Óttarr skipar fyrrverandi stjórnarformann Bjartrar framtíðar sem stjórnarformann Sjúkratrygginga

Bryn­hildur S. Björns­dóttir, fyrr­ver­andi vara­þing­kona og stjórn­ar­for­maður Bjartrar fram­tíðar, mun fara fyrir mótun lang­tíma­stefnu fyrir Sjúkra­trygg­ingar Íslands.

Óttarr skipar fyrrverandi stjórnarformann Bjartrar framtíðar sem stjórnarformann Sjúkratrygginga

Óttarr Proppé heil­brigð­is­ráð­herra hefur skipað Bryn­hildi S. Björns­dóttur, fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­mann og vara­þing­konu Bjartrar fram­tíðar, sem stjórn­ar­for­mann Sjúkra­trygg­inga Íslands. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu frá ráðu­neyt­inu.

Bryn­hildur sótti nám í Harvard Business School árið 2016, lauk MSc. gráðu frá Háskóla Íslands í stjórnun og stefnu­mótun árið 2009 og BA frá Háskól­anum á Bifröst í hag­fræði, heim­speki og stjórn­mála­fræði árið 2007. 

Hún var stjórn­ar­for­maður Bjartrar fram­tíðar 2015-2016 og átti sæti á Alþingi sem vara­þing­maður fyrir Bjarta fram­tíð á síð­asta kjör­tíma­bili. Eftir að rík­is­stjórn Bjartrar fram­tíðar, Við­reisnar og Sjálf­stæð­is­flokks­ins tók við hefur Bryn­hildur haldið uppi vörnum og hvatn­ingu fyrir ráð­herra Bjartrar fram­tíðar á Facebook-síðu sinni.

Þegar greint var frá því í febr­úar að Björt Ólafs­dóttir umhverf­is­ráð­herra hefði gefið Alþingi rangar upp­lýs­ingar um ráð­staf­anir rík­is­stjórn­ar­innar til að fylgja stjórn­ar­sátt­mála sínum eftir skrif­aði Bryn­hildur: „Þetta er mesta 'much ado about not­hing' sem ég hef séð lengi. Póteitó-pótató. Hver skilur eða pælir í þessum fárán­lega háfleygu orðum á þingi? And who really cares?“ Þá hefur hún ítrekað hrósað Óttari Proppé fyrir störf hans sem heil­brigð­is­ráð­herra og furðað sig á gagn­rýni sem hann hefur sætt.

Hlutverk stjórnar Sjúkra­trygg­inga Íslands er að stað­festa skipu­lag stofn­un­ar­innar, árlega starfs­á­ætlun og fjár­hags­á­ætlun og marka henni lang­tíma­stefnu. Stjórnin hefur jafn­framt eft­ir­lit með starf­sem­inni og að rekstur stofn­un­ar­innar sé innan ramma fjár­laga á hverjum tíma.

Á meðal fyrri stjórn­ar­for­manna Sjúkra­trygg­inga eru Björn Zoëga, læknir og fyrr­ver­andi for­stjóri Land­spít­al­ans, Benedikt Jóhann­es­son trygg­inga­stærð­fræð­ingur og núver­andi fjár­mála­ráð­herra og Dagný Brynj­ólfs­dóttir, fyrr­ver­andi deild­ar­stjóri í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár