosn­ing­um­fjöllun RÚV stóð yfir.

Í grein­ing­unni er meðal ann­ars listi yfir 10 algeng­ustu við­mæl­endur í ljós­vaka­fréttum RÚV. Gerð er athuga­semd við taln­ing­una því sam­kvæmt bók­haldi frétta­stofu er rangt farið með taln­ingu í minnst fjórum til­vikum. Samkvæmt því bók­haldi vantar til að mynda for­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins á list­ann og fjöldi við­tala við suma aðra for­menn er ofmet­inn. Auk þess sem taln­ingin í könn­un­inni er bein­línis röng, þá skekkja for­sendur taln­ing­ar­innar nið­ur­stöð­una líka veru­lega. Með því að telja ein­göngu við­töl í völdum frétta­tímum dags­ins en sleppa öðrum fækkar við­tölum við suma for­menn. Auk þess skekk­ist nið­ur­staðan veru­lega við það að tak­marka tíma­bilið sem skoðað er við tvær vikur en ekki þær fimm vikur sem kosn­inga­um­fjöllun stóð.

Ítrekaðar langtímakannanir sýna yfirburðatraust til RÚV

Könnun sem fjöl­miðla­nefnd lét gera um við­horf almenn­ings til hlut­lægni í frétta­flutn­ingi RÚV er fram­kvæmd á afar óvenju­legum tíma í íslensku sam­fé­lagi, eða í maí 2016 – örfáum vikum eftir að Panama­skjölin voru birt, rík­is­stjórn Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks féll og boðað var til kosn­inga. Viðhorf almenn­ings til Frétta­stofu RÚV á þeim umróta­tímum end­ur­speglar að mati Rík­is­út­varps­ins ekki almennt við­horf almenn­ings til frétta­stof­unnar. Það vekur athygli að fjöl­miðla­nefnd hefur ekki látið gera neina sam­an­burð­ar­könnun síðan til að kanna gildi þeirrar sem gerð var skömmu eftir Pana­ma­málið. Í síð­ustu reglu­bundnu könnun MMR um traust til fjöl­miðla sem fram­kvæmd var í maí síð­ast­lið­inn var yfir­burða­traust til RÚV stað­fest enn á ný og þar kom fram að traustið eykst milli ára. 69,3% bera mikið eða mjög mikið traust til RÚV sem ber höfuð og herðar yfir aðra fjöl­miðla, en þeir sem næstir komu nutu trausts um 41% þjóð­ar­innar en það voru Frétta­blaðið og mbl.is.

[adspot]Það vekur athygli að fjöl­miðla­nefnd ákveði að birta nið­ur­stöður könn­unar fyrst nú, einu og hálfu ári eftir að hún var gerð, sem vekur spurn­ingar um til­gang hennar.

RÚV fagnar því að sjálf­sögðu að fjöl­miðla­nefnd skuli gera kann­anir og grein­ingar um marg­vís­lega þjón­ustu RÚV og hafi fengið til þess stuðn­ing mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­is­ins á þessum tíma. Til að gagn sé af könn­unum sem þessum er þó mik­il­vægt að þær séu gerðar með reglu­bundnum og sam­bæri­legum hætti og að þær stand­ist aðferða­fræði­legar kröfur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár