Björn Ingi bætir við sig fleiri fjölmiðlum - kaupir tímaritaútgáfuna Birtíng

Pressan, fyr­ir­tæki Björns Inga Hrafns­sonar og við­skipta­fé­laga, kaupir tíma­rita­út­gáf­una Birtíng sem gefur meðal ann­ars út Séð og heyrt. Velta fjöl­miðla­fyr­ir­tækja Björns Inga og tengdra aðila er tveir millj­arðar króna.

Björn Ingi bætir við sig fleiri fjölmiðlum - kaupir tímaritaútgáfuna Birtíng

Pressan, útgáfu­fé­lag í helm­ings eigu Björns Inga Hrafns­sonar, hefur keypt útgáfu­fé­lagið Birtíng sem meðal ann­ars gefur út Séð og Heyrt og Nýtt líf.

Útgáfu­fé­lagið Pressan ehf. hefur fest kaup á útgáfu­fé­lag­inu Birtíngi en kaupin voru til­kynnt starfs­mönnum á fundi nú í morgun. Pressan er að helm­ings­hlut í eigu fjöl­miðla­manns­ins Björns Inga Hrafns­sonar en félagið er móð­ur­fé­lag Vef­pressunnar og vef­miðl­anna Pressunnar, Eyjunnar og Bleikt. Þá á Pressan einnig tólf viku­blöð sem gefin eru út um land allt en þau kaup gengu í gegn í lok des­em­ber á síð­asta ári. Björn Ingi varð aðal­eig­andi DV ásamt fjöl­skyldu­með­limum sínum og Sigurði G. Guð­jóns­syni lög­manni í árs­lok 2014. Þá keypti Björn Ingi sjón­varps­stöð­ina ÍNN í síð­asta mán­uði.

Útgáfu­fé­lagið Birtíngur gefur út Nýtt líf, Hús og híbýli, Gest­gjafann, Vikuna og Séð og Heyrt. Ekki er langt síðan að for­svars­menn fyr­ir­tæk­is­ins gáfu það út að ákveðið hafi verið að end­ur­skipu­leggja rekstur fyr­ir­tæk­is­ins og var áætlað að setja fjögur tíma­rit á sölu en það voru þau Sagan öll, Séð og heyrt, Nýtt líf og Júlía. Þá kom einnig fram að vegna umræddrar end­ur­skipu­lagn­ingar á rekstri fyr­ir­tæk­is­ins verði átta til tíu starfs­mönnum sagt upp hjá fyr­ir­tæk­inu.

Hvorki náð­ist Björn Inga Hrafns­son eða Hrein Loftsson en hann er skráður með 75 pró­senta hlut í Birtíngi.

Viðskiptaritstjóri með kúlulán frá Kaupþingi

Björn Ingi var einn þeirra fjöl­miðla­manna sem nefndir voru í rann­sókn­ar­skýrslu Alþingis vegna mik­illa lán­taka hjá bönk­unum fyrir hrun. Félag hans fékk kúlu­lán hjá Kaup­þingi til að kaupa hluta­bréf í Kaup­þingi, Exista, Bakkavör og Spron. Skuldir félag­ins voru orðnar yfir hálfur millj­arður króna. Björn Ingi var aðstoð­ar­maður for­sæt­is­ráð­herra þegar hann fékk hluta af þeim lánum sem hann útveg­aði. Hann var aðstoð­ar­maður Halldórs Ásgríms­sonar þegar hann fékk 60 millj­óna króna kúlu­lán til kaupa á hluta­bréfum í bank­anum, ein­göngu með veði í bréf­unum sjálfum.  Síðar var hann rit­stjóri við­skipta­blaðs­ins Mark­að­ar­ins á sama tíma og hann samdi um kaup á hluta­bréfum í Exista gegn láni. Hluta­bréfa­við­skiptin í gegnum Kaupþing héldu áfram meðan Björn Ingi starf­aði á Frétta­blað­inu og skrif­aði um mál­efni bank­ans. Félag hans, Caramba ehf, var úrskurðað gjald­þrota í sept­em­ber 2011. Sjálfur hlaut hann 100 millj­óna króna lán.

Björn Ingi steig til hliðar sem rit­stjóri Pressunnar þegar fyr­ir­greiðsla hans hjá bönk­unum sam­hliða störfum hans í stjórn­málum og fjöl­miðlum komst í hámæli. „Hér er ekk­ert ólög­legt á ferð­inni,“ sagði hann í yfir­lýs­ingu í apríl 2010. Hann lýsti því að hann hefði tapað öllu. „Við hjónin töp­uðum öllum okkar sparn­aði og miklu meira en það í hrun­inu.“ Þá hafði hann þegar stofnað Pressuna.is. Fjár­mögnun hennar kom að hluta til frá VÍS, sem var í eigu Exista, sem aftur var í eigu Lýðs og Ágústs Guð­munds­sona. 

Óljóst með fjármögnunina

Ekki hefur komið fram hver fjár­magnar kaup Björns Inga á þeim fjöl­miðlum sem hann hefur keypt upp und­an­farin ár að öðru leyti en að selj­endur hafi veitt honum lán. Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar var greint frá því á starfs­manna­fundi að Björn Ingi hefði fengið sterka fjár­festa að baki sér, en ekki var kynnt um hverja væri að ræða.

Stundin fór yfir feril Björns Inga í stjórn­málum, fjöl­miðlum og við­skiptum í fyrra.

Send hefur verið yfir­lýs­ing til fjöl­miðla­vegna máls­ins frá Birtíngi:

Stjórnir Pressunnar ehf og Birtíngs ehf. hafa kom­ist að sam­komu­lagi um kaup Pressunnar á öllum hlutum í Birtingi útgáfu­fé­lagi ehf. af SMD ehf., Prospectus ehf. og Karli Steinari Ósk­ars­syni. 

Birt­ingur útgáfu­fé­lag ehf. verður sjálf­stætt dótt­ur­fé­lag Pressunnar ehf. og heldur áfram núver­andi starf­semi sinni í óbreyttri mynd. Meg­in­markið með sam­run­anum er hag­ræð­ing í rekstri félag­anna og sam­þætt­ing skylds rekst­urs. 

Birtíngur er helsta tíma­rita­út­gáfa lands­ins. Meðal tíma­rita útgáf­unnar eru Vikan, Nýtt líf, Mannlíf, Séð og heyrt, Gest­gjaf­inn, Hús og híbýli, Júlía og Sagan öll.

Með sam­run­anum mun Pressan ehf. efla útgáfu­starf­semi sína og sam­þætta rekstur Birtings útgáfu­fé­lags ehf. við núver­andi útgáfu sína. Karl Steinar verður áfram fram­kvæmda­stjóri og Björn Ingi Hrafns­son útgef­andi.

Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu og Fjöl­miðla­nefnd hafa verið sent erindi um sam­run­ann, eins og lög gera ráð fyrir, og eru við­skiptin gerð með fyr­ir­vara um sam­þykki eft­ir­lits­stofn­ana. 

Markmið sam­run­ans að mynda stærra og öfl­ugra fyr­ir­tæki á fjöl­miðla­mark­aði sem er betur í stakk búið til að takast á við breyttar aðstæður á mark­aði hér á landi og mæta síharðn­andi sam­keppni við aðra fjöl­miðla, ekki síst erlenda. 

Gert er ráð fyrir að sam­eig­in­leg velta Pressunnar og tengdra félaga árið 2017 verði um tveir millj­arðar króna. Starfs­fólk sam­stæð­unnar verður vel á annan hund­rað, en starfs­stöðvar eru í Kringl­unni, Garðabæ, Ármúla og Skeif­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár