Sævar játar hótanirnar og er látinn víkja

Sævar Óli Helgason, vara­nefnd­ar­maður Pírata, skrifar opið bréf til móður lög­reglu­manns­ins sem hann hafði í hót­unum við og biðst afsök­unar um leið og hann úthúðar syni hennar.

Sævar játar hótanirnar og er látinn víkja

Sævar Óli Helgason, sem er vara­maður borg­ar­tjórn­ar­flokks Pírata í Faxa­flóa­nefnd, var ákærður fyrir að hóta lög­reglu­manni því að beita móður hans ofbeldi. Stundin greindi frá mál­inu í gær, en þá náð­ist ekki í Sævar Óla.

Sævar Óli hafði hlotið dóma fyrir ofbeld­is­verk áður en hann varð umboðs­maður Pírata fyrir borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar og fékk stöðu vara­nefnd­ar­manns. Hann hefur nú verið ákærður aftur og er gefið að sök að hafa haft í hót­unum við lög­reglu­mann. 

Hann hefur nú skrifað opið bréf sem hann stílar á móður lög­reglu­manns­ins, þar sem hann játar að hafa haft í hót­unum og biðst afsök­unar á fram­göngu sinni í mál­inu, eða því að hafa meðal ann­ars hótað að kag­hýða hana að syni hennar við­stöddum. Þá harmar hann að hún hafi dreg­ist inn í deilur hans við lög­reglu­mann­inn. Hann heldur þó áfram að úthúða syni hennar og segir að upp­eldið hafi farið illa. „Það var virki­lega ljótt og slæm af mér að gera, því auð­vitað á ekki að kenna þér um þó að svona illa hafi ræst úr upp­eld­inu á honum syni þínum.“

„Auðvitað á ekki að kenna þér um þó að svona illa hafi ræst úr upp­eld­inu á honum syni þínum.“

Þá seg­ist hann ekki þekkja til hennar, hann viti ekki hver hún sé og vilji ekki vita það. „Þrátt fyrir að hafa sagt annað við son þinn og lög­reglu ... Ég er bara ekki vanur þessum ljót­leika og þess­ari illsku sem hann sonur þinn sýndi mér.“

Hann hafi verið að bregð­ast við hót­unum lögeglu­manns­ins. „Hann sonur þinn var nefni­lega búinn að vera með beinar hót­anir við mig og mitt heim­ili með því­líkum óþverra munn­söfn­uði og ógn­andi hegðun sem ég ætla að ekk­ert heið­ar­legt for­eldri kenni barn­inu sínu.“

Telur sig vera skotmark lögreglu

Í bréf­inu segir Sævar að lög­reglan hafi óskað eftir því að sjá skil­ríkin hans. Hann hafi því sýnt þau. Í kjöl­farið hafi lög­reglu­mað­ur­inn elt hann uppi og verið ógn­andi þegar Sævar var að ganga frá vett­vangi. „Blöskr­aði mér þessi ógn­andi fram­koma sonar þíns í minn garð og fékk bara ein­fald­lega nóg... Því að svona hegðun er ekk­ert annað en ofbeldi!“

Segist hann eiga langa og leið­in­lega sögu um sam­skipti sín við lög­regl­una á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, sem teng­ist meðal ann­ars eign­ar­námi og lög­heim­il­is­flutn­ingi hans í ráð­herra­bú­stað­inn við Tjarn­ar­götu. Gerir hann að því skóna að hann sé orð­inn skot­mark innan lög­reglu og emb­ætt­is­kerfis fram­kvæmda­valds­ins. „Ég bara veit það ekki en mig grunar það og tel mig hafa ýms­legt fyrir því. Ég á samt ekki skilið þá fram­komu sem hann sonur þinn sýndi mér.“

Taldi nauðsynlegt að beita valdi eða ofbeldi

Sævar seg­ist hafa hringt í 112 og óskað eftir aðstoð lög­reglu, vegna atviks­ins sem átti sér stað á Lauga­veg­inum. Hann hafi fengið sam­band við lög­reglu. Á meðan hafi lög­reglu­mað­ur­inn haldið áfram að sýna ógn­andi fram­komu. „Enduðu þessi sam­skipti okkar á því að ég gafst upp og til­kynnti lög­reglu í gegnum sím­ann um borg­ara­lega hand­töku á syni þínum og óskaði eftir aðstoð lög­regl­unnar, því ann­ars myndi ég beita öllu því valdi sjálfur sem til þyrfti til að koma við­kom­andi undir manna hendur. Snéri mér svo að syni þínum og sagði honum að hann væri þar með hand­tek­inn!
Sonur þinn sagði mig vera rugl­aðan og varð enn æst­ari.“

Í þess­ari stöðu hafi Sævari talið „nauð­syn­legt að beita sama valdi/ofbeldi“ og sér hafi verið sýnt til að koma lög­reglu­mann­inum með „ein­hverjum ráðum í hendur yfir­valds“.

„Áður en ég myndi svo snúa mér að honum og trak­aði á and­lit­inu hans, inn­an­frá.“

„Þess vegna hót­aði ég honum á móti með því að segj­ast kag­hýða þig, að honum ásjá­andi, fyrir að ala upp svona vit­leys­ing eins og hann væri. Áður en ég myndi svo snúa mér að honum og trak­aði á and­lit­inu hans, inn­an­frá.“

Sævar segir að það hafi verið ljótt af honum að segja þetta. „Og ég sé mikið eftir því.“ Hann hafi ekki átt að blanda móður manns­ins inn í sam­skipti þeirra. Hann hafi verið að reyna að „jafna þá illsku og ljót­leika,“ sem honum hafi verið sýnd. „En það afsakar ekki það hugs­ana- og til­lits­leysi sem ég sýndi gagn­vart þér. Móður sem ég hef aldrei hitt né langar til þess að vita hver er. Ég bið þig því hér með inn­legrar afsök­unar!!!“

Reyndi að taka lögreglumanninn fastan

Málinu var því ekki lokið þarna, sam­kvæmt Sævari. Þegar hann hafi látið þessi orð falla hafi lög­reglu­mað­ur­inn reiðst illa, eða „tromp­ast“ eins og Sævar lýsir því. „Snéri mig niður, áræð­an­lega s.kv ein­hverri við­ur­kenndri „norskri“ aðferð, og kreisti hand­járn um hendur mér.“

Á lög­reglu­stöð­inni hafi Sævar til­kynnt öðrum lög­reglu­þjóni um borg­ara­lega hand­töku á lög­reglu­þjón­inum og sagt að hann hefði þurft að beita því valdi sem honum þætti til­hlýði­legt til að koma lög­reglu­mann­inum undir lög­reglu­hendur. Lög­reglan hafi hins vegar ekki tekið það í mál, og hand­tekið Sævar. Sam­skiptin hafi farið illa og Sævar end­ur­tekið hót­an­irnar í ýmsum útgáfum þar til hann fékk skýrslu­töku að lög­fræð­ingi við­stöddum. „En ekki mis­skilja mig,“ skrifar Sævar. „Þrátt fyrir eft­ir­sjá mína í þessu máli gagn­vart þér þá er ég til­bú­inn að hætta frels­inu til að leyfa syni þínum ekki kom­ast upp með þess konar hót­anir í minn garð, né nokk­urs ann­ars, einsog hann var með. Né að láta nokkra aðra emb­ætt­is­menn á Íslandi kom­ast upp með svona aðferðir yfir­leitt!“

„Þrátt fyrir eft­ir­sjá mína í þessu máli gagn­vart þér þá er ég til­bú­inn að hætta frels­inu.“ 

Að lokum biðst hann enn og aftur afsök­unar á að hafa blandað henni inn í deilur hans við lögeg­regl­una og gefur lof­orð um að hann munu að eilífu láta hana algjör­lega í friði. „Og mín er algjör skömm fyrir að hafa blandað þér inn í þetta mál.“ 

Líkt og fram kom í frétt gær­dags­ins þá var Sævar Óli dæmdur fyrir að rasskella ókunn­uga konu árið 2005, að bregða fæti fyrir sýslu­mann­inn á Selfossi og grípa um öxl hans árið 2006 og fyrir hús­brot á Ráð­herra­bú­staðnum við Tjarn­ar­götu árið 2013. Í kjöl­far umfjöll­unar um þessi mál fyrir borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar gáfu Píratar í Reykja­vík út stuðn­ings­yf­ir­lýs­ingu við hann. 

 

 

Opið bréf til móður lög­reglu­þjóns­ins sem ég hót­aði...! Ég ætla að biðja þig inni­legrar afsök­unar á því að hafa sagt...

Posted by Saevar Oli Helgason on Saturday, June 6, 2015

 

Uppfært mánu­dag­inn 8. júní kl. 12:33. 

Eftir að Stundin fjall­aði um ákæruna gegn Sævari Óla og hann skrif­aði ofan­greint bréf gaf odd­viti Pírata í borg­ar­stjórn, Halldór Auðar Svansson, það út í gær að Sævar Óli myndi missa stöðu sína sem vara­nefnd­ar­maður í flokknum. 

„Það er mat mitt, sem ber end­an­lega ábyrgð á trún­að­ar­stöðum Pírata innan Reykja­vík­ur­borgar, að málið kalli á að rétt og eðli­legt sé að önnur mann­eskja komi í hans stað í þessa stöðu,“ sagði Halldór Auðar. 

Þann 16. júní verður kosið um stjórn­ar­menn fyrir hönd Reykja­vík­ur­borgar í nefnd­ina og þá verður Sævar Óli ekki end­ur­kjör­inn fyrir hönd Pírata. 

Yfir­lýs­ingu Halldórs Auðars má lesa í heild sinni hér að neðan: 

 

Sævar Óli Helgason gegnir þeirri trún­að­ar­stöðu fyrir Pírata í Reykja­vík að vera vara­maður í stjórn Faxa­flóa­hafna. Slíkar...

Posted by Halldór Auðar Svansson on Sunday, June 7, 2015
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár