Tók byltinguna skrefinu lengra: „Fyllist viðbjóði yfir því hversu algengt kynferðisofbeldi er“

Edda Ýr Garð­ars­dóttir hvetur fólk til þess að skipta um for­síðu­mynd á Facebook í eina viku.

Tók byltinguna skrefinu lengra: „Fyllist viðbjóði yfir því hversu algengt kynferðisofbeldi er“

Edda Ýr Garð­ars­dóttir, mynd­list­ar­kenn­ari og móðir þriggja drengja, er ein þeirra sem hefur fylgst með Beauty tips bylt­ing­unni svoköll­uðu þar sem hund­ruð kvenna hefur síð­ustu miss­eri mót­mælt þöggun um kyn­ferð­is­legt ofbeldi með því að deila reynslu­sögum sínum. „Allar þessar reynslu­sögur á Beauty tips eru svo sterkar. Það er rosa­legt að sjá allar þessar sögur týn­ast inn og ég dáist að hug­rekk­inu, en fyllist líka við­bjóði yfir því hversu hrika­lega algengt kyn­ferð­is­of­beldi er,“ segir Edda Ýr.

Mjög góðar viðtökur

Hún lét ekki sitt eftir liggja og fékk Jóhönnu Svölu Rafns­dóttur vin­konu sína, og graf­ískan hönnuð, með sér í lið og saman bjuggu þær til for­síðu­myndir á Facebook. Gula myndin þýðir að þú þekkir ein­hvern sem hefur orðið fyrir kyn­ferð­is­legu ofbeldi. App­el­sínugula myndin að þú hafir orðið fyrir kyn­ferð­is­legu ofbeldi. Svo eru notuð við ‪#‎kon­ur­tala, ‪#‎þöggun og #outloud. 

Edda Ýr segir við­tök­urnar hafa verið mjög góðar og að fjöl­margir hafi skipt um for­síðu­myndir. „Við höfum fengið fyr­ir­spurnir um hvort við gætum bætt við litum, til dæmis að konur sem hefðu orðið fyrir heim­il­is­of­beldi hefðu sér­stakan lit. En við töldum sterkara að við værum að nota sömu mynd­irnar en fólki sé frjálst að gera það sem það vill með þær. Þetta er átak sem má gjarnan þró­ast. Ég sá til dæmis eina flotta mynd hjá karl­manni sem vildi styðja átakið og hann hafði sett gagn­sæa mynd yfir for­síðu­mynd­ina sína. Maður sér hann þarna skeggj­aðan undir mynd­inni. Mér fannst það mjög áhrifa­mikið,“ segir hún. 

Myndgera vandann

En hvernig kvikn­aði hug­myndin að átak­inu? „Ég fór að hugsa til þess þegar ég fór að sjá Píku­sögur á sínum tíma í litlum sal í Borg­ar­leik­hús­inu og síðar aftur í stærri sal. Þá fannst mér svo sterkt að verða vitni að því þegar fólk var beðið um að standa upp ef því hefði verið nauðgað, svo ef ein­hverjum nákomnum hefði verið nauðgað; vinur, vin­kona eða kunn­ingi. Man ekki nákvæm­lega hvernig þetta var en að lokum stóðu allir í salnum og það var svo hræði­lega sorg­legt,“ segir Edda Ýr. 

Edda Ýr bendir á þó svo að kraftur bylt­ing­ar­innar hafi spurst út þá sé Beauty tips lok­aður hópur. „Mig lang­aði því að taka þetta skref­inu lengra og mynd­gera vand­ann með aðstoð vin­konu minnar,“ segir hún.

„Um leið og Facebook fyllist af þessum prófil­myndum þá verður það svo sýni­legt hversu hrylli­lega stórt mein nauðg­un­ar­menn­ingin er. Hún snertir okkur öll.“

„Þetta hefur alla burði til að verða alþjóð­leg vakn­ing held ég. Mynd­irnar eiga að vekja fólk til umhugs­unar og virkja sam­taka­mátt fjöld­ans. Við þurfum að breyta! Við getum öll haft áhrif og breytt heim­inum til hins betra með stóru eða smáu. Um leið og Facebook fyllist af þessum prófil­myndum þá verður það svo sýni­legt hversu hrylli­lega stórt mein nauðg­un­ar­menn­ingin er. Hún snertir okkur öll,“ segir Edda Ýr. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
4
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
6
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár