Af hverju verðum við oftar veik á veturna?

Flensur ýmis konar fylgja gjarnan vetr­inum, það þekkjum við flest, og vitum að það teng­ist inni­veru og sam­komum ýmis konar yfir hátíð­irnar. En nú hefur ný rann­sókn bent á enn einn þátt­inn sem hefur áhrif og gerir kalda vetur að flensu­tíð mik­illi.

Veikindi að vetri eru algeng enda þrífast og dafna margar veirur vel í kulda.
Veikindi að vetri eru algeng enda þríf­ast og dafna margar veirur vel í kulda. Mynd: Pexels

Haustið gengur í garð og eins og hendi sé veifað leggj­ast margir í bælið. Jú, þetta teng­ist auk­inni inni­veru, sam­komum í skólum og á vinnu­stöðum og svo fram eftir göt­unum. Og svo kemur vetur og jóla­há­tíð með hefð­bundnum faðm­lögum og kossum og fólk leggst aftur í bælið.

Þennan vet­ur­inn er inflú­ensan fyrr á ferð­inni en venju­lega og kór­ónu­veiran sem veldur COVID-19 og RS-veiran einnig á ferð og flugi milli fólks, líkt og Kjarninn fjall­aði um nýverið. Þetta er sem sagt nokkuð óvenju­leg flensu­tíð.

Það er nokkuð víst að breytt hegðun okkar að hausti og vetri, þegar við þjöppum okkur saman, lokum gluggum til að halda hit­anum inni, skapar aðstæður sem eru kjör­lendi fyrir bakt­er­íur og veirur. Kjör­lendið er auð­vitað sem flestir lík­amar – hýslar – svo þær geti fjölgað sér. Og þegar stökkið milli lík­amana er stutt, eins og t.d. í vinnu­staða­par­tíi eða söng­stund á leik­skól­anum, þá er hátíð veira og bakt­ería sann­ar­lega runnin upp.

En nú hefur verið bent á aðra skýr­ingu og hana er að finna beint fyrir framan á nefið á okkur – eða rétt­ara sagt uppi í nef­inu á okkur.

Nef okkar er gáttin að umhverf­inu, ef svo má segja, og það er snilld­ar­lega hannað til þess að stöðva inn­rás óvina á borð við bakt­er­íur og veirur. Árið 2018 birti hópur banda­rískra vís­inda­manna nið­ur­stöður rann­sóknar þar sem sýnt var fram á að þegar bakt­er­íur ber­ast í nef losnar mergð örlít­illa og vökva­fylltra sekkja sem hafa það hlut­verk að ráð­ast á bakt­er­í­urnar og afvopna þær.

„Þegar þú sparkar í geit­ungabú þá ryðj­ast geit­ung­arnir út og reyna að drepa það sem er að ráð­ast á búið – áður en búið er eyði­lagt,“ segir Benjamin Bleier, pró­fessor við Northe­astern-háskóla í Massachusetts, sem var með­höf­undur þeirrar rann­sóknar. „Það er það sem lík­am­inn er að gera,“ segir hann um inn­rás bakt­er­í­anna og varnir nefs­ins.

Nefið verst veirum

Bleier er aðal­höf­undur hinnar nýju rann­sóknar þar sem kom­ist var að þeirri nið­ur­stöðu að nefnið grípur til sam­bæri­legra varna gegn að minnsta kosti nokkrum algengum veirum sem leggj­ast á önd­un­ar­færin.

Rann­sókn­arteymið vildi svo einnig svara annarri spurn­ingu: Dregur kalt veður úr þessum varn­ar­við­brögðum nefs­ins?

Rann­sóknir hafa sýnt að veirur sem valda t.d. almennu kvefi þríf­ast vel við lágt hita­stig. Þannig sýndi t.d. ein rann­sókn frá árinu 2015 fram á að kvef­veirur fjölga sér hraðar í kulda því þá er ónæm­is­við­bragðið (hjá músum í þessu til­felli) ekki eins sterkt. Einnig hafa rann­sóknir sýnt að inflú­ensu­veirur kunna vel við sig í kald­ara lofti.

Nýja rann­sóknin byggir á þessum fyrri nið­ur­stöðum og gefur „sanna og líf­fræði­lega skýr­ingu á því af hverju lík­am­inn er mót­tæki­legri fyrir veiru­sýk­ingum þegar kalt er í veðri, segir Bleier.

Nefhiti sjálf­boða­liða var mældur til rann­sókn­ar­innar, ann­ars vegar við 23 gráðu umhverf­is­hita og hins vegar 4 gráðu hita. Í ljós kom að hiti í nef­koki þeirra féll um meira en 10 gráður sam­hliða því að fara úr hlýrra loft­inu í það kald­ara.

Næsta skref rann­sókn­ar­innar fór fram á rann­sókn­ar­stofu og gekk út á það að láta neffrumur verða fyrir sam­bæri­legum hita­breyt­ingum til að líkja eftir því hvað ger­ist í nefi í köldu veðri. Nið­ur­staðan var sú að ónæm­is­við­bragð sljóvg­að­ist veru­lega við lægra hita­stig.

Nið­ur­staðan er enn eitt púslið í þá mynd sem blasir við á hverjum vetri er flensur herja sem mest á fólk. Hún gæti líka gagn­ast við þróun nýrra með­ferða við sjúk­dómum að sögn vís­inda­mann­anna. Ef hægt yrði að finna leið til að örva varn­ar­við­bragð nefs­ins í kulda­tíð þá væri mögu­lega hægt að koma í veg fyrir eða draga úr veik­indum af völdum veiru­sýk­inga.

Munið handþvottinn

En þangað til er best að stunda hinar per­sónu­bundnu sótt­varnir sem okkur voru kenndar í heims­far­aldr­inum: Reglu­bund­inn hand­þvottur, að halda sig til hlés ef ein­kenni gera vart við sig, sýna nær­gætni í nánd við aldr­aða og aðra við­kvæma hópa og að nota grímu í miklu fjöl­menni og á sjúkra­stofn­unum. Þá má einnig minna á mik­il­vægi góðs svefns fyrir ónæm­is­kerfið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár