Ungur maður lést á AA-fundi

Lög­reglan rann­sakar svip­leg dauðs­föll ung­menna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu und­an­farnar vikur og mán­uði. Þeirra á meðal er and­lát ungs manns á AA-fundi í gær. Þau og fleiri eru syrgð á sam­fé­lags­miðlum.

Ungur maður lést á AA-fundi
Mikil sorg Ungmenna sem voru bráð­kvödd yfir hátíð­arnar er nú meðal ann­ars minnst á sam­fé­lags­miðlum af vinum, fjöl­skyldu og kunn­ingjum. Mynd: Shutterstock

Ungur maður varð bráð­kvaddur á AA-fundi í húsi við Tjarn­ar­götu í Reykja­vík í gær­kvöldi. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá lög­reglu er and­lát hans nú rann­sakað. Maðurinn, sem var á þrí­tugs­aldri, fannst lát­inn inni á sal­erni. Dán­ar­or­sökin er enn óljós.

Lög­reglan var kölluð á stað­inn, sem og prestur sem veitti félögum manns­ins sál­gæslu fram að mið­nætti.

Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar hafði mað­ur­inn breytt um lífs­stíl og ákveðið að hætta allri neyslu vímu­efna.

Stundin ræddi við fyrrum vímu­efna­sala sem lýsir því að fjöldi ungs fólks hafi lát­ist að und­an­förnu.  Hann segir að ástæðan sé oft lækna­dóp sem flæðir um götur Reykja­víkur í meira magni en hafi sést áður. Maðurinn, sem Stundin ræddi við, stund­aði áður við­skipti með lækna­dóp. Hann keypti rita­lín af skólakrökkum og fleirum og seldi sprautu­fíklum. Hann segir mikla sorg ríkja í „borg­inni okkar“ um þessar mundir en margir kunn­ingja hans hafi verið bráð­kvaddir á und­an­förnum mán­uðum, vikum og dögum.

„Voru ekki á leiðinni að kveðja“

„Þetta er bara rosa­legt. Sex ein­stak­lingar á innan við fjórum vikum. Þrír þeirra rétt skriðnir yfir tví­tugt en hinir á fer­tugs­aldri. Eftir því sem ég best veit voru þetta allt krakkar sem voru ekki á leið­inni að kveðja. Þeir héldu það ekki og þeirra nán­ustu óraði ekki fyrir því ... en það gerð­ist samt,“ segir hann. Sjálfur hefur hann snúið lífi sínu til betri vegar.

Eins og áður segir sér­hæfði hann sig í að selja alls kyns lækna­dóp eins og til dæmis Ritalín. Rita­línið fékk hann frá skólakrökkum, mörgum hverjum sem not­uðu ekki fíkni­efni, sem höfðu farið til geð­læknis gagn­gert til þess að fá úthlutað lyf til end­ur­sölu á svörtum mark­aði.

„Í ein­hver örfá skipti voru þetta krakkar sem voru að detta í prófa­törn sem keyptu af mér en aðal­lega sprautu­fíklar. Fólk verður svo svaka­lega háð þessu og langstærsti hlut­inn sprautar þessu í sig. Ég hef verið við­rið­inn þennan heim í mörg mörg ár en er á beinu braut­inni í dag.“

Læknadópið flæðir
Lækna­dópið flæðir Maðurinn sem Stundin ræddi við seldi ein­ungis lækna­dóp. Hann seg­ist aldrei hafa séð jafn mikið magn af lækna­dópi og nú á svörtum mörk­uðum.

Gífurlegt magn af læknadópi

Á árinu hafa fjöl­miðlar greint frá nokkrum ung­mennum sem hafa verið bráð­kvödd og fram hefur komið að grunur leiki á um að ein­hver þeirra dauðs­falla teng­ist neyslu fíkni­efna. Lækna­dópsal­inn fyrr­ver­andi segir að notkun þess­ara hörðu efna sé að aukast. 

„Þetta er að aukast og aldur þeirra sem er að nota þetta harða lækna­dóp fær­ist alltaf neðar og neðar. Krakkar niður í fjórtán og fimmtán ára orðnir harðir lækna­dóp­fíklar. Fíklar í mor­fín og bensó-lyf. Það er líka gíf­ur­legt fram­boð af lækna­dópi þannig að það er nóg til. Það má eig­in­lega segja að það hafi orðið algjör spreng­ing í fram­boði á lækna­dópi á und­an­förnum árum. Það eru til yfir hund­rað íslenskir sölu­hópar á Facebook sem selja bara fíkni­efni og lækna­dóp.“

Grafalvarleg staða

Aðspurður segir hann lítið hægt að gera til að fyr­ir­byggja mis­notkun þess­ara efna. „Það hættir eng­inn að nota nema hann vilji það sjálfur. Ég vona samt að þeir sem eru þarna úti að nota átti sig á alvar­leika máls­ins þegar vin­irnir og vin­kon­urnar deyja hingað og þangað um borg­ina. Við þurfum líka að fara að ræða þessa grafal­var­legu stöðu sem komin er í þennan lækna­dóps­markað. Hann er að springa.“

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Land­lækn­is­emb­ætt­inu er ekki hægt að fá tölur um þá sem hafa látið lífið á und­an­förnum dögum eða jafn­vel vikum þar sem dán­ar­vott­orð eru ekki gefið út fyrr en dán­ar­or­sök liggur form­lega fyrir. Þær rann­sóknir eru í höndum lög­reglu og geta tekið mis­langan tíma.

Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu stað­festi að verið væri að rann­saka fleiri en eitt mál þar sem um er að ræða bráð­kvadda unga ein­stak­linga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár