Ríkislögreglustjóri boðar vopnaða sérsveit á útihátíðir og segir að „engin nýlunda“ sé í vopnaburðinum

Haraldur Johann­es­sen rík­is­lög­reglust­sjóri segir að sér­sveitin verði á 17. júní. Hann segir að það sé engin stefnu­breyt­ing.

Ríkislögreglustjóri boðar vopnaða sérsveit á útihátíðir og segir að „engin nýlunda“ sé í vopnaburðinum
Rík­is­lög­reglu­stjóri Haraldur Johann­es­sen rík­is­lög­reglu­stjóri segir emb­ættið hafa upp­fært mat sitt á hættu á hryðju­verkum eftir árásir í Manchester og London und­an­farnar vikur.

Íslenskur almenn­ingur þarf að búa við breyttan veru­leika, þar sem vopn­aðir sér­sveit­ar­menn verða sýni­legir á úti­há­tíðum, en það er engin stefnu­breyt­ing, að sögn Haraldar Johann­es­sen rík­is­lög­reglu­stjóra.

Vopnuð sér­sveit verður á meðal mann­fjöld­ans í hátíð­ar­höld­unum á þjóð­há­tíð­ar­dag­inn 17. júní, og svo á tón­list­ar­há­tíð­inni Secret Solstice, auk þess sem nú er verið að skoða hvort sér­sveitin mæti á þjóð­há­tíð í Vest­manna­eyjum.

Þótt vopnuð lög­regla hafi ekki verið sýni­leg á manna­mótum á Íslandi fram að þessu, segir rík­is­lög­reglust­sjóri í sam­tali við Rúv að það sé „engin stefnu­breyt­ing“. „Já. Við þurfum að átta okkur á því að sér­sveit­ar­menn eru vopn­aðir. Og þeir eru orðnir mjög sýni­legir í íslensku sam­fé­lagi. Þannig að almenn­ingur er far­inn að sjá vopn­aða lög­reglu­menn mjög mikið hér á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Þannig að það er engin nýlunda, það er engin stefnu­breyt­ing hvað það varðar. En almenn­ingur á von á að sjá vopn­aða sér­sveit­ar­menn á þessum stóru úti­há­tíðum,“ segir Haraldur.

Sér­sveit­ar­maðurÍ mið­borg Reykja­víkur.

Að sögn Haraldar er ekki verið að auka vopna­burð. „Við erum ekki að auka vopna­burð. Það sem við erum að gera er að við erum að gera hina vopn­uðu lög­reglu í land­inu, sér­sveit rík­is­lög­reglu­stjóra, sem dags­dag­lega er undir vopnum, meira sýni­lega á stórum sam­komum. Samkomum þar sem tugir þús­unda koma saman á ein­hverri úti­há­tíð­inni.“

Haraldur segir að hver sek­únda skipti máli. Það sem hann ótt­ast eru hryðju­verka­árásir ísla­mista, sam­bæri­legar þeim sem urðu nýverið í London og Manchester.

Nýtt þjóðar­ör­ygg­is­ráð, sem stýrt er af Bjarna Bene­dikts­syni for­sæt­is­ráð­herra, fund­aði á „öruggum stað“ á Kefla­vík­ur­flug­velli í gær. Þar var rætt um auk­inn við­búnað og vopna­burð lög­reglu. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Vopnaburður lögreglu

Lögreglumenn vilja rafbyssur: „Viljum tryggja það að borgararnir séu öruggir“
InnlentVopnaburður lögreglu

Lög­reglu­menn vilja raf­byssur: „Viljum tryggja það að borg­ar­arnir séu öruggir“

Lög­reglu­menn á Íslandi hafa lýst yfir vilja til þess að emb­ættið fái raf­byssur til afnota. Útköllum þar sem skot­vopn koma við sögu hefur fjölgað nokkuð á síð­ustu miss­erum. Dóms­mála­ráð­herra ætlar að funda með lands­sam­bandi lög­reglu­manna þar sem málið verður tekið fyrir. RÚV greinir frá þessu í dag. Jón Gunn­ars­son sagði í morg­un­út­varpi Rásar 2 í morgun að þró­unin væri ógn­væn­leg...

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár