Tengir aukinn vopnaburð við fjölgun útlendinga og hælisleitenda

Haraldur Johann­es­sen rík­is­lög­reglu­stjóri segir auk­inn fjölda erlendra borg­ara á Íslandi á meðal þess sem hafi kallað á auk­inn vopna­burð lög­reglu. Rík­is­lög­reglu­stjóri getur ein­hliða ákveðið að auka vopna­burð sér­sveit­ar­innar.

Tengir aukinn vopnaburð við fjölgun útlendinga og hælisleitenda
Rík­is­lög­reglu­stjóri Haraldur Johann­es­sen segir árás­irnar í Lund­úna­borg hafa orðið til þess að verk­lagi sér­sveit­ar­innar hafi verið breytt.

Haraldur Johann­es­sen rík­is­lög­reglu­stjóri nefnir bæði mann­skæðar árásir í erlendum borgum og auk­inn fjölda erlendra borg­ara á Íslandi sem ástæður þess að lög­regla hafi þurft að auka við­búnað sinn á fjölda­sam­komum. Mikil umræða varð eftir að sér­sveit­ar­menn Rík­is­lög­reglu­stjóra gengu um vopn­aðir skot­vopnum í miðbæ Reykja­víkur á meðan fjöl­skyldu­há­tíðin Color Run fór fram um síð­ustu helgi. Haraldur segir ljóst að sami við­bún­aður verði fyrir hendi á hátíð­ar­höld­unum vegna 17. júní um næstu helgi og eins á tón­list­ar­há­tíð­inni Secret Solstice. Þá sé til skoð­unar að sér­sveitin ann­ist eft­ir­lit á Þjóð­há­tíð í Vest­manna­eyjum um versl­un­ar­manna­helg­ina.

Hann segir að verk­lagi sér­sveit­ar­innar hafi verið breytt eftir að óðir menn hafi gengið og ekið um götur Lund­úna­borgar fyrir skemmstu og myrt þar sak­lausa borg­ara. Hann nefnir einnig árásir í Stokk­hólmi, Manchester og í París, en að nýj­ustu árás­irnar í Lundúnum hafi gert úts­lagið. „Það var sá atburður sem varð til þess að við óskuðum eftir mati grein­inga­deildar rík­is­lög­reglu­stjóra á því hvort við myndum bregð­ast við með ein­hverjum ákveðnum hætti og nið­ur­staðan varð sú að sér­sveit­ar­menn, sem að öllu jöfnu eru með vopnin sín í sér­sveit­ar­bíl­unum, eru núna með skamm­byssur á lær­inu. Þeir eru þá til­búnir í mjög skjót við­brögð ef ein­hver hætta stafar að almenn­ingi sem kemur saman í stórum stíl á sam­komum, nú aðal­lega hér á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þar sem tugir þús­unda eru sam­an­komnir á skemmt­unum sem eru haldnar hérna,“ segir Haraldur. Um tíma­bundna ráð­stöfun sé að ræða, sem sé end­ur­metin frá degi til dags. 

„Það er mat lög­reglu að það þurfi að geta gripið mjög skjótt til aðgerða.“

Aðspurður hvort það liggi ekki fyrir mat á inn­lendum aðstæðum minnir Haraldur á að við­bún­að­ar­stigið sé enn í með­al­lagi. „Þessir atburðir erlendis hafa beinst að almennum borg­urum og þegar við erum að skoða ástandið hér á landi, þar sem fjöldi fólks kemur saman, þá vill lög­reglan vera við­búin til þess að grípa inn í án tafar, án þess að þurfa að hörfa af vett­vangi, leita að sínum vopnum og koma svo aftur inn á vett­vang sem kannski er lok­aður og tugir þús­unda manna sam­an­komnir. Þannig það er mjög erfitt fyrir lög­reglu að nálg­ast við­burð sem á sér stað í slíkri mann­þröng. Það er mat lög­reglu að það þurfi að geta gripið mjög skjótt til aðgerða.“

Almenningur margoft séð sérsveitina undir vopnum

Haraldur segir að það sem geti gerst ann­ars staðar geti hugs­an­lega gerst á Íslandi. Ekki sé hægt að úti­loka að atburðir líkt og þeir sem áttu sér stað í London, París, Brussel og víðar í Evrópu geti átt sér stað hér á landi. Hann nefnir voða­verk Anders Breivik í Noregi árið 2011, en fáir hafi talið lík­legt að slíkir atburðir gætu gerst í Noregi. „Við verðum að ganga út frá því að lög­reglan geti tryggt öryggi borg­ar­anna og verndað borg­ar­ana gagn­vart óðum mönnum sem hugs­an­lega kunna að birt­ast hér eins og þeir birt­ust í London,“ segir hann. 

En hvers vegna núna? Þú nefnir til dæmis Noreg, en margir telja íslenskt sam­fé­lag mun lík­ara því norska. Hvers vegna varð ekki þessi við­bún­aður eftir voða­verkin í Noregi?

„Menn töldu það vera mjög sér­stæðan, ein­stakan atburð sem myndi ekki eiga hlið­stæðu á Norð­ur­lönd­unum,“ svarar Haraldur. „Síðan koma þessi hryðju­verk hvert á fætur öðru, og ekki alltaf hryðju­verka­menn heldur morð­óðir menn. Þetta hefur verið að fær­ast nær okkur, eins og ég segi þá hefur þetta verið í þessum borgum og þessu er beint að almennum borg­urum. Það virð­ist ekki skipta máli hvort það eru konur og börn, það virð­ist bara vera til­gang­ur­inn að myrða sem flesta og valda sem mestum skaða og óróa í sam­fé­lag­inu. Þannig við viljum reyna allt sem við getum hér, íslenska lög­reglan, til þess að tryggja öryggi borg­ar­anna og öruggt sam­fé­lag. Það er til­gang­ur­inn með þessu.“

En hvað seg­irðu þá við þá borg­ara sem hafa lýst yfir óánægju með þetta og segja að sýni­leiki vopna sé ekki til þess fall­inn að vekja með þeim örygg­is­kennd? 

„Ég vil nú segja almennt séð að íslensku almenn­ingur þekkir vel hina vopn­uðu lög­reglu, þekkir vel vinnu­brögð sér­sveit­ar­innar og hefur margoft séð sér­sveit­ina undir vopnum.“ 

Vopnaútköll sérsveitarinnar stóraukist

Haraldur segir að Rík­is­lög­reglu­stjóri geti ein­hliða ákveðið að auka vopna­burð lög­regl­unnar. Ekki þurfi að fá sam­þykki hjá dóms­mála­ráð­herra eða þjóðar­ör­ygg­is­ráði, svo eitt­hvað sé nefnt. „Sér­sveitin er á ábyrgð rík­is­lög­reglu­stjóra. Þetta er eina vopn­aða lög­reglan í land­inu og hún heyrir undir rík­is­lög­reglu­stjóra. Og það er hans að vega og meta og taka ákvarð­anir um það með hvaða hætti sér­sveitin starfar,“ segir hann. 

„Við erum með sam­fé­lag sem er sam­sett af miklum fjölda erlendra borg­ara.“

Þá segir hann verk­efni sér­sveit­ar­innar, sem kalli á vopna­burð, hafa auk­ist gríð­ar­lega í ár. „Bara núna á fyrstu fimm mán­uðum þessa árs þá eru eitt hund­rað til­vik þar sem vopnuð sér­sveitin er kölluð til. Það er jafn­mik­ill fjöldi og var allt árið 2016. Þannig þessi vopna­út­köll sér­sveit­ar­innar hafa stór­auk­ist.“ 

Hvers vegna held­urðu að það sé?

„Ætli það sé ekki í fyrsta lagi vegna þess að lög­reglu­menn eru orðnir með­vit­aðri um að það þurfi að tryggja vett­vang, það þurfi að tryggja lög­reglu­menn og starf­semi þeirra á vett­vangi. Verk­efnin eru orðin erf­ið­ari. Það er til dæmis tölu­vert um hnífa­mál sem lög­regla þarf að takast á við. Við erum með sam­fé­lag sem er sam­sett af miklum fjölda erlendra borg­ara, bæði þeirra sem starfa hér og dvelja hér, ferða­menn, hæl­is­leit­endur og svo fram­vegis. Þannig að sam­setn­ingin hér á hverjum tíma af því fólki sem er í land­inu hefur breyst mjög veru­lega und­an­farin tíu, fimmtán ár.“ 

Og það kallar á þessi við­brögð?

„Allt kallar þetta, bæði þró­unin í nágranna­lönd­unum, breytt sam­fé­lag hér, allt hefur þetta kallað á að lög­reglan þarf að aðlag­ast breyttum tíma.“  

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár