Davíð hefur áhyggjur af „uppgangi múslima í Evrópu“

Davíð Oddsson er ugg­andi yfir því sem þátta­stjórn­andi á Bylgj­unni kallar „upp­gang múslima í Evrópu“. Hann vill að flótta­mönnum sé „gefið tóm til að aðlaga sig“.

Davíð hefur áhyggjur af „uppgangi múslima í Evrópu“

Davíð Oddsson, sem býður sig fram til for­seta Íslands, hefur áhyggjur af „upp­gangi múslima í Evrópu“. Þetta kom fram í við­tali við hann á Bylgj­unni í morgun. „Ég held að múslimar séu ekk­ert síðra fólk í gerð­inni, af hverju ættu þeir að vera það?“ sagði Davíð og bætti því við að fólk sem aðhyllt­ist íslam væri „mjög bundið á þessa hörku­legu trú og því er stjórnað mjög víða af ofstæk­is­mönnum“. 

Davíð sagð­ist vera kunn­ingi Recep Erdogans Tyrk­lands­for­seta og er ugg­andi yfir þró­un­inni í Tyrk­landi, enda hafi for­set­inn hallað sér að ofstæk­is­öfl­unum. „Konan hans er komin með slæður og allan þennan bún­ing líka,“ sagði Davíð. 

Þátta­stjórn­endur Bítisins spurðu Davíð um „upp­gang múslima í Evrópu“ en jafn­framt um afstöðu hans til mót­töku flótta­fólks. „Við verðum nátt­úr­lega að vera með opinn huga gagn­vart því að hjálpa okkar náungum, en hins vegar verður það að ger­ast þannig að það sé skyn­semi í því,“ svar­aði Davíð. „Ef fólk lagar sig ekki að hlut­unum þá fer illa, bæði fyrir fólk­inu sem kemur og fyrir þeim sem fyrir eru.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Flóttamenn

FréttirFlóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan

Í Afganistan var þeim bannað að læra. Á Íslandi hafa þær mætt hindr­unum í hvert sinn sem þær hafa reynt að kom­ast í skóla. Þær þrá ekk­ert heitar en að læra íslensku, kom­ast inn í sam­fé­lagið og sækja sér háskóla­menntun. En þær eru fastar; kom­ast ekki út úr störfum sínum sem hót­el­þernur þar sem þær hafa engin tæki­færi til að þjálfa íslensk­una: lyk­il­inn að sam­fé­lag­inu.
Greining

Ágrein­ing­ur­inn um útlend­inga­málin

„Ég tel ekki að slík frum­vörp eigi erindi inn í þingið,“ sagði Svandís Svav­ars­dóttir. „Þar erum við inn­við­a­ráð­herra held ég ósam­mála,“ svar­aði Guðrún Haf­steins­dóttir. Þetta var gam­alt stef og nýtt, að flokk­arnir væru ósam­mála í útlend­inga­málum, en það hafði þó varla verið jafn skýrt fyrr en rétt áður en stjórnin féll, skömmu áður en Guðrún ætl­aði sér að leggja fram frum­varp um lokað búsetu­úr­ræði.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár