Mynd: Kristinn Magnússon

Farvel Ólafur Ragnar: Konurnar, egóið og byltingin

Ólafur Ragnar Grímsson skilur eftir sig gjör­breytt for­seta­emb­ætti. Karl Th. Birg­is­son, sem starf­aði við fram­boð Ólafs Ragnars, skrifar um mis­mun­andi útgáfur hans og áhrifin af kon­unum tveimur í lífi hans, í kveðju­grein eftir 20 ára valda­tíð.

Hvenær er maður Ólafur Ragnar og hvenær er maður ekki Ólafur Ragnar?

Þetta er bæði und­ar­leg spurn­ing og for­vitni­leg, nú þegar tutt­ugu árum á for­seta­stóli er að ljúka.

Í leit að svari er gott að byrja á byrj­un­inni. Þar er yfir­leitt skýr­ingar og skiln­ing að finna.

Hinn nýi Ólafur Ragnar

Það vill oft gleym­ast – og eðli­lega meðal yngri kyn­slóða – hversu ólík­legt það var að Ólafur Ragnar næði kjöri sem for­seti árið 1996. Hann var nýhættur sem for­maður Alþýðu­banda­lags­ins sem var þrátt fyrir allt aldrei stór flokkur þótt hann hefði áhrif tals­vert umfram stærð sína.

En Ólafur var líka mjög umdeildur stjórn­mála­maður. Hann gat verið stór­yrtur og harður í orða­skiptum, og óvæg­inn ef hann sá sér leik á borði að skora póli­tísk stig. Haft var á orði að hann væri til í að hafa hvaða skoðun sem er ef það kæmi honum vel. Það væri svo bónus ef flokk­ur­inn hans nyti þess líka.

Og það sem meira var: Ólafur var ekki aðeins umdeildur í sam­fé­lag­inu, heldur ekki síður og jafn­vel enn frekar í Alþýðu­banda­lag­inu, sínum eigin flokki. Þangað hafði hann komið úr Fram­sókn­ar­flokknum, með við­komu í Samtökum frjáls­lyndra og vinstri manna, og sótt­ist strax eftir áhrifum og völdum.

Stutta útgáfa þeirrar sögu er sú, að á milli hans og ann­arra áhrifa­manna í flokknum stóð sífelld styrj­öld, átök um stórt og smátt, og mjög heift­úðug og per­sónu­leg eins og vill verða þegar fáir takast á.

Í þeim skylm­ingum og öðrum kom líka vel fram, hversu vel Ólafur Ragnar naut þess að standa í átökum. Hann eig­in­lega þreifst á þeim. Hann hafði stúd­erað sög­una vel, greint og skilið hvernig fólk náði árangri og hvað þurfti að gera. Hann virt­ist – og virð­ist enn – líta á póli­tískar deilur sem íþrótt. Hann hefur hæfi­leik­ana, kann regl­urnar, veit hvar mörkin eru (þótt oft hafi hann fengið gul spjöld) og hann vildi verða Íslands­meist­ari. Í það minnsta kom­ast á pall.

En þessar oft hatrömmu erjur voru, vel að merkja, aldrei per­sónu­legar af hans hálfu. Box­ar­anum er ekk­ert per­sónu­lega illa við mann­inn sem hann lemur í rot. Þannig er bara sportið.

Ólafur Ragnar átti sér fylg­is­menn, en líka bein­línis hat­urs­menn innan eigin flokks og má þá ímynda sér hvað mörgum þótti í öðrum flokkum, einkum Sjálf­stæð­is­flokknum. Hámarki náði sú fyr­ir­litn­ing lík­lega eftir að hann gerði meint „skít­legt eðli“ Davíðs Odds­sonar að umræðu­efni í ræðu­stóli Alþingis.

Í for­seta­kjör­inu 1996 fóru sjálf­stæð­is­menn enda á lím­ing­unum við til­hugs­un­ina um Ólaf sem for­seta. Aldrei í for­seta­kosn­ingum hafði við­líka orð­bragð birzt opin­ber­lega um nokkurn fram­bjóð­anda. Menn í við­skipta­líf­inu, sem Ólafur hafði gagn­rýnt á ýmsum vett­vangi, keyptu heil­síðu­aug­lýs­ingar með ávirð­ingum gegn honum og varn­að­ar­orðum til þjóð­ar­innar.

Jón Steinar Gunn­laugs­son sagði af sér sem for­maður yfir­kjör­stjórnar í Reykja­vík. Hann kvaðst ekki geta borið ábyrgð á fram­kvæmd kosn­inga þar sem mögu­legt væri að þessi maður yrði kjör­inn for­seti Íslands.
Sigur Ólafs árið 1996 var af þessum ástæðum stærri en ella. Hér mætti auð­vitað hafa „sigur“ í gæsa­löppum enda fékk hann ekki meiri­hluta atkvæða, rétt rúm­lega fjöru­tíu pró­sent, en sigur var það samt sam­kvæmt gild­andi reglum og stjórn­ar­skrá.

Allir við­ur­kenndu – hann sjálfur þar á meðal – að stóran þátt í þess­ari nið­ur­stöðu átti eig­in­kona hans, Guðrún Katrín Þor­bergs­dóttir, sem naut mik­illar lýð­hylli. Án hennar hefði hann lík­lega aldrei átt mögu­leika.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Forsetakosningar 2016

Saga af tveimur forsetum: Helgi fokking Björns. Og hnykkurinn
Karl Th. Birgisson
Skoðun

Karl Th. Birgisson

Saga af tveimur for­setum: Helgi fokk­ing Björns. Og hnykk­ur­inn

Guðni Th. Jóhann­es­son hefur flutt um 35 ræður og erindi frá því hann varð for­seti. Hann hefur notað þau í að kveða niður þjóð­rembu og forð­að­ist meðal ann­ars upp­hafn­ingu þjóð­kirkj­unnar. Hann sker sig frá Ólafi Ragnari Gríms­syni, sem í kosn­inga­bar­áttu sinni 1996 hafði sem ein­kenn­islag „Sjá dagar koma“ eftir Davíð Stef­áns­son, þar sem alda­löngum þrautum Íslend­inga er lýst.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár