Demókratar og Repúblikanar sameinaðir gegn íslenska umskurðarfrumvarpinu

Þverpóli­tískt bréf var sent til íslenska sendi­ráðs­ins í Washington frá þing­mönnum utan­ríksi­mála­nefndar banda­ríska þings­ins vegna umskurð­ar­frum­varps­ins. Argasti yfir­gangur segir flutn­ings­maður frum­varps­ins.

„Stöðvið þetta for­dóma­fulla frum­varp,“ segja bæði þing­menn Repúblik­ana og Demókrata í bréfi sem sent var til íslenska sendi­ráðs­ins í Washington, vegna umskurð­ar­frum­varps­ins svo­kall­aða.

Hið þverpóli­tíska bréf, sem vef­síðan The Times of Israel, greinir frá, er ritað af með­limum utan­rík­is­mála­nefndar til að þrýsta á um að umskurða­frum­varp Silju Daggar Gunn­ars­dóttur, þing­manni Fram­sóknar, verði dregið til baka.

Í frum­varp­inu er umskurður barna bann­aður, og þá sér­stak­lega umskurður ungra drengja, en umskurður stúlkna er nú þegar bann­aður. Umskurður drengja yrði refsi­verður sam­kvæmt frum­varp­inu að við­lögðu sex ára fang­elsi. Umskurður af lækn­is­fræði­legum ástæðum yrði þó áfram leyfður.

Banda­rísku þing­menn­irnir segja í bréfin að þó að fjöldi gyð­inga og múslima á Íslandi sé tak­mark­aður gæti bannið verið nýtt af þeim sem daðri við útlend­inga- og gyð­inga­hatur í löndum þar sem fjöl­menn­ing er meiri.

„Þrátt fyrir að sam­fé­lag gyð­inga á Íslandi sé mögu­lega það fámenn­asta í heimi getur lög­gjöf sem bannar umskurð karla virkað sem mikil árás á trú­frelsi bæði gyð­inga og múslima,“ sagði í yfir­lýs­ingu frá sam­tök­unum Orthodox Union sem birtu bréfið.

Umskurður er ekki algengur á Íslandi og hefur frá árinu 2001 alls 21 drengur undir átján ára aldri verið umskor­inn hér á landi sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu. Þær tölur eru ekki flokk­aðar eftir því hvort aðgerðin er fram­kvæmd af trú­ar­legum eða lækn­is­fræði­legum ástæðum.

Á Íslandi búa á annað hund­rað gyð­inga og rúm­lega 1.100 múslimar.

Silja Dögg tjáð sig um bréf þing­mann­anna í dag á Facebook síðu sinni. Þar seg­ist hún ekki vita til þess að for­dæmi séu fyrir því að þing­menn ann­arra ríkja sendi form­legt bréf til sendi­ráð Íslands til að tjá sig um þing­mál sem séu til umræðu hverju sinni. „Við fyrstu sýn lítur þetta út sem arg­asti yfir­gangur.“

Hún segir málið nú til með­ferðar hjá alls­herjar- og mennta­mála­nefnd. „Allar hót­anir og þrýst­ingur eru vin­sam­leg­ast afþakk­aður.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár