Rybak á Íslandi: „Ég verð að leggja áherslu á heilindi“

Alexander Rybak kom, sá og sigraði fyrir hönd Norðmanna í Eurovision vorið 2009 með lagi sínu Fairytale en lagið fékk fleiri atkvæði en nokkurn tímann hafði þekkst í keppninni. Hann hefur síðan verið vinsæll víða um heim. Alexander hefur samið og flutt smelli sem hafa slegið í gegn, hann hefur unnið til verðlauna, skrifað barnabók um einelti og um helgina kemur hann fram á tónleikum Gretu Salóme á Akureyri og í Reykjavík.

Grár marsdagur. Svart­klæddur. Svart­hærður. Dökk­eygður. Svartur fiðlu­kassi.

Það er hins vegar bjart yfir Alexander Rybak. Einlægur. Elsku­legur. Virkar jafnvel svolítið hlédægur.

Hann nær í kolsvart kaffi í hvítum bolla. 

Við tölum um tónlistina. Fiðluna. Tónleikana með Gretu Salóme. Við tölum líka um æsku hans.

Alexander Rybak fæddist í Minsk í Hvíta-Rússlandi 13. maí árið 1986 – 10 dögum eftir að Eurovision-keppnin var haldin í Bergen í Noregi en Hanne Krogh og Elisabeth Andreassen í Bobbysocks höfðu sigrað árið undan með laginu La det swinge. Sandra Kim frá Belgíu vann svo með laginu J'aime la vie í keppninni í Bergen.

Agi

Fjöl­skylda Alexanders flutti til Noregs þegar hann var um sex ára.

„Foreldrar mínir eru tónlistar­fólk,“ segir Alexander. „Mamma er píanó­leikari og pabbi er fiðlu­leikari. Ég byrjaði að spila á píanó og fiðlu þegar ég var um sex eða sjö ára. Mamma og …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár