Óttast að umfjöllunin dragi úr þolendum kynferðisofbeldis

Jóhanna Sig­ur­jóns­dóttir, lög­maður tveggja kvenna sem kært hafa tvo menn fyrir kyn­ferð­is­brot, mun á morgun leggja fram kæru gegn Vil­hjálmi H. Vil­hjálms­syni fyrir að leka trún­að­ar­upp­lýs­ingum um málið. Hún ótt­ast að umfjöll­unin muni hafa alvar­leg áhrif á afdrif máls­ins.

„Svona umfjöllun getur orðið til þess að draga kjark úr brota­þolum fram­vegis til að leggja fram kærur,“ segir Jóhanna Sig­ur­jóns­dóttir, lög­maður tveggja kvenna sem kært hafa tvo menn fyrir kyn­ferð­is­brot. Ítarlega hefur verið fjallað um málið í fjöl­miðlum síð­ustu daga eftir að Frétta­blaðið sagði frá því á mánu­dag að íbúðin þar sem ofbeldið á að hafa farið fram hafi verið útbúin til nauð­gana. Í gær steig Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­son, verj­andi ann­ars sak­born­inga fram, og lýsti meðal ann­ars gögnum máls­ins í smá­at­riðum. Jóhanna mun á morgun, fyrir hönd brota­þola, leggja fram kæru gegn Vil­hjálmi fyrir leka á trún­að­ar­upp­lýs­ingum. 

Samþykkt sam­ræði og munn­mök

Smá­at­riðin sem Jóhanna á við, og höfðu ekki komið fram áður í fjöl­miðlaum­fjöllun um málið, eru lýs­ingar Vil­hjálms í við­tali við Morg­un­út­varpið á Rás 2 í gær. Þar sagði Vil­hjálmur meðal ann­ars: „Í fyrra til­vik­inu við­ur­kennir minn maður að hafa átt sam­ræði við stúlk­una. Það fór fram með sam­þykki þeirra beggja. Í mál­inu liggja fyrir gögn sem sýna að þau eiga í miklum og góðum sam­skiptum í um það bil mán­að­ar­skeið eftir þetta. Þar á meðal strax nokkrum klukku­tímum eftir að kyn­mökin eiga sér stað.“
 
Spurður nánar út í þessi sam­skipti segir Vil­hjálmur: „Þetta eru sam­skipti á Facebook og þetta eru tólf blað­síður. Þau eiga sér stað um langt skeið. Þessi sam­skipti eru á góðu nót­unum. Þar er meðal ann­ars farið yfir atburði þessa kvölds, hvort þetta hafi spurst út í skól­anum og annað slíkt. En aldrei minnst einu orði á það að ein­hver þvingun eða refsi­verð hátt­semi hafi átt sér stað. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár