Fjölmiðlaráðgjöf vegna lekamálsins sundurliðuð

Fyrsta greiðsla kom í kjöl­far lög­reglu­rann­sóknar. Dag­setn­ingar hald­ast í hendur við frétta­flutn­ing af mál­inu.

Fjölmiðlaráðgjöf vegna lekamálsins sundurliðuð

Kostn­aður inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins vegna fjöl­miðla­ráð­gjafar vegna leka­máls­ins nam alls 2.394.300 krónum. Þetta kemur fram í svari ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn frá Jóni Þór Ólafs­syni þing­manni Pírata. Þá nam kostn­aður við lög­fræði­lega ráð­gjöf tæp­lega 860 þús­und krónum. 

Í svari við fyr­ir­spurn Jóns Þórs segir að ráð­gjöf hafi verið veitt á sviði almanna­tengsla og kynn­ing­ar­mála, einkum vegna mik­illar umfjöll­unar í fjöl­miðlum um með­ferð per­sónu­upp­lýs­inga á þessum tíma. Áhuga­vert er því að bera dag­setn­ingar reikn­inga vegna fjöl­miðla­ráð­gjafar saman við það sem var verið að fjalla um í fjöl­miðlum hverju sinni og fram­vindu máls­ins. Athygli vekur að ekki var keypt ráð­gjöf í kjöl­far frétta um að Stefán Eiríks­son, lög­reglu­stjóri á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, hafi hætt störfum eftir þrýst­ing og afskipti Hönnu Birnu.  

Ráðgjöf í kjölfar lögreglurannsóknar

Fyrsta fjöl­miðla­ráð­gjöfin er veitt 8. febr­úar á síð­asta ári, dag­inn eftir að rík­is­sak­sókn­ari mælir fyrir um lög­reglu­rann­sókn á inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu og starfs­mönnum þess. 

Næst er veitt fjöl­miðla­ráð­gjöf 8. mars en hún er jafn­framt sú dýrasta. Í lok febr­úar greindi DV frá því að aðeins örfáir starfs­menn hafi haft skjalið um hæl­is­leit­end­urnar undir höndum þegar því var leikið, meðal ann­ars ráð­herra og aðstoð­ar­menn. Jafn­framt er greint frá því að setn­ingu hafi verið skeytt aftan við skjalið. Í kjöl­farið var Hanna Birna harð­lega gagn­rýnd á Alþingi fyrir að skor­ast undan því að svara skrif­legri fyr­ir­spurn um leka­málið. Þann 3. mars greinir DV frá því Hanna Birna hafi farið með ósann­indi á Alþingi þegar hún sagði minn­is­blaðið ekki sam­bæri­legt við nein gögn í ráðu­neyt­inu. Þann 7. mars, dag­inn áður en greitt er fyrir fjöl­miðla­ráð­gjöf, segir DV frá því að frænka Hönnu Birnu hafi fengið yfir­manns­stöðu  hjá lög­reglu­skól­anum. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Lekamálið

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár