Forsætisráðherra segir alltof snemmt að fella stóra dóma um stefnu Trumps

„Mér finnst ekk­ert að því í sjálfu sér að það komi fram á sjón­ar­sviðið af og til ein­stak­lingar sem eru ekki alveg steyptir úr sama mót­inu og allir fyr­ir­renn­arar,“ sagði Bjarni Bene­dikts­son í Silfrinu í dag.

Forsætisráðherra segir alltof snemmt að fella stóra dóma um stefnu Trumps

Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra telur að umræðan um Donald Trump Banda­ríkja­for­seta og ímynd Banda­ríkj­anna sé ekki að öllu leyti sann­gjörn. Of snemmt sé að fella stóra dóma um stefnu hins nýja for­seta. Þetta kom fram í við­tali við Bjarna í Silfrinu í dag, en þátt­ur­inn er í umsjá Egils Helga­sonar og Fann­eyjar Birnu Jóns­dóttur.

Aðspurður hvort hann hefði áhyggjur af þró­un­inni í alþjóða­málum sagði Bjarni: „Já og nei. Mér finnst það vera áhyggju­efni hvernig ímynd Banda­ríkj­anna er akkúrat í augna­blik­inu og ég er ekki viss um að það sé allt alveg sann­gjarnt sem sagt er í þeirri umræðu. Við sjá­umt.d. for­síður þess­ara stóru blaða í Evrópu þessa dag­ana líkja Trump við hrotta­leg­ustu morð­ingja úr röðum ISIS, með ákveð­inni mynd­lík­ingu, mér finnst nú vera of langt gengið víða.“ Vísaði hann þar lík­lega til for­síðu þýska blaðs­ins Der Spiegel sem sýnir Trump halda á afskornu höfði Frels­is­stytt­unnar og blóði drifnum hníf.

Bjarni við­ur­kenndi að viss atriði í til­skipun Trumps um að meina fólki frá ákveðnum löndum um komu til Banda­ríkj­anna væru slá­andi.„Banda­ríkja­for­seti leggur blátt bann við flótta­mönnum frá Sýrlandi sem er nýtt sem er býsna afdrifa­rík ákvörðun. Svo eru tekin til end­ur­skoð­unar þessi skil­yrði fyrir því að menn komi til Banda­ríkj­anna,“ sagði Bjarni og benti á að Trump hefði einnig aft­ur­kallað vega­bréfs­á­rit­anir. 

„Málið verður að þola ein­hverja efn­is­lega umræðu, nákvæm­lega hvað hann er að gera í inn­flytj­enda­málum og það sem slær mann er það sem dóm­stóll­inn fettir fingur út í. Það virð­ist vera að þarna sé verið að flokka fólk eftir trú­ar­brögðum,“ sagði Bjarni. 

„Ég hef áhyggjur af þess­ari spennu sem ákvarð­anir hans hafa valdið. En mér finnst ekk­ert að því í sjálfu sér að það komi fram á sjón­ar­sviðið af og til ein­stak­lingar sem eru ekki alveg steyptir úr sama mót­inu og allir fyr­ir­renn­arar, sem hafa alla sinn ævi­feril verið þáttak­endur í stjórn­mála­legri starf­semi og svo fram­vegis. Þarna kemur maður á þessum aldri, í fyrsta sinn að stíga fyrir alvöru inn á vett­vang stjórn­mál­anna og mörg af hans vinnu­brögðum bera þess merki, hann er ekki mjög diplómat­ískur for­seti. Mér finnst alltof snemmt hins vegar að fara að fella þessa stóru dóma sem eru gerðir um hans for­seta­stefnu.“ 

„Mér finnst alltof snemmt hins vegar að fara
að fella þessa stóru dóma sem eru gerðir
um hans for­seta­stefnu“

Ítarlega er fjallað um Donald Trump og stefnu hans í for­seta­emb­ætti í nýjasta tölu­blaði Stund­ar­innar. Stefna Trumps lá að miklu leyti fyrir áður en hann var kos­inn. Í kosn­inga­bar­áttu sinni lof­aði hann að banna múslimum að ferð­ast til Banda­ríkj­anna tíma­bundið, skera veru­lega niður útgjöld til umhverf­is­vernd­ar­mála og alþjóð­legrar sam­vinnu en auka fjár­fram­lög í her­inn. Þá sagð­ist hann ætlað að auka frelsi til skot­vopna­eignar, reisa múr við landa­mæri Mexíkó og krefj­ast þess að Mexíkó tæki á sig kostn­að­inn, og lækka skatta, einkum á fyr­ir­tæki og tekju­hæstu hópa Banda­ríkj­anna. Hér má lesa úttekt Stund­ar­innar í heild. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár