Ósáttir sunnlenskir sjálfstæðismenn krefja Bjarna um skýringar

Sjálf­stæð­is­menn á Suð­ur­landi eru með böggum hildar yfir því að Guðrún Haf­steins­dóttir odd­viti flokks­ins í kjör­dæm­inu eigi ekki sæti við rík­is­stjórn­ar­borðið nú þegar. Tíu af tólf ráð­herrum eru þing­menn kjör­dæma höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins.

Sjálf­stæð­is­menn í Suð­ur­kjör­dæmi gagn­rýna Bjarna Bene­dikts­son for­mann flokks­ins harð­lega fyrir að hafa ekki valið Guðrúnu Haf­steins­dóttur til að gegna ráð­herra­emb­ætti fyrir hönd flokks­ins og segja halla á lands­byggð­ina við rík­is­stjórn­ar­borðið.

Í sam­eig­in­legri ályktun frá stjórnum full­trúa­ráða sex svæð­is­fé­laga flokks­ins í kjör­dæm­inu er „furðu“ og „gríð­ar­legum von­brigðum“ lýst yfir og kallað eftir frek­ari útskýr­ingum frá Bjarna á þeirri ákvörðun að gera Guðrúnu ekki að ráð­herra nú þegar.

Eins og kynnt var í morgun mun Guðrún verða inn­an­rík­is­ráð­herra síðar á kjör­tíma­bil­inu. Jón Gunn­ars­son, þing­maður Suð­vest­ur­kjör­dæmis, byrjar hins vegar í því ráð­herra­emb­ætti og víkur síðan fyrir Guðrúnu.

Sunn­lenskir sjálf­stæð­is­menn eru þó afar ósáttir við hvernig málum er háttað.

„Það að veita Guðrúnu Haf­steins­dóttur ráðu­neyti ein­ungis hluta kjör­tíma­bils­ins er eins og blaut tuska í and­litið á þeim þús­undum kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Suð­ur­kjör­dæmi og öllum þeim hund­ruðum sjálf­boða­liða sem tóku þátt í að tryggja glæst gengi flokks­ins,“ segir í ályktun stjórna full­trúa­ráða Sjálf­stæð­is­fé­lag­anna í Suð­ur­kjör­dæmi.

Höfuðborgarsvæðiskjördæmin eiga tíu ráðherra af tólf

Auðvelt er að færa rök fyrir því að það halli nokkuð á lands­byggð­ar­kjör­dæmin í þeirri nýju rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur sem kynnt var í dag.

[adspot]

Af ráð­herr­unum tólf eru ein­ungis tveir sem voru kjörnir á þing í lands­byggð­ar­kjör­dæmum, Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir sem er odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Norð­vest­ur­kjör­dæmi og Sigurður Ingi Jóhanns­son sem leiddi Framsókn í Suð­ur­kjör­dæmi. Enginn ráð­herra kemur var kjör­inn á þing í Norð­aust­ur­kjör­dæmi.

Fjórir ráð­herrar koma hins­vegar úr Suð­vest­ur­kjör­dæmi og Reykja­vík­ur­kjör­dæmin tvö eiga hvort um sig þrjá full­trúa við rík­is­stjórn­ar­borðið. Við inn­komu Guðrúnar í rík­is­stjórn­ina í stað Jóns, eins og boðað hefur verið, verður vægi lands­byggð­ar­kjör­dæmanna þó ögn meira.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár