Stríðsglæpamaðurinn sem við elskuðum: Saga af glæpum og meðvirkni

Íslenska þjóðin stóð með stríðs­glæpa­manni sem stóð að skefja­lausu ofbeldi og morðum á gyð­ingum og fleirum. Morg­un­blaðið tók þá fyrir sem bentu á sann­anir í máli Eðvalds Hin­riks­sonar og tengdi þá við sov­ésku leyni­þjón­ust­una.

Eðvald Hinriksson
Eðvald Hin­riks­son Íslenska þjóðin varði mann sem sak­aður var um morð og nauðg­anir og hafði hjálpað nas­istum í seinni heims­styrj­öld. Mynd: Morgunblaðið

Í lok nóv­em­ber 1946 strand­aði gufu­bát­ur­inn Rosita við Njarðvík. Rosita var að koma frá Noregi og meðal far­þega var eist­neskur maður, Evald Mikson að nafni. Hann var á leið­inni til Venezúela.

Evald Mikson ílent­ist hins vegar á Íslandi, fékk íslenzkan rík­is­borg­ara­rétt og nafnið Eðvald Hin­riks­son. Saga hans er ein­stæður kafli í íslenzkri sögu efnis síns vegna, en lýsir líka sam­fé­lagi þar sem sann­leikur og rétt­læti eru lögð á póli­tískar og per­sónu­legar vog­ar­skálar.

Forsagan

Saga Evalds Miksons verður hins vegar ekki skilin nema í sam­hengi við sögu Eist­lands.

Eistland fékk sjálf­stæði skömmu eftir fyrri heims­styrj­öld, en með griða­sátt­mála Hitlers og Stalíns 1939 komst landið undir yfir­ráða­svæði Sov­ét­ríkj­anna. Ekki löngu síðar var það inn­limað og varð eitt af ráð­stjórn­ar­ríkj­unum.

Vorið 1941 rauf Hitler hins vegar sátt­mál­ann og réðst inn í Sov­ét­ríkin. Leiðin lá vita­skuld í gegnum Eistland og þar hefst saga okkar af Evald Mikson.

…

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár