Öðlaðist nýtt líf með breyttum venjum

Arnrún María Magn­ús­dóttir tók líf sitt í gegn í fyrra og var ráð­lagt að fara að æfa nokkrum sinnum í viku. Hún var með minni­mátt­ar­kennd, hana skorti trú og hún reyndi að selja sér alls konar hug­myndir til að kom­ast undan æfingum. En við­horfið fór að breyt­ast þegar hún fann hreyf­ing­una gera sér gott.

Arnrún María seg­ist hafa haft gaman af að hreyfa sig, en hindr­an­irnar hafi verið margar. Í fyrsta lagi hafi hún verið með mikla minni­mátt­ar­kennd yfir því hvernig hún er vaxin. Þess vegna hafi hún ekki haft trú á sér þegar kom að hreyf­ingu. Síðan hafi hún talið sér trú um að hreyf­ingin sem fylgdi vinn­unni á veit­inga­staðnum sem hún rak hafi verið nægj­an­leg. „Maður var á fullu að vinna í kannski 17 til 18 tíma á dag. Einhvern veg­inn ákvað ég að það væri málið.“

Arnrún María Magn­ús­dóttir fékk árið 2016 blóð­tappa í höf­uðið og lam­að­ist vinstra megin og þurfti að læra að ganga og tala upp á nýtt og tók það ferli nokkra mán­uði. Hún seg­ist alltaf hafa tekið allt á hnef­anum og nokkrum mán­uðum eftir að hún veikt­ist byrj­aði hún í 100% vinnu á ný en hún hafði í gegnum árin meðal ann­ars rekið eigið veit­inga­hús og …

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár