Engar upplýsingar fást um áhugasama kaupendur ríkiseigna

Ríkið vinnur að því að selja eignir sem komu í hlut þess með stöð­ug­leika­fram­lagi slita­búa föllnu bank­anna.

Ekki er hægt að fá upp­lýs­ingar um hvaða aðilar hafa sýnt áhuga á því að kaupa Lyfju af íslenska rík­inu, sam­kvæmt opin­berum svörum félags­ins Lind­ar­hvols, sem ríkið á, en það heldur utan um safn eigna sem kom í skaut þess með stöð­ug­leika­fram­lagi slita­búa föllnu bank­anna.

Kjarninn spurð­ist fyrir um hverjir hefðu sýnt því áhuga að kaupa Lyfju, en í svari Lind­ar­hvols segir að ekki sé hægt að upp­lýsa um það, á þess­ari stundu.

Lyfja rekur um 30 apó­tek um allt land og hjá fyr­ir­tæk­inu starf um 300 manns.

Hversu mörg til­boð hafa borist í Lyfju, og hvaða aðilar eru það sem hafa fengið að skoða gögn um efna­hag fyr­ir­tæk­is­ins?

„Eins og kemur nánar fram á heima­síðu Lind­ar­hvols ehf. þá var Lyfja hf. sett í opið sölu­ferli og var sölu­ferl­inu skipt upp í tvennt, ann­ars vegar fyrsta stig þar sem áhuga­samir aðilar gátu sent inn óskuld­bind­andi til­boð og síðan annað stig sem felur í sér áfram­hald­andi ferli sem á að skila sér í skuld­bind­andi til­boðum áhuga­samra fjár­festa. Þar sem nið­ur­staðan af sölu­ferl­inu liggur ekki fyrir á þess­ari stundu og sölu­ferlið áfram í vinnslu er því ekki hægt að upp­lýsa nánar um stöðu sölu­ferl­is­ins opin­ber­lega á þessu stigi þess en upp­lýst verður um nið­ur­stöðu þess þegar nær dregur,“ segir í svari Lind­ar­hvols.

Hvaða eignir eru í sölu­ferli núna?

„Með vísan til nán­ari upp­lýs­inga á heima­síðu Lind­ar­hvols ehf., þar sem sölu­ferli eigna er til­kynnt en sölu­ferli þeirra er hagað í sam­ræmi við sam­þykktar reglur þess um sölu­ferli eigna í umsýslu félags­ins, þá eru eft­ir­far­andi eignir í sölu­ferli núna: Lyfja hf., Vörukaup ehf. og kröfur á Glitni ehf., Klakka ehf. og Gamla Byr eign­ar­halds­fé­lag ehf,“ segir í svari Lind­ar­hvols.

Þá er einnig tekið fram í svar­inu að ekki sé hægt að upp­lýsa um á hvaða ein­stak­linga eða einka­hluta­fé­lög Lind­ar­hvoll eigi kröfu, þar sem slíkt sam­ræm­ist ekki per­sónu­vernd­ar­sjón­ar­miðum upp­lýs­inga­laga. „Félaginu er ekki heim­ilt að upp­lýsa opin­ber­lega um kröfur á til­tekna ein­stak­linga og einka­hluta­fé­lög,“ segir í svar­inu, og einnig tekið fram að ekki sé hægt að upp­lýsa um upp­hæðir sem um ræðir.

Búið að selja hluti í skráðum félögum

Lind­ar­hvoll hefur á und­an­förn­um vikum selt 6,38 pró­sent hlut í Reitum fyrir 3,9 millj­arða og 13,93 pró­sent hlut í Sjóvá fyrir 2,8 millj­arða. Kaup­endur voru fjár­festar á mark­að­i, líf­eyr­is­sjóð­ir, bankar og trygg­ing­ar­fé­lög þar á með­al. Lands­bank­inn ann­að­ist ­söl­una sem fór fram í opnu sölu­ferli á mark­aði.

Hinn 5. októ­ber næst­kom­andi rann út frestur til að skila inn­ óskuld­bind­andi til­boðum í Lyfju hf. sem ríkið á að fullu.

Þeim sem áttu hag­stæð­ustu til­boð­in er boðin áfram­hald­andi þátt­taka í ferl­inu og fá aðgang að raf­ræn­u ­gagna­her­bergi með ítar­legri gögn­um, kynn­ingu á félag­inu frá stjórn­endum Lyfju hf. og gef­st kostur á að fram­kvæma áreið­an­leika­könnun á félag­inu.

Það er Virð­ing hf. sem sér um söl­una.

Hinn 29. sept­em­ber síð­ast­lið­inn aug­lýsti ríkið svo eign­ar­hluti sína í Glitni Holdco ehf., Klakka ehf., ogGamla Byr Eign­ar­halds­fé­lagi ehf.

Sölu­ferlið byggir á sam­þykktum reglum um sölu eigna ­rík­is­sjóðs sem eru í umsýslu Lind­ar­hvols ehf., þar sem kemur fram að við sölu ­eigna skuli leggja áherslu á gagn­sæi, hlut­lægni, jafn­ræði og hag­kvæmni. Með­ hag­kvæmni er átt við að leitað sé hæsta verðs eða mark­aðs­verðs fyrir eign­irn­ar, eins og segir á vef Linda­hvols.

Sölu­ferlið er opið öllum aðilum gegn und­ir­ritun þeirra á trún­að­ar­yf­ir­lýs­ingu og skil­mála­bréfi.

Fjár­festar sem þess óska verður boðið að taka þátt í sölu­ferl­inu gegn und­ir­ritun þeirra á trún­að­ar­yf­ir­lýs­ingu og skil­mála­bréf þar að lút­andi.

Áhuga­sömum bjóð­endum var boðið að skila inn­ skuld­bind­andi til­boðum með sér­stak­lega til­greindum fyr­ir­vörum fyr­ir kl. 16.00, föstu­dag­inn 14. októ­ber 2016, að því er sagði í aug­lýs­ingu.

Miklar eignir

Verð­mæt­in, sem slitabú við­skipta­bank­anna þriggja auk minni slita­búa lögðu fram í tengslum við gerð nauða­samn­inga, má í meg­in­at­rið­u­m ­flokka í laust fé, fram­sals­eignir og fram­lag vegna við­skipta­banka.

Þar á meðal var eign­ar­hlutur í Íslands­banka og skulda­bréf sem Kaup­þing gaf út með veði í Arion banka hf. Skulda­bréfið verð­ur­ greitt upp við sölu Arion banka hf. en rík­is­sjóður fær vaxta­tekjur af bréf­in­u fram að því. Með öðrum orðum þá fær rík­is­sjóður sölu­and­virði Arion banka.

Banka­sýsla rík­is­ins fer með eign­ar­hlut rík­is­sjóðs í Ís­lands­banka og einnig í Lands­bank­an­um. Lind­ar­hvoll ann­ast umsýslu, fulln­ust­u og sölu ann­arra eigna og hafa eft­ir­lit með svo­nefndum fjár­sóps­eign­um.

Meðal þeirra eigna sem fóru í umsýslu hjá Lind­ar­hvoli voru hlutir í eft­ir­töldum félögum og sjóð­um: ALMC eign­ar­halds­fé­lag ehf., AuЭur I fag­fjár­fest­inga­sjóð­ur, Bru II Venture Capi­tal Fund, DOHOP, Eim­skip hf., Eyr­ir­ In­vest hf., Inter­net á Íslandi, Klakki ehf., Lyfja hf., Nýi Norð­ur­turn­inn ehf., Reitir hf., S Hold­ing ehf., SAT eign­ar­halds­fé­lag hf., SCM ehf., ög Sím­inn hf.

Loks eru í flokki fram­sals­eigna ýmsar kröfur á ein­stak­linga og kröfur á 38 félög, sem falla undir per­sónu­vernd­ar­á­kvæð­i ­upp­lýs­inga­laga, og gefur Lind­ar­hvoll ekki upp hvaða eignir þetta eru ­ná­kvæm­lega.

Verð­mæti þess­ara eigna, sam­tals, hleypur á tugum millj­arða króna.

Í stjórn Lind­ar­hvols eru Þór­hall­ur ­Ara­son úr fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­ingu, sem jafn­framt er stjórn­ar­for­maður, Ása Ólafs­dótt­ir, með­stjórn­andi, og Haukur C. Bene­diks­son, með­stjórn­andi, en hann hefur farið fyr­ir­ ­Eigna­safni Seðla­banka Íslands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár