Bjarni telur Kastljós vega að Sjálfstæðisflokknum og eiginkona hans kallar fólk „vanvita“

Sjálf­stæð­is­menn hafa brugð­ist harka­lega við afhjúpun Kast­ljóss og Bjarni Bene­dikts­son segir rang­lega að þar hafi ekk­ert nýtt komið fram. „Heyrðu þú "amma Pírati" vertu ann­ars staðar!“ segir eig­in­kona hans við eldri konu sem gagn­rýnir flokk­inn.

Bjarni telur Kastljós vega að Sjálfstæðisflokknum og eiginkona hans kallar fólk „vanvita“

Ýmsir sjálf­stæð­is­menn telja að þáttur Kast­ljóss um sím­tal Davíðs Odds­sonar og Geirs H. Haarde hafi þjónað þeim til­gangi að koma höggi á flokk­inn í aðdrag­anda kosn­inga. Í þætt­inum var þó ein­ungis fjallað um hátt­semi fyrr­ver­andi for­ystu­manna í flokknum en ekki um mál sem varða núver­andi for­ystu Sjálf­stæð­is­flokks­ins með beinum hætti. 

Fyrstu við­brögð Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, við umfjöllun Kast­ljóss var að deila frétt frá því í sumar á Facebook, en þar kom fram að sam­kvæmt rann­sókn tveggja hag­fræð­inga næmu end­ur­heimtur rík­is­sjóðs umfram kostnað vegna hruns­ins um 76 millj­örðum króna. Í gær mætti svo Bjarni í við­tal á Bylgj­unni og sagði meðal ann­ars: „Mér finnst nú nokkuð aug­ljóst að menn hafi setið á þessu og plantað því síðan núna í miðja kosn­inga­bar­átt­una til að rugla menn í rím­inu og setja anda hruns­ins yfir síð­ustu daga fyrir kosn­ingar.“ Bætti hann því við að ekk­ert nýtt hefði komið fram í þætt­inum. 

Þetta er rangt, því í umfjöllun Kast­ljóss var greint frá vitna­skýrslu sem hefur að geyma nýjar vís­bend­ingar um að Davíð og Geir hafi vitað fyr­ir­fram að 77,5 millj­arða lán Seðla­bank­ans til Kaup­þings myndi ekki fást end­ur­greitt. Sem kunn­ugt er tap­aði rík­is­sjóður um 35 millj­örðum á lán­inu. Þá var einnig greint frá því í Kast­ljósi að Sturla Pálsson, fram­kvæmda­stjóri hjá Seðla­banka Íslands, hefði geng­ist við því að hafa brotið trúnað þegar hann upp­lýsti eig­in­konu sína um aðgerðir Seðla­bank­ans í aðdrag­anda neyð­ar­lag­anna. 

Áhyggjur af umræðuhefðinni

Með gagn­rýni sinni á Kastljós tekur Bjarni undir kenn­ingar sem Björn Bjarna­son, fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra, hefur sett fram um að ein­ungis vaki fyrir Kast­ljósi að „koma höggi á Sjálf­stæð­is­flokk­inn“. 

Baldvin Jónsson, tengda­faðir Bjarna Bene­dikts­sonar sem Illugi Gunn­ars­son skip­aði í stjórn Íslands­stofu snemma á þessu kjör­tíma­bili, deilir við­tal­inu við Bjarna á Facebook og lýsir yfir áhyggjum af því að „við sem þjóð missum tökin á kosn­inga­bar­átt­unni og endum með sömu hörm­ungum og hún hefur þró­ast í Banda­ríkj­unum“.

Nokkrir þeirra sem gera athuga­semdir við mál­flutn­ing Baldvins fá kaldar kveðjur. Hólm­fríður Bjarna­dóttir, sem látið hefur til sín taka á Pírata­spjall­inu, seg­ist telja að umfjöllun Kast­ljóss hafi varpað ljósi á spill­ingu og að rann­saka verði málið. „Heyrðu þú "amma Pírati" vertu ann­ars staðar!“ skrifar Þóra Margrét Bald­vins­dóttir, eig­in­kona Bjarna, undir athuga­semd hennar. Þá skrifar Hólm­fríður: „það vill svo til að ég á FULLT erindi í þessar umræður - eitt af mark­miðum okkar Pírata er að TÆKLA SPILLINGU í sam­fé­lag­inu okkar - af henni er ÞVÍ MIÐUR svo mikið að hún vellur út hvar sem opnað er og skoðað - bak við tjöld eða undir teppi - Eva Joly hefur boðið fram aðstoð sína - ekki mun af veita !!!“ Og Þóra svarar að bragði: „Hólm­fríður Bjarna­dóttir farðu með þína umræðu annað!“ 

„Eva Joly er vinstri græn“

Bryn­hildur Ein­ars­dóttir, eig­in­kona Illuga Gunn­ars­sonar, blandar sér einnig í umræð­urnar og skrifar: „Að Píratar tali um upp­ræt­ingu á spill­ingu eftir að hafa skoðað hvert atkvæði í próf­kjöri í Norð­vestur kjör­dæmi og kosið aftur er nátt­úru­lega bara brand­ari. Eva Joly er vinstri græn og ekki hlut­laus aðili, langt því frá.“ Eins og fram hefur komið í fjöl­miðlum und­an­farna daga hefur Eva Joly lýst yfir stuðn­ingi við Pírata, en ekki Vinstri­hreyf­ing­una grænt fram­boð. Bjarni Bene­dikts­son gerði einnig lítið úr Evu Joly í sjón­varps­um­ræðum á Stöð 2 á dög­unum þegar Jón Þór Ólafsson, fram­bjóð­andi Pírata, sagði hana til­búna að aðstoða Íslend­inga við að upp­ræta spill­ingu. „Þetta er konan sem fékk 1 pró­sent í Frakk­landi,“ sagði þá Bjarni.

„Þetta er konan sem fékk 1 pró­sent í Frakk­landi“

Þóra Margrét hvetur föður sinn til að taka til á Facebook-síðu sinni. „Taka til á Facebook Baldvin. Of margir van­vitar!“ skrifar hún.

Magnús Júl­í­us­son, fyrr­ver­andi for­maður Sambands ungra sjálf­stæð­is­manna og tengda­sonur Bjarna Bene­dikts­sonar, tekur undir gagn­rýn­ina á Kastljós. „Það að rík­is­fjöl­mið­ill­inn sé að fjalla um mál sem áður hefur fengið langa umfjöllum rúmri viku fyrir kosn­ingar er auð­vitað mjög sér­stakt og vekur upp spurn­ingar. Sér í lagi þegar kona Helga Seljan er inn­múruð í VG og var til að mynda upp­lýs­inga­full­trúi flokks­ins eftir hrun,“ skrifar hann og bætir við: „Annars bein­ist þetta til­tekna mál ekki að Bjarna heldur er verið að koma höggi á XD. Hann er bara að benda á hið aug­ljósa í þessu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórnin

Kristján Þór og Þorsteinn Már „nánir  vinir“ í skilningi stjórnsýslulaga
FréttirRíkisstjórnin

Kristján Þór og Þor­steinn Már „nánir vinir“ í skiln­ingi stjórn­sýslu­laga

Kristján Þór Júl­í­us­son sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra og Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, hafa ekki viljað svara spurn­ingum um eðli vin­áttu sinnar. Samkvæmt hæf­is­reglum stjórn­sýslu­laga getur „náin vin­átta“ haft áhrif á hæfi ráð­herra og ann­arra opin­berra starfs­manna en í slíkri vin­áttu felst meðal ann­ars að menn umgang­ist í frí­tíma sínum.
Af hverju er spilling frekar umborin á Íslandi en í Svíþjóð?
Úttekt

Af hverju er spill­ing frekar umborin á Íslandi en í Svíþjóð?

Munur á umræðu og aðgerðum stjórn­valda gegn spill­ingu í Svíþjóð og á Íslandi er hróp­lega mik­ill. Ákæru­valdið í Svíþjóð hefur á síð­ustu tveimur árum hafið rann­sókn á tveimur ráð­herrum vegna spill­ingar. Þessar rann­sóknir byggj­ast samt á veik­ari for­sendum en mörg mál sem komið hafa upp um íslenska ráð­herra á liðnum árum. Þá eru óform­legar reglur um spill­ingu og þol­in­mæði almenn­ings gagn­vart spill­ingu allt ann­ars konar á Íslandi en í Svíþjóð.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár