„Forseti Íslands hefur brugðist mér“

Kona sem Róbert Árni Hreið­ars­son braut gegn grét í dag þegar hún frétti að hann hefði fengið upp­reist æru frá for­seta Íslands og fengi lög­manns­rétt­indi á ný. Róbert Árni braut kyn­ferð­is­lega gegn fjórum stúlkum, fjórtán og fimmtán ára gömlum, og þótt­ist meðal ann­ars vera sautján ára strákur.

„Forseti Íslands hefur brugðist mér“
Guðni Th. Jóhann­es­son For­seta­emb­ættið veitti dæmdum kyn­ferð­is­brota­manni upp­reist æru 16. sept­em­ber síð­ast­lið­inn. Mynd: Pressphotos

„Hvar er rétt­lætið í því?“ spyr Nína Rún Bergs­dóttir, ein af fjórum konum sem varð fyrir kyn­ferð­is­of­beldi af hálfu Róberts Árna Hreið­ars­sonar lög­manns, eftir að ljóst varð að Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands, hefði veitt honum upp­reist æru og þannig gert honum kleift að end­ur­heimta lög­manns­rétt­indi sín. 

Hætt að vera hræddNína Rún hvetur fólk til að rísa upp.

Í dag varð ljóst að Róbert Árni, dæmdur kyn­ferð­is­brota­maður, myndi end­ur­heimta lög­manns­rétt­indi sín í krafti „óflekk­aðs mann­orðs“, eftir að Hæsti­réttur féllst á þá kröfu hans. Forsenda þess var ákvörðun for­seta Íslands, í sept­em­ber síð­ast­liðnum.

Nína Rún seg­ist í sam­tali við Stundina hvetja fólkið í land­inu til að mót­mæla. Hún hefur lifað með afleið­ingum kyn­ferð­is­brots­ins í 12 ár og grét þegar hún heyrði af ákvörð­un­inni. Hún sendir frá sér yfir­lýs­ingu á Facebook í kvöld, þar sem hún segir kerfið og for­seta Íslands hafa brugð­ist sér, en kveðst hætt að vera hrædd. „Ég er ein af þeim fjórum stelpum sem Róbert Árni Hreið­ars­son mis­not­aði kyn­ferð­is­lega, og ég grét þegar mamma mín sendi mér þessa frétt í dag. Íslenska rétt­ar­kerfið hefur brugð­ist mér. Forseti Íslands hefur brugð­ist mér,“ segir hún.

Í dómi Hæsta­réttar kemur fram að for­set­inn hafi fall­ist á til­lögu inn­an­rík­is­ráð­herra um að veita Róberti upp­reist æru. „Hinn 16. sept­em­ber 2016 féllst for­seti Íslands síðan á til­lögu inn­an­rík­is­ráð­herra um að varn­ar­að­ila yrði veitt upp­reist æru og var varn­ar­að­ila til­kynnt sú nið­ur­staða með bréfi inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins 27. sama mán­aðar. Samkvæmt því hefur varn­ar­að­ili öðl­ast óflekkað mann­orð.“

Þolendurnir fjórtán og fimmtán ára

Samkvæmt dómi Hér­aðs­dóms Reykja­víkur árið 2007 nýtti Róbert sér yfir­burði sína til að tæla fjórar ungar stúlkur til sín. Þrjár þeirra voru fimmtán ára og ein fjórtán ára. Hann beitti pen­inga­greiðslum og blekk­ingum, þótt­ist meðal ann­ars vera 17 ára piltur að nafni Rikki.

„Ég vil að fólk standi upp og segi að þetta sé ekki í lagi!“

„Ég hef þurft að lifa með þessu í 12 ár og það er bara nýlega sem ég hef getað hætt að kenna sjálfri mér um,“ segir Nína. „Enn þann dag í dag get ég ekki fundið ákveðna lykt / horft á ákveðnar myndir / farið á ákveðna staði án þess að minn­ast þessa atviks. Mikill kvíði og þung­lyndi hefur fylgt mér út af þessu og enn þann dag í dag er ég hrædd við inter­netið. Róbert fær þriggja ára dóm, „upp­reist æru“ frá Forseta Íslands og lög­manns­rétt­indi sín á ný. Hvar er rétt­lætið í því? Ég vil að fólk viti hvað Róbert gerði, ég vil að fólk þekki nafnið hans, og ég vil að fólk standi upp og segi að þetta sé ekki í lagi! Ég er hætt að vera hrædd!“

Í sam­tali við Stundina seg­ist Nína Rún vera búsett í Banda­ríkj­unum. „Ég bý í Banda­ríkj­unum þannig það er pínu erfitt fyrir mig að gera eitt­hvað í þessu þarna heima. Þannig ég var að von­ast til að fólkið í land­inu mínu geri eitt­hvað í þessu fyrir mína hönd. Svo á ég frá­bæra for­eldra og stjúp­for­eldri sem eru að vinna í þessu með mér.“

Vill rökstuðning Guðna forseta

Nína seg­ist vilja fá rök­stuðn­ing Guðna Th. Jóhann­es­sonar fyrir því að veita mann­inum sem braut gegn henni upp­reist æru og óflekkað mann­orð. „Ef ég gæti hitt for­set­ann þá væri það bara for­eldrar mínir sem myndu hitta hann fyrir mína hönd. Ég væri samt til í að spyrja hann hvaða rök hann hefur fyrir þess­ari ákvörðun.“

Guðni Th. seg­ist í sam­tali við Vísi.is vera miður sín yfir mál­inu. „Ákvörð­unin er tekin í ráðu­neyt­inu. Þetta er allt form­legs eðlis - arfur frá lið­inni tíð. „Yður þókn­ast,“ og svo fram­vegis. Þegar litið var svo á að for­set­inn sjálfur hefði náð­un­ar­vald. Ég fæ til dæmis beiðnir hingað um náð­anir vegna ölv­un­arakst­urs, frá jafn­vel harð­dug­legu fólki sem er búið að koma sér á beinu braut­ina. En ég get ekki tekið ákvörðun um slíkt, það er náð­un­ar­nefnd sem gerir það,“ segir hann.

Var með 335 kvenmansnöfn skráð

Í dómi hér­aðs­dóms, sem má lesa hér, koma fram ein­beittar aðferðir manns­ins til að tæla ungar stúlkur. Þá kemur fram að hann hafði skrifað 335 kven­mansnöfn hjá sér, að því er virð­ist í þeim til­gangi að reyna að tæla stúlk­urnar. „Þá hefur verið rituð lög­reglu­skýrsla vegna skoð­unar á minn­is­bók sem var hald­lögð á heim­ili ákærða undir núm­er­inu G-06. Fram kemur að á bak­hlið for­síðu­blaðs sé m.a. ritað ,,bestur2000@hotmail.com”. Í bók­inni séu 44 blöð. Á 32 fyrstu síð­unum séu rituð 335 kven­mannsnöfn með ýmist eða bæði síma­númer og net­póst­föng. Athygli veki að við umrædd kvennöfn sé víða að sjá skráðar tölur sem ætla megi að vísi á aldur stúlkn­anna.“ 

Skipti um nafn 

Róbert Árni kallar sig Robert Downey í dag. Hann hefur búið erlendis und­an­farin ár. Þaðan hefur hann varað sér­stak­lega við straumi inn­flytj­enda og hæl­is­leit­enda til Íslands. „Halda stjórn­mála­menn og fylgj­endur þess­arar hæl­is­leit­enda­stefnu að þess­ari flóð­bylgju linni, þegar búið er að koma þessum hópi hæl­is­leit­enda fyrir í löndum Evrópu?“ spurði hann á Facebook, eftir að hópur Íslend­inga tók sig saman og bauðst til að hýsa hæl­is­leit­endur frá Sýrlandi. „Þvert á móti verður það hvatn­ing til ann­arra íbúa í þessum löndum hæl­is­leit­anda að komst inn í vel­ferð­ar­kerfi vest­ur­landa á kostnað skatt­borgar­anna. Flóð­bylgj­urnar koma til með að verða stærri, tíð­ari og skað­væn­legri þegar fram í sækir,, þar til tekið verður á þessum málum af fullri alvöru og á raun­hæfan hátt og fólk­inu gert kleypt að lifa á sínum heima­slóðum á mann­sæm­andi hátt.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár