Hefði verið „skemmtilegra“ að fá skýrsluna fyrir kosningar: „Held að þetta smellpassi“

Óttarr Proppé, for­maður Bjartrar fram­tíðar, hefur tjáð sig um ákvörðun Bjarna Bene­dikts­sonar um að fresta birt­ingu skatta­skjóls­skýrslu fram yfir kosn­ingar. „Ég held að þetta smellpassi inn í okkar vinnu og hug­mynda­fræð­ina að baki mynd­unar þess­arar rík­is­stjórnar.“

„Þetta er nú leið­inda­klúður með birt­ingu skýrsl­unnar, ég get alveg tekið undir það um leið og ég fagna því að skýrslan sé komin fram,“ sagði Óttarr Proppé, for­maður Bjartrar fram­tíðar, í kvöld­fréttum Stöðvar 2 eftir að hann var inntur eftir afstöðu sinni til ákvörð­unar Bjarna Bene­dikts­sonar um að birta almenn­ingi ekki skýrslu um umfang skatta­skjóls­eigna fyrr en eftir þing­kosn­ingar. „Þetta eru mik­il­vægar upp­lýs­ingar sem hefði auð­vitað verið skemmti­legra að hefðu komið fram fyrir kosn­ingar. En við göngum til stjórn­ar­sam­starfs­ins á grund­velli mál­efna og mál­efna­samn­ings sem við höfum verið að vinna.“

Óttarr tjáði sig einnig um málið við RÚV. Þar eru eft­ir­far­andi orð höfð eftir honum: „Við leggjum mikla áherslu, í þessum stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum öllum, að vanda verk­lag, auka gegn­sæið og vinna nákvæm­lega að svona málum. Vinna gegn skattaund­anskotum og þar með talið gegn skatta­skjólum. Þannig að ég held að þetta smellpassi inn í okkar vinnu og hug­mynda­fræð­ina að baki mynd­unar þess­arar rík­is­stjórnar.“

Stundin sendi Óttari fyr­ir­spurn um afstöðu hans til vinnu­bragða Bjarna Bene­dikts­sonar í dag og mun greina frá svör­unum þegar þau ber­ast.

Eins og fram hefur komið fór Bjarni Bene­dikts­son með rangt mál um helg­ina þegar hann sagð­ist ekki hafa fengið skýrslu starfs­hóps um umfang aflandseigna Íslend­inga inn í ráðu­neyti sitt fyrr en eftir að þingi var slitið í októ­ber. Í sama við­tali sak­aði hann póli­tíska and­stæð­inga um „þvætt­ing“, „fyr­ir­slátt“ og „póli­tík“. Hið rétta er að umrædd skýrsla var afhent fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu þann 13. sept­em­ber þegar um mán­uður var eftir af þing­störfum. Bjarni hefur við­ur­kennt að hafa sjálfur ákveðið að birta skýrsl­una ekki fyrr en eftir kosn­ingar, enda hafi hann ekki viljað setja skýrsl­una „í kosn­inga­sam­hengi“. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stjórnmálamenn í skattaskjólum

FréttirStjórnmálamenn í skattaskjólum

Ekki gefið upp hvort ráð­herra hafði rétt­ar­stöðu rann­sókn­ar­þola

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­kona Pírata, setti fram alvar­legar ásak­anir á hendur Bjarna Bene­dikts­syni fjár­mála­ráð­herra í Silfrinu síð­ustu helgi. Skatt­rann­sókn­ar­stjóri telur sér ekki heim­ilt að svara því hvort Bjarni hafi fengið rétt­ar­stöðu rann­sókn­ar­þola eftir kaup á gögnum um aflands­fé­lög Íslend­inga og upp­ljóstr­anir Panama­skjal­anna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár