Frambjóðendur Heimdallar aftur gripnir við að bjóða unglingum áfengi fyrir atkvæði

Nemendum Mennta­skól­ans við Sund var boðið frítt áfengi gegn því að kjósa ákveðið fram­boð til Heimdallar, félags ungra sjálf­stæð­is­manna í Reykja­vík. Formaður og rit­ari skóla­fé­lags MS til­heyra fram­boð­inu.

Frambjóðendur Heimdallar aftur gripnir við að bjóða unglingum áfengi fyrir atkvæði
Ritari og for­maður Steinar Ingi Kolbeins, Ármaður skóla­fé­lags MS, og Jafet Máni Magn­úss­ar­son, rit­ari skóla­fé­lags­ins, til­heyra fram­boð­inu sem um ræðir. Mynd: Hlynur

Fram­bjóð­endur í for­manns­kjöri Heimdallar, félags ungra sjálf­stæð­is­manna í Reykja­vík, bjóða ung­lingum undir lög­aldri áfengi fyrir að kjósa í for­manns­fram­boð­inu.

„Kemuru ekki að kjósa Frikka og Elísabet Ingu á morgun upp í Valhöll? Partý beint eftir kosn­ing­arnar í braut­ar­holt­inu. Fullt af MS fólki, frítt áfengi og veit­ingar. Má taka vini með að kjósa og svo í partýið, en ekki hafa hátt um það ;* Já og þetta byrjar kl16.“

Svo hljóða skila­boð sem ung­lingi undir lög­aldri bár­ust, þar sem við­kom­andi er hvattur til þess að kjósa til stjórnar Heimdallar, gegn því að fá áfengi sem greiðslu.

Áfengi fyrir atkvæði
Áfengi fyrir atkvæði Ein­stak­ling undir lög­aldri boðið vín

Nemendum skól­ans hefur borist fjöldi ann­arra skila­boða þar sem þeim er boðið svip­aður samn­ingur. Í tveimur þeirra er Steinar Ingi Kolbeins, ármaður Skóla­fé­lags Mennta­skól­ans við sund, nefndur á nafn, og í þremur þeirra er því lofað að mikið af nem­endum skól­ans verði á svæð­inu; „geggjað MS party,“ „stórt MS partý,“ og „Fullt af MS fólki.“ Í öllum skila­boð­unum er ung­ling­unum lofað fríu áfengi. DV greindi fyrst frá mál­inu. 

Skýr skilaboð
Skýr skila­boð Flest eru boðskortin á svip­aða lund

Algengur misskilningur

Fyrir tveimur árum flutti Stundin fréttir af því að fram­bjóð­endur til for­manns og stjórnar Heimdallar hefðu boðið nem­endum MS, undir lög­aldri, áfengi gegn því að kjósa í kosn­ing­unum. Steinar Ingi var einnig í fram­boði þá og setti skila­boð inn á Facebook þar sem hann bauð „öllum MS-ingum“ í „frían ham­borg­ara og bjór.“ Að því loknu færu kjós­endur í Valhöll þar sem þeir ættu að greiða list­anum sem hann var á atkvæði. Því næst væri farið aftur í kosn­inga­mið­stöð­ina þar sem yrði „yfir­drifið nóg af fríum bjór eins lengi og við viljum.“

Nóg af fríum bjór
Nóg af fríum bjór Hér má sjá stöðu­færslu Steinars Inga Kolbeins frá því fyrir 2 árum

„Ég harma það mjög að skila­boðin sem eru sýnd á þessum skjá­skotum hafi farið í umferð...“

Albert Guð­munds­son, núver­andi for­maður Heimdalls, var í fram­boði á þessum tíma. Sagði hann að skila­boð Steinars Inga hefðu verið „mis­skiln­ingur“ og að það hefðu verið „ein­hver mis­tök og hugs­un­ar­leysi hjá þeim að setja þetta í status.“

Fyrr í dag setti Steinar Ingi inn yfir­lýs­ingu á Facebook-síðu skóla­fé­lags MS. Þar segir hann „Ég harma það mjög að skila­boðin sem eru sýnd á þessum skjá­skotum hafi farið í umferð“ og að það hafi ekki verið ásetn­ingur hans sé með­fram­bjóð­enda hans að halda partý „og bjóða öllum nem­endum innan MS í stórt partý með fríu áfengi fyrir fólk undir lög­aldri.“ Skila­boðin um frían bjór væri „ekk­ert annað en slúð­ur­saga sem sumir helst til kapp­samir stuðn­ings­menn fram­boðs­ins hafa látið fljúga.“

Steinar sagð­ist vera á fundi þegar blaða­maður náði í hann, bað blaða­mann að hringja aftur en svar­aði svo ekki sím­tölum þegar reynt var að ná í hann.

Rektor ætlar að hringja í lögregluna

Þrír ein­stak­lingar í fram­boð­inu eru nem­endur í MS. Fyrir utan Steinar Inga, Ármann skóla­fé­lags­ins, er það Jafet Máni Magn­úss­ar­son, rit­ari skóla­fé­lags­ins og Kristín Lilja Sig­urð­ar­dóttir, for­maður femínista­fé­lags skóla­fé­lags­ins.

„Mér finnst þetta nátt­úru­lega sið­laust,“ sagði Már Vil­hjálms­son, rektor MS í sam­tali við Stundina. „Ég er sjálfur að reyna að for­vitn­ast hver skratt­inn sé í gangi.“ Í dag hefur hann fundað með þeim ein­stak­lingum sem sendu skila­boðin, ásamt for­ráða­mönnum þeirra. „Þetta er allt ungt fólk undir lög­aldri. Þarna er rang­lega verið að tengja MS við þetta. MS-partý eða bara við­burðir á vegum skól­ans eru áfeng­is­lausir. Við erum mjög stíf í okkar for­varn­ar­stefnu. Þarna er verið að segja rangt frá og ég tel það vera brot á skóla­reglum.“

Segist Már fagna því að ungt fólk hafi áhuga á póli­tík, sama hvar í fylk­ingum eða flokkum það er. Hins vegar séu svona aug­lýs­ingar við­kom­andi fram­bjóð­endum ekki til fram­dráttar. „Þetta er ekki gæfu­leg byrjun á póli­tískum ferli.“ Þrátt fyrir að við­burð­ur­inn sé ekki á vegum skól­ans þá sé þarna ljóst að verið sé að bjóða upp á áfeng­is­neyslu ólög­ráða barna og í þannig til­vikum sé um lög­reglu­mál að ræða. „Ég hringi ein­fald­lega í lög­regl­una og læt hana vita.“

Bjórkassar í skotti: Grín

Gylfi Þór Sig­urðs­son, fram­kvæmd­ar­stjóri Stúd­enta­ráðs Háskóla Íslands, er yfir­lýstur stuðn­ings­maður fram­boðs­ins. Á mánu­dag­inn setti Gylfi færslu inn á Facebook sem sýndi far­ang­urs­rými bif­reiðar hlaðið um 18 bjór­kössum. Yfir­skrift mynd­ar­innar var „Ef þessi mynd endar á Stund­inni þá verð ég brjál.“

Gylfi Þór
Gylfi Þór Segir mynd­ina ekki tengj­ast kosn­ing­unum og vera setta inn í gríni

„Þessi mynd, þetta er gömul mynd. Hún teng­ist þessum kosn­ingum ekki neitt,“ sagði Gylfi í sam­tali við Stundina. „Ég sá bara skott þarna, fullt af bjór, og tók mynd­ina, eða þannig. Þetta var bara sett inn í gríni. Auðvitað er ég ekk­ert sáttur við það ef þessi mynd endar á Stund­inni.“

 

Aðspurður hvort hann sjái ekk­ert athuga­vert við það að börnum sé boðið áfengi fyrir að kjósa þessa ein­stak­linga sem hann styður seg­ist hann ekki telja að svo sé. „Ég veit ekki til þess að það sé gert, ég held meira að segja ekki.“

 

Hvorki Friðrik Þór Gunn­ars­son né Elísabet Inga Sig­urð­ar­dóttir, for­manns- og vara­for­manns­efni fram­boðs­ins, svör­uðu ítrek­uðum sím­hring­inum blaða­manns. Friðrik svar­aði þó skila­boðum sem blaða­maður sendi honum og sagð­ist þykja það inni­lega leitt að geta, vegna anna, ekki svarað blaða­manni. Hann bauðst þó til þess að ræða við hann klukkan 19:00, eftir að búið væri að loka kjör­fundi.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár