Einn þekktasti frjálshyggjumaður landsins ráðinn ritstjóri Reykjavíkur vikublaðs

Björn Jón Bragason, með­limur í mið­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks­ins og stuðn­ings­maður einka­bíls­ins, hefur verið ráð­inn rit­stjóri frí­blaðs­ins Reykja­víkur viku­blaðs af Birni Inga Hrafns­syni útgef­anda, í kjöl­far kaupa Björns Inga og félaga á frí­blaða­út­gáf­unni Fótspori.

Einn þekktasti frjálshyggjumaður landsins ráðinn ritstjóri Reykjavíkur vikublaðs
Nýr rit­stjóri Reykja­vík viku­blaðs Björn Jón Bragason sést hér á fram­boðs­mynd sem send var út vegna fram­boðs hans til for­manns Heimdallar, félags ungra sjálf­stæð­is­manna í Reykja­vík. Mynd: Björn Jón

Björn Jón Bragason, mið­stjórn­ar­maður í Sjálf­stæð­is­flokknum og fyrr­ver­andi for­maður Frjáls­hyggju­fé­lags­ins, hefur verið ráð­inn rit­stjóri frí­blaðs­ins Reykja­vík viku­blað, sem dreift er á heim­ili í Reykja­vik.
Ráðn­ingin kemur í kjöl­far þess að blaða­út­gáfan Fótspor ehf, sem gaf út 12 blöð víða um land, var seld til Vef­press­unar ehf, útgáfu­fé­lags í eigu Björns Inga Hrafns­sonar, fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúa Fram­sókn­ar­flokks­ins, og við­skipta­fé­laga hans.

Við kaupin var Ingimar Karli Helga­syni rit­stjóra sagt upp störfum. Ingimar hafði langa reynslu af fjöl­miðlum, meðal ann­ars á Rík­is­út­varp­inu, Frétta­blað­inu og Stöð 2, en hann bauð sig fram í próf­kjöri Vinstri hreyf­ing­ar­innar - Græns fram­boðs árið 2012.

Nýr rit­stjóri Reykja­víkur viku­blaðs er einn þekkt­asti frjáls­hyggju­maður lands­ins. Fjallað er um feril Björns Jóns á Wikipedia: „Björn Jón hefur verið virkur í starfi Heimdallar og Sambands ungra sjálf­stæð­is­manna. Þá hefur hann frá árinu 2012 setið í stjórn Sjálf­stæð­is­fé­lags Lang­holts og frá sama ári í mið­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Hann hefur starfað með Verði – full­trúa­ráði Sjálf­stæð­is­fé­lag­anna í Reykja­vík og stýrt stjórn­mála­skóla Varðar, auk þess að stýra nám­skeiðum á vegum Verka­lýðs­ráðs Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Þá hefur Björn Jón tekið þátt í starfi ung­liða í hverfa­fé­lögum Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík. Björn Jón var for­maður Frjáls­hyggju­fé­lags­ins árin 2009–2012. Hann sat í stjórn félags­ins áður frá árinu 2007. Árið 2011 bauð Björn Jón sig fram til for­manns Sambands ungra sjálf­stæð­is­manna, á sam­bands­þingi þess. Björn Jón laut í lægra haldi fyrir Davíð Þor­láks­syni og hlaut Björn 38% atkvæða en Davíð 62%. Björn Jón bauð sig fram í 2.-3. sætið til borg­ar­stjórnar Reykja­víkur 2014. Hann var langt frá því að ná kjöri og var ekki í 10 efstu sæt­unum.“

Gagnrýnir „hatur“ á einkabílnum

Björn Jón hefur gagn­rýnt borg­ar­yf­ir­völd harð­lega fyrir að þrengja að einka­bílnum og fyrir að sýna einka­bílnum „hatur“. „Und­an­farið hefur mikið borið á hat­urs­mönnum einka­bíls­ins, þeir heimtað að dregið verði úr notkun einka­bíla og fólk jafn­vel skikkað til að nota aðra og óvin­sælli ferða­máta á borð við stræt­is­vagna eða reið­hjól,“ skrif­aði Björn Jón árið 2011, vegna áherslu borg­ar­yf­ir­valda á stuðn­ing við vist­vænar sam­göngur.

Eitt helsta bar­áttu­mál hans und­an­farin ár hefur verið að koma í veg fyrir sum­ar­lokun Lauga­vegs fyrir bíla­um­ferð. 

Björn Jón er með meist­ara­próf í sagn­fræði og vakti athygli fyrir bóka­skrif sín. Hann skrif­aði meðal ann­ars bók­ina Hafskip í skot­línu. Fyrir skrifin hlaut hann greiðslur frá Björgólfi Guð­munds­syni, einum af aðal­máls­að­il­unum í Haf­skips­mál­inu og eins aðal­eig­enda Lands­bank­ans. Bókin kom út um það leyti sem Lands­bank­inn fór í þrot haustið 2008. Nið­ur­staða hennar var að Hafskip, félag Björg­ólfs, hefði  verið látið fara í þrot af ann­ar­legum ástæðum.

Þá gaf Björn Jón fyrr á árinu út bók­ina Bylting - og hvað svo? Ein af nið­ur­stöðum bók­ar­innar var að það hefðu verið mis­tök að rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Sam­fylk­ing­ar­innar hefði farið frá völdum í kjöl­far mik­illa mót­mæla snemma árs 2009.

Skrifar á vef Sjálfstæðisflokksins

Björn Jón hóf skrif í DV fyrr á árinu eftir að félagið Vef­pressan ehf, í eigu Björns Inga Hrafns­sonar og við­skipta­fé­laga, keypti útgáf­una í kjöl­far yfir­töku. Samhliða skrifum í DV hefur hann skrifað á vef Sjálf­stæð­is­flokks­ins.
Í grein sem Björn Jón skrif­aði á vef flokks­ins í febr­úar gagn­rýndi hann borg­ar­stjórn Sam­fylk­ing­ar­innar og Bjartrar fram­tíðar fyrir að stunda áróður með starf­rækslu upp­lýs­inga­deildar borg­ar­innar.
„Borg­ar­full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks hafa marg­sinnis gagn­rýnt fjár­austur í áróð­urs­mála­deild­ina, sem oftar en ekki er nefnd „Propag­anda Büro“, en Dagur B kallar deild­ina „fag­lega fjöl­miðla­deild“. Fréttir gær­dags­ins sýna og sanna að „fag­lega fjöl­miðla­deildin“ er rétt­nefnd áróð­urs­mála­deild Dags B.
Á sama tíma og gatna­kerfi borg­ar­innar er að hruni komið og öll almenn grunn­þjón­usta van­rækt er með engu móti rétt­læt­an­legt að vinstri­meiri­hlut­inn í borg­ar­stjórn haldi úti sér­stakri áróð­urs­mála­deild. Við reyk­vískir útsvars­greið­endur eigum heldur ekki að þurfa að þola það sið­leysi að skattfé almenn­ings sé með þessum hætti varið í póli­tískan áróður.“

Reykja­vík viku­blað komst í fréttir fyrr á árinu þegar  Gunn­laugur Sig­munds­son, faðir Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar for­sæt­is­ráð­herra, sendi spurn­inga­lista á borg­ar­yf­ir­völd vegna þess að dag­skrár­riti Borg­ar­bóka­safns­ins var dreift með blað­inu. Sagði hann að fyrr­ver­andi útgef­andi, Ámundi Ámunda­son, væri „þekktur fyrir störf á vett­vangi Alþýðu­flokks og Sam­fylk­ingar og rit­stjóri blaðs­ins Ingimar Karl Helgason [hefði] verið í fram­boði fyrir VG í Reykja­vík“

Á sama tíma og Björn Jón er ráð­inn rit­stjóri er Dr. Sigurður Ing­ólfs­son ráð­inn rit­stjóri Aust­ur­lands viku­blaðs, en hann er meðal ann­ars fyrr­ver­andi rit­stjóri Aust­ur­glugg­ans.

Ritstjóri ósáttur

Nýr eigandi Reykjavíkur vikublaðs
Nýr eig­andi Reykja­víkur viku­blaðs Björn Ingi Hrafns­son kemur með nýjar áherslur hjá Reykja­vík viku­blaði eftir kaup á útgáf­unni.

Við yfir­töku Björns Inga og félaga á Fótspori var öllum sagt upp störfum. Einn þeirra, Björn Þor­láks­son, rit­stjóri Akur­eyrar viku­blaðs, úti­lok­aði að starfa fyrir Björn Inga Hrafns­son. „Ekki séns í hel­víti“ Björn Ingi Hrafns­son ... Ég gæti aldrei átt trúnað við þig, því ég trúi ekki að þú hafir trúnað við almanna­hags­muni að leið­ar­ljósi með þinni útgáfu­starf­semi. Held að þín áhersla sé á hreina sér­hags­muni. Sjálf­stæðir og reyndir blaða­menn eru ekki skóg­ar­þrastar­ungar sem bíða með opinn gogg­inn eftir þínum pen­ingum, sem eng­inn veit hvaðan koma. Lifi frelsið og gagn­rýnin upp­lýs­ing. Netið færðu seint keypt upp!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár