Skömmuðu starfsmann Isavia fyrir „status“ og prentuðu út „like“

Grétar Her­manns­son, sem er hættur í örygg­is­deild Isavia, gagn­rýndi álág á starfs­menn í stöðu­færslu á Facebook. Sam­starfs­menn hans voru látnir svara fyrir „like“ sín við stöðu­færsl­una.

Skömmuðu starfsmann Isavia fyrir „status“ og prentuðu út „like“
Starfs­manna­stjóri Tveir starfs­menn Isavia segja að Sóley Ragn­ars­dóttir hafi prentað út lista af „like-um“.

Grétar Her­manns­son, þá starfs­maður við örygg­is­deild Isavia, skrif­aði stöðu­færslu á sína per­sónu­legu Facebook-síðu síð­ast­lið­inn mánu­dag þar sem hann gagn­rýndi álag á flug­vernd­ar­gæslu Isavia. Margir sam­starfs­menn hans „like-uðu“ þessa færslu.

Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar var þeim starfs­mönnum sem „like-uðu“ veitt til­tal í gær.

Einn þeirra starfs­manna sem voru skamm­aðir segir að starfs­manna­stjóri hafi prentað út list­ann yfir „like-in“ og sýnt sem og sönn­un­ar­gagn.

Uppfært: Upp­lýs­inga­full­trúi Isavia segir í sam­tali við Stundina að um hafi verið að ræða „óform­legt og jákvætt spjall“ um hvort góðar fyr­ir­myndir setji „like“ við nei­kvæðar fréttir af fyr­ir­tæk­inu. Hann hafnar því að starfs­manna­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins hafi komið að mál­inu. Nánar hér.

„Isavia er að tæta í kass­ann vegna þess­arar fjölda ferða­manna, það skilar sér ekki til síns vinn­andi manns á gólf­inu. Hvorki í launum né öðru, jú fengum ávexti á ham­ingju­dögum,“ sagði Grétar meðal ann­ars í stöðu­upp­færslu sinni.

Kvartaði undan álagi

Stöðu­færsla Grétars fjall­aði líkt og fyrr segir um það mikla álag sem er á starfs­mönnum flug­vernd­ar­gæsl­unnar. „Gríð­ar­lega mikið álag er á flug­vernd­ar­gæslu Isavia. Ekki er bætt mikið við af mann­skap vegna þess­arar fjölg­unar far­þega.(menn helst reknir vegna þess að þeir eru of gamlir og ekk­ert graðir) Menn eru að vakna um kl 0430 á nótt­unni til þess að koma til vinnu 0530. Unnið er á 12 klst vakt og það er unnið í 12 klst. Lítið um pásur eða kaffi­tíma,“ skrif­aði Grétar. Hann bætir svo við að upp­á­stungum um hvernig megi minnka álagið. Þar nefnir hann meðal ann­ars að hægt sé að fjölga mann­skap, hækka laun eða bæta sam­skipti við yfir­menn á þriðju hæð. „Isavia er að tæta í kass­ann vegna þess­arar fjölda ferða­manna, það skilar sér ekki til síns vinn­andi manns á gólf­inu. Hvorki í launum né öðru, jú fengum ávexti á ham­ingju­dögum,“ skrif­aði Grétar. Stöðu­færslan var með 43 „like“ nú fyrir hádegi á föstu­degi.

Statusinn í heild sinni
Status­inn í heild sinni Hér má sjá að 43 „like-uðu“ .

Látnir svara fyrir að líka við

Núver­andi starfs­maður hjá örygg­is­deild­inni, sem óskar eftir nafn­leynd, seg­ist hafa verið einn þeirra sem hafi verið skammaður fyrir „like“. „Menn voru kall­aðir upp til deild­ar­stjóra flug­vernd­ar­gæslu í gær og í dag vegna þess að menn voru með status hjá sér sem var ekki Isavia að skapi. Menn voru látnir svara því afhverju þeir voru læka þennan status. Mannauðs­stjóri Sóley Ragn­ars­dóttir dró upp útprentun úr Facebook og sagði að þessi maður Grétar Her­manns­son fengi aldrei stöðu­hækkun innan Isavia aftur,“ skrif­aði starfs­mað­ur­inn í tölvu­pósti til blaða­manns í gær.

Útprentaður listi yfir „like“

Í sam­tali við Stundina vildi Grétar sjálfur sem minnst tjá sig um málið utan þess að hann stað­festi í megin atriðum frá­sögn síns fyrr­ver­andi sam­starfs­manns. Honum hafi verið veitt til­tal og sýndur útprent­aður listi af „like-um“. Hans sein­asti vinnu­dagur hjá Isavia var í gær en hann hafði ákveðið að hætta hjá opin­bera fyr­ir­tæk­inu áður en hann var skammaður fyrir stöðu­færsl­una. Hann bætir við að þetta sé ekki í fyrsta skipti sem stöðu­færsla hans á Facebook hafi verið gagn­rýnd af yfir­mönnum Isavia.

Sóley Ragna Ragn­ars­dóttir tjáði blaða­manni í SMS að hún gæti ekki talað þar sem hún væri á fundi þegar leit­ast var eftir við­brögðum hennar. Svipaða sögu er að segja um Árna Gísla Árnason, yfir­mann örygg­is­deildar Isavia, en ekki náð­ist í hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Isavia

InnlentIsavia

Isavia fær 6,3 millj­arða lán­aða til við­bótar: „Óvissan er engu að síður enn þá veru­leg“

Evrópski fjár­fest­inga­bank­inn hefur sam­þykkt að veita Isavia lán upp á 40 millj­ónir evra sem sam­svarar um 6,3 millj­örðum króna. Þetta kemur fram á vef Isavia. Þar segir að um loka­á­drátt vegna láns upp á 100 millj­ónir evra sem bank­inn veitti félag­inu árið 2018 sé að ræða, lánið er veitt til fram­kvæmda á Kefla­vík­ur­flug­velli. „Þessi fjár­mögnun kemur til við­bótar við fjóra...
InnlentIsavia

Færri far­þegar um Kefla­vík­ur­flug­völl á nýju ári

Reiknað er með að fjöldi far­þega sem fara um Kefla­vík­ur­flug­völl árið 2020 verði tæp­lega 6,7 millj­ónir og fækki því um 7,6% ef miðað er við árið 2019. Þetta kemur fram í far­þeg­a­spá Isavia fyrir árið 2020. Heild­ar­fjöldi komu­far­arfar­þega verður tæpar 2,6 millj­ónir, sem er 1,4% sam­dráttur frá í fyrra, sam­kvæmt spánni. Annað árið í röð fækkar skiptifar­þegum mest. Þeir fara...
InnlentIsavia

Sam­komu­lag WOW og Isavia vegna millj­arð króna skuldar stóðst allt fram í febr­úar

Wow og Isavia lögðu drög að sam­komu­lagi í lok sept­em­ber 2018 vegna millj­arð króna skuld flug­fé­lags­ins á þeim tíma, sem greiða átti í 13 aðskildum afborg­unum sem myndu teygja sig yfir síð­ustu tvo mán­uði árs­ins 2018 og fyrstu 11 mán­uði árs­ins 2019. Skilum sam­kvæmt sam­komu­lag­inu stóðu fram í febr­úar. Morg­un­blaðið greindi frá.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár