Sagði sjö sinnum það sama og var stöðvaður af þáttastjórnanda: „Þú verður að vera með fleiri línur, þetta gengur ekki“

Ásmundur Einar Daðason, þing­flokks­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, end­ur­tók sömu full­yrð­ing­una sex sinnum í Viku­lok­unum á Rás 1, en loks bað þátta­stjórn­andi hann um að hætta.

Sagði sjö sinnum það sama og var stöðvaður af þáttastjórnanda: „Þú verður að vera með fleiri línur, þetta gengur ekki“

Ásmundur Einar Daðason, þing­flokks­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, sagði sömu setn­ing­una alls 7 sinnum í umræðum um Wintris-málið svo­nefnda í Viku­lok­unum á Rás 1 í morgun. Að lokum stöðv­aði þátta­stjórn­andi hann og sagði: „Þetta er í þriðja skiptið sem þú segir þetta. Þú verður að vera með fleiri línur, þetta gengur ekki.“

Aðeins smá­vægi­legar orða­lags­breyt­ingar mátti greina í máli þing­flokks­for­manns­ins þegar hann end­ur­tók sex sinnum þá full­yrð­ingu að það lægi ljóst fyrir að for­sæt­is­ráð­herra­hjónin, þau Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son og Anna Sig­ur­laug Páls­dóttir, hefðu greitt skatta af eignum sínum á Bresku jóm­frú­areyj­unum. Stundin tók saman ummæli Ásmundar:

1. „Það hafa verið greiddir fullir skattar af þessu.“

2. „Ég held að það liggi alveg ljóst fyrir að það liggi yfir­lýs­ingar fyrir um að það hafi verið greiddir skattar.“

3. „En það sem að liggur alveg ljóst fyrir er að það hafa verið greiddir skattar af þessu.“

4. „Það liggur ljóst fyrir að það hafa verið greiddir skattar af þessum fjár­hæðum.“

5. „Það liggur ljóst fyrir yfir­lýs­ingar frá þeirra end­ur­skoð­un­ar­fyr­ir­tækjum að það hafa verið greiddir skattar af þessu og það er alveg skýrt.“

6. „Það liggur algjör­lega ljóst fyrir að skattar hafa verið greiddir af þessu og það er stóra málið.“

7. „Það liggur alger­lega skýrt fyrir af hálfu hans að hann hefur sagt það og hans end­ur­skoð­endur, hans end­ur­skoð­endur hafa sagt það alveg skýrt að það hafi verið greiddir skattar.“

Í þætt­inum sagði Ásmundur einnig eft­ir­far­andi:

„Stóra málið í þessu er það að menn hafi greitt skatta og skyldur af þessu sem þarna um ræðir.“

„Stóra málið í öllu þessu hér er að skattar séu greiddir hér á landi og ég hygg að það hafi ekk­ert komið upp annað í mál­efnum for­sæt­is­ráð­herra en að það hafi verið gert.“

„For­sæt­is­ráð­herra hefur hins vegar sagt að hann hafi greitt sína skatta á Íslandi og ég hef enga ástæðu til að rengja það að svo sé.“

„Stóra málið í þessu er, og það hefur komið hérna fram, er hvort að menn hafi verið að greiða skatta af eignum sem eru í félögum erlendis.“

Þegar stefndi í að Ásmundur end­ur­tæki sig enn einu sinni gafst Einar Þor­steins­son, þátta­stjórn­andi Viku­lokanna, upp. „Þú ert búinn að segja þetta þrisvar sinnum,“ sagði hann. „Þetta er í þriðja skiptið sem þú segir þetta. Þú verður að vera með fleiri línur, þetta gengur ekki.“

Eins og fram kemur hér að ofan hafði Ásmundur þó sagt lín­una mun oftar en þrisvar sinnum. 

Ljóst er jafn­framt að full­yrð­ing Ásmundar stenst ekki fylli­lega skoðun. Eins og fram kom á fundi stjórn­ar­and­stöð­unnar með skatt­rann­sókn­ar­stjóra í gær hafa skatta­yf­ir­völd engin úrræði til að sann­reyna þær upp­lýs­ingar sem eig­endur aflands­fé­laga gefa íslenskum skatta­yf­ir­völdum. Þá hefur Kjarninn greint frá því að for­sæt­is­ráð­herra­hjónin svari engu um hvort sér­stöku CFC fram­tali vegna aflands­fé­lags­ins Wintris hafi verið skilað. 

Skemmst er að minn­ast þess að fyrr á árinu var einn af for­seta­fram­bjóð­endum Repúblik­ana, Marco Rubio, stað­inn að því að segja fjórum sinnum sömu setn­ing­una í kapp­ræðum. „Let's dispel with this fiction that Barack Obama doesn't know what he's doing. He knows exactly what he's doing,“ sagði Rubio aftur og aftur. Í kjöl­farið var hann hafður að háði og spotti í fjöl­miðlum og á sam­fé­lags­miðlum. Þótti atvikið draga fram með skemmti­legum hætti hve vara­samt það er fyrir stjórn­mála­menn að styðj­ast ein­göngu við tal­punkta (e. talking points) í kapp­ræðum.


Uppfært kl. 22:40:

Vef­mið­ill­inn Nútíminn hefur klippt saman og birt upp­töku af end­ur­tekn­ingum Ásmundar Einars, sjá hér. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórnin

Kristján Þór og Þorsteinn Már „nánir  vinir“ í skilningi stjórnsýslulaga
FréttirRíkisstjórnin

Kristján Þór og Þor­steinn Már „nánir vinir“ í skiln­ingi stjórn­sýslu­laga

Kristján Þór Júl­í­us­son sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra og Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, hafa ekki viljað svara spurn­ingum um eðli vin­áttu sinnar. Samkvæmt hæf­is­reglum stjórn­sýslu­laga getur „náin vin­átta“ haft áhrif á hæfi ráð­herra og ann­arra opin­berra starfs­manna en í slíkri vin­áttu felst meðal ann­ars að menn umgang­ist í frí­tíma sínum.
Af hverju er spilling frekar umborin á Íslandi en í Svíþjóð?
Úttekt

Af hverju er spill­ing frekar umborin á Íslandi en í Svíþjóð?

Munur á umræðu og aðgerðum stjórn­valda gegn spill­ingu í Svíþjóð og á Íslandi er hróp­lega mik­ill. Ákæru­valdið í Svíþjóð hefur á síð­ustu tveimur árum hafið rann­sókn á tveimur ráð­herrum vegna spill­ingar. Þessar rann­sóknir byggj­ast samt á veik­ari for­sendum en mörg mál sem komið hafa upp um íslenska ráð­herra á liðnum árum. Þá eru óform­legar reglur um spill­ingu og þol­in­mæði almenn­ings gagn­vart spill­ingu allt ann­ars konar á Íslandi en í Svíþjóð.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár