Sigmundur hefur ekki mætt í neina atkvæðagreiðslu á haustþingi

Fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins hefur þegið fullt þing­far­ar­kaup með álagi án þess að sitja í neinni þing­nefnd. Segist hafa verið upp­tek­inn við að halda í for­manns­stól­inn.

Sigmundur hefur ekki mætt í neina atkvæðagreiðslu á haustþingi

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, hefur ekki mætt í eina ein­ustu atkvæða­greiðslu á haust­þingi. Þetta sýna upp­lýs­ingar á vef þings­ins. 

Sig­mundur situr ekki í neinni fasta­nefnd á vegum Alþingis og hefur því ekki þurft að mæta á nefnd­ar­fundi eða sinna nefnd­ar­störfum af neinu tagi. Engu að síður hefur hann þegið fullt þing­far­ar­kaup auk 50 pró­senta álags sem for­maður stjórn­mála­flokks. Jafn­framt átti hann rétt á bið­launum sem fyrr­ver­andi ráð­herra í sex mán­uði eftir að hann sagði af sér. Stundin hefur sent for­sæt­is­ráðu­neyt­inu fyr­ir­spurn um hvort Sig­mundur hafi þegið þau.

Frétta­stofa RÚV fjall­aði um mæt­ingu þing­manna í gær og fékk skýr­ingar frá Sigmundi á fjar­veru hans. „Sig­mundur seg­ist í skila­boðum til frétta­manns hafa verið nokkuð upp­tek­inn við að verj­ast ítrek­uðum til­raunum til að fella hann sem for­mann flokks­ins,“ segir í frétt RÚV. 

Guð­mundur Stein­gríms­son, þing­maður Bjartrar fram­tíðar, gerði mæt­ingu Sig­mundar Davíðs að umtals­efni á Alþingi um dag­inn. „Það er einn óbreyttur þing­maður á meðal okkar sem situr ekki í neinni þing­nefnd. Það er hátt­virtur þing­maður Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, sem var áður for­sæt­is­ráð­herra en er núna þing­maður. Hann er á fullu þing­far­ar­kaupi og í raun og veru með 50% álagi vegna flokks­for­mennsku og hann er með aðstoð­ar­mann líka. Eru for­dæmi fyrir því að óbreyttir þing­menn sitji ekki í neinni þing­nefnd og taki þar með ekki þátt í nefnda­störfum svo ekki sé talað um að mæta ekki í atkvæða­greiðslur og taka ekki til máls í pontu Alþingis?“ spurði hann.

Einar K. Guð­finns­son, for­seti Alþingis, sagð­ist ekki treysta sér til að svara því hvort sögu­leg for­dæmi væru fyrir því að ein­stakir þing­menn hefðu ekki setið í þing­nefndum um lengri eða skemmri tíma. „Þetta er mál sem er fyrst og fremst í höndum þeirra þing­flokka sem í hlut eiga. Það eru, eins og við vitum, þing­flokk­arnir sem taka ákvörðun um skipan í nefndir í krafti þess þing­styrks sem við­kom­andi þing­flokkar hafa,“ sagði þing­for­seti og bætti við: „Það hefur aldrei verið svo þannig að for­seta sé kunn­ugt um að for­seti hafi haft afskipti af slíku enda mundi slíkt vænt­an­lega vera talin óeðli­leg afskipti af hálfu for­seta varð­andi þá skipan. Forseti treystir sér hins vegar ekki til þess að svara því hvort þau dæmi sem hátti­vrtur þing­maður vísar til hafi þekkst í for­tíð­inni.“

Samkvæmt sam­an­tekt RÚV hafa Björt Ólafs­dóttir úr Bjartri fram­tíð, Hösk­uldur Þór­halls­son úr Fram­sókn­ar­flokknum og Ögmundur Jónasson úr Vinstri grænum mætt verst í atkvæða­greiðslur á eftir Sigmundi Davíð.

Með bestu mæt­ing­una eru Steinunn Þóra Árna­dóttir, þing­kona Vinstri grænna, Willum Þór Þórsson, þing­maður Fram­sókn­ar­flokkns­ins, Ásta Guðrún Helga­dóttir Pírati, Þórunn Egils­dóttir úr Framsókn og Vil­hjálmur Bjarna­son úr Sjálf­stæð­is­flokknum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stjórnmálaflokkar

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár