Hjúkrunarfræðingar gerast flugfreyjur

„Meiri örygg­is­menn­ing í flug­inu,“ segir for­maður Félags hjúkr­un­ar­fræð­inga.

Hjúkrunarfræðingar gerast flugfreyjur
Á Land­spít­al­anum Hjúkr­un­ar­fræð­ingar telja sig finna betri starfs­að­stæður í flugi en á spít­al­anum. Mynd: Kristinn Magnússon

Sér­fræð­ingar bráða­deildar Land­spít­al­ans hafa áhyggjur af öryggi sjúk­linga. Þeir segja starfs­fólk vera þreytt, en hjúkr­un­ar­fræð­ingar sækja í auknum mæli í að starfa sem flug­freyjur í stað þess að vinna á Land­spít­al­anum.

Hjúkr­un­ar­fræð­ingar færa sig meðal ann­ars yfir í störf hjá Wow Air og Icelandair til þess að fá betri vinnu­tíma og betri laun. Þá þyki hjúkr­un­ar­fræð­ingum fjöl­skyldu­vænna að starfa í flugi heldur en við það sem þeir mennt­uðu sig til.

Flugið hvíld frá álagi

Guðbjörg Páls­dóttir, for­maður Félags hjúkr­un­ar­fræð­inga, segir þá hjúkr­un­ar­fræð­inga sem fara í flug gefa mis­mun­andi skýr­ingar. „Sumir segja að þetta sé mjög góð hvíld frá miklu starfs­á­l­agi á Land­spít­ala. Til­breyt­ing, spenn­andi, gaman að finna að hjúkr­un­ar­fræð­ingar eru sér­stak­lega eft­ir­sóttir starfs­kraftar í önnur störf, eins og flugið, betri laun en þó ekki allir hund­rað pró­sent sam­mála um það. Þetta eru stundum lengri vaktir og langur tími að heiman en í færri skipti yfir mán­uð­inn og því getur það verið þægi­legra og fjöl­skyldu­vænna. Færri vinnu­klukku­stundir fyrir betri laun. Miklu meiri örygg­is­menn­ing í flug­inu.“

Árið 2014 fór fimmti hver nýút­skrif­aður hjúkr­un­ar­fræð­ingur í starf sem flug­freyja í stað þess að vinna við hjúkrun. Guðbjörg seg­ist telja að hjúkr­un­ar­fræð­ingar hafi sóst meira í flu­freyju­störf í ár en áður. Fyr­ir­spurn hennar til flug­fé­lag­anna Wow Air og Icelandair um það hafi hins vegar ekki verið svarað. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár