Tilgáta sem gerir rökfærslur auðskiljanlegar

Greppur Torfason, höf­undur bók­ar­innar Dagg­ar­markstil­gátan, er meist­ara­nemi í heim­speki við Háskóla Íslands. Verði hann var við rök­legar mót­sagnir, segir hann áhuga sinn sam­stundis vak­inn.

Greppur stendur einn að Karolina Fund verk­efn­inu Dagg­ar­markstil­gátan, sem snýst um að fjár­magna útgáfu all-sér­stakrar bókar með sama nafni – bókar sem fjallar um heims­fræði (e. cosmology). Það er ekki vitað til þess að aðrir Íslend­ingar hafi áður sett fram heil­steypta heims­fræði­lega til­gátu ásamt gagn­rýni á við­teknar hug­myndir um gerð og upp­runa alheims­ins. Verk­efnið hlýtur því að telj­ast nokkuð frétt­næmt og vera nýnæmi.

Höfundur bók­ar­innar bendir á að til­gátur og kenn­ingar séu ekki meit­l­aðar í stein – þær séu ekki stað­reyndir sem hafi verið full-sann­aðar með rann­sóknum. Tilgátur og kenn­ingar séu því einmitt vett­vangur fyrir gagn­rýnið sam­tal, og séu einmitt settar fram í við­leitni til þess að vekja umræðu og laða þannig fram nýja þekk­ingu.

Verk­efnið Dagg­ar­markstil­gátan snýst um að koma í útgáfu bók sem hefur einmitt slíkt mark­mið. Í bók­inni er að finna nýstár­legt sam­hengi hug­mynda sem eru byggðar á við­teknum stað­reyndum, settar fram í því skyni að við­halda sam­ræðu um margar grunn­for­sendur þeirrar heims­fræði­kenn­ingar sem er orðin við­tekin, þrátt fyrir að í henni felist mót­sagnir sem flestir virð­ist ekki koma auga á lengur eða leiði ein­fald­lega hjá sér af ein­hverjum ástæðum. Kjarninn hitti Grepp og tók hann tali.

Hvernig fædd­ist hug­myndin að dagg­ar­markstil­gát­unni?

„Hug­myndin kvikn­aði við það að lesa um ævi Bretans Williams Mariners. Ég var búsettur í Montreal í Kanada mest allan 10. ára­tug síð­ustu aldar og fann árið 1993 illa farna bók­ar­skruddu á forn­sölu með ferða­sögu Mariners. Í bók­inni er meðal ann­ars að finna stutta lýs­ingu á mjög sér­stökum helli á eyj­unni Nuapapu í Kyrra­hafi – helli sem síðan er kall­aður Mar­iners­hellir.

Í hell­inum eru afar sér­stök skil­yrði sem valda því að and­rúms­loftið inni í hell­inum fer í gegnum dagg­ar­mark oft á hverri mín­útu. And­rúms­loftið í hell­inum verður alhvítt af skýi sem þétt­ist úr vatns­gufu sem hendi væri veifað, en verður svo gegn­sætt aftur í næstu svipan. Þessi lýs­ing og eðl­is­fræðin þar að baki varð til þess að hug­myndir sem ég hafði ígrundað af og til allt frá því ég var ung­lingur, fóru að taka á sig heil­steypta mynd. Það má segja að hug­mynd­irnar hafi verið að þró­ast sífellt betur í huga mér síðan ég sat á bekk við Sherbrooke stræti í Montreal og las þessa bók.

Mér hefur verið upp­sigað við skýr­ingar Mikla­hvells­kenn­ing­ar­innar allt frá því ég kynnt­ist þeim sem barn, og hefur aldrei fund­ist sú kenn­ingin vera sann­fær­andi í kjarna­at­riðum sínum, enda tel ég hana fulla mót­sagna. Það má segja að þessi gamla ósátt mín við þá kenn­ingu hafi knúið mig til þess að ígrunda heims­fræði og nátt­úru­speki heim­spek­innar.“

Hvers konar tilgáta er daggarmarkstilgátan?

„Tilgátan er heims­fræði­leg til­gáta (e. cosmology), og tekst á við hug­myndir um það hvernig alheim­ur­inn er að gerð og upp­runa. Hún fer þvert gegn flestum við­teknum skoð­unum hvað þetta varðar og verður lík­lega að telj­ast tals­vert djörf. Sér­stak­lega eru grunn­hug­myndir Mikla­hvells­kenn­ing­ar­innar gagn­rýndar. Að gagn­rýna slíka kenn­ingu er í raun á allra færi, því kenn­ingin er full mót­sagna. Það hins vegar, að setja fram aðra heil­steypta til­gátu í stað­inn er lík­lega ekki á áhuga­sviði hvers sem er. Þó tel ég þá mann­eskju vand­fundna sem ekki hefur staldrað við og velt fyrir sér gerð og upp­runa alheims­ins. Ég tel að slíkar spurn­ingar séu óhjá­kvæmi­legar.

Dagg­ar­markstil­gátan er sett fram á sam­ræðu­formi sem gerir allar rök­færslur mjög skýrar og auð­skilj­an­legar. Fyr­ir­myndin eru sam­ræður Platós. Slík sam­ræða er sér­stak­lega vel til þess fallin að takast á við rök­færslur á almennu máli og láta á þær reyna með góðu rými fyrir mót­bárur og gagn­rök. Ég læt ein­fald­lega tvö bók­mennta­leg verk­færi – tvær per­sónur, takast á um hug­myndir á þann hátt að flestir ættu að eiga erindi við sam­talið. Ég reyni eftir fremsta megni að forð­ast flókið og fræði­legt orð­færi. “

Hvaða máli skiptir sam­ræðan?

„Ég er ekki viss um að Íslend­ingur hafi áður sett fram heil­steypta til­gátu um gerð og upp­runa alheims­ins. Það að Íslend­ingur skuli telja sig eiga erindi við slíkar hug­myndir hlýtur að telj­ast frétt­næmt og skipta aðra máli. Í raun er ég engan veg­inn viss um að ég hafi rétt fyrir mér hvað til­gát­una snertir – enda til­gáta, en hún er þó fengin fram með ígrundun á stað­reyndum með til­leiðslurökum, og er vissu­lega fram­lag í umræð­una um gerð og upp­runa alheims­ins.

Það að gera til­gátur að kenn­ingum, og sanna svo kenn­ingar getur verið vanda­samt og tekið langan tíma. Tilgátan liggur þó á borð­inu til rann­sóknar ef það tekst að gefa bók­ina út, en það er lík­lega mik­il­væg­asta atriðið – að til­gátan komi út og geti þannig orðið öðrum til­efni til umhugs­unar og gagn­rýni. Ef ég héldi þessum hug­myndum fyrir mig gætu aðrir ekki rætt þær, og því finnst mér ég verða að koma þeim á fram­færi svo mann­eskjur mæt­ari en ég fái tæki­færi til þess að kanna þær. Sjálfur hef ég ekki fjár­hags­legt bol­magn til þess að standa einn að útgáf­unni, og hóf þess vegna hóp­fjár­öflun í því skyni að koma rit­inu í útgáfu með reisn og sóma.

Hvað sam­ræð­una sjálfa snertir, má segja að heim­speki sé í raun þekk­ing­ar­leit með sam­ræðu, og til­gátan er þannig mitt fram­lag til þeirrar sam­ræðu. Vestræn heim­speki­sam­ræða er talin hefj­ast fyrir meira en 25 öldum með Forn-Grísku heim­spek­ing­unum – sam­ræða sem enn er lif­andi.

Það má segja að til­gátan sé að auki mik­il­væg á öðrum for­sendum en heims­fræði­legum, því henni er ekki síður ætlað að stugga við vissum hug­mynda­þræði innan vís­inda­sög­unnar, ásamt því að benda á kosti og ágalla varð­andi ákveðna hugs­un­ar­gerð við rétt­læt­ingu til­fallandi skoð­ana. Bókin má segja að sé mik­il­væg ádeila, og varði það sem ég kalla stað­fest­ing­ar­villu sem mér virð­ist við­loð­andi á sumum sviðum innan vís­inda­sam­fé­lags­ins.

Það er allt of algengt að mínu mati, sér­stak­lega hvað varðar heims­fræði, að nið­ur­stöður hverrar rann­sókn­ar­innar á fætur annarri eru nýttar til þess að sann­færa vís­inda­sam­fé­lagið sjálft um að þær kenn­ingar sem þegar eru við­teknar séu réttar, jafn­vel þótt í þeim felist mót­sagnir. Stundum virð­ist um að ræða eins konar öfuga afleiðslu. Frekar bæri að nýta slíkar nið­ur­stöður til þess kanna hvort kenn­ingin megni að skýra nið­ur­stöð­urnar. Það er engu lík­ara en að nið­ur­stöðum nýrra rann­sókna sé ein­fald­lega skeytt framan við við­teknar kenn­ingar eftir á sem for­sendum fyrir þeim, og í því skyni að styrkja sann­fær­ingu um gildi kenn­ing­anna. Réttara væri að leita nýrra skýr­inga í ljósi þannig rann­sókna og spyrja gagn­rýn­inna spurn­inga um rétt­mæti hinna við­teknu kenn­inga, að minnsta kosti áður en nið­ur­stöð­urnar eru ein­fald­lega taldar styðja fyrri hug­myndir.

Dagg­ar­markstil­gátan deilir einmitt á slík atriði og ýmsar við­teknar skoð­anir hvað heims­fræði snertir en skilur þó ekki allt eftir í upp­námi, heldur leggur til annað sam­hengi hug­mynda sem mögu­lega skýr­ingu.“

Verk­efnið er að finna hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár